Vísir - 04.07.1962, Side 7

Vísir - 04.07.1962, Side 7
smábílar leiddir saman Vinsældir smábílanna fara vaxandi víða um lönd. Með því er yfirleitt átt við Iitla fjögurra manna bíia, sem eru ódýrir og sparneytnir með sprengirúmi undir þúsund kúbik-sentimetr- um í hreyflinum. Tegundum smábíla fer stöð- ugt fjölgandi og er framleiðslu- aukningin nú mest £ þeim. Á þetta sérstaklega við í Evrópu. í Bandaríkjunum hefur bíja- BMW eign verið almennari og bílarn- ir stærri og sterkari. Stafar það bæði af tiltölulega ódýru benzmi og hinum miklu vega- Iengdum þar í landi. Þar hafa smábilar því enn ekki rutt sér til rúms, en hins vegar hefur dreg- ið úr áhuganum á stærstu gerð- unum með tilkomu „compact“ bílanna. En í Evrópu blómgast fram- Ieiðsla smábíla betur en nokkru sinni fyrr. Nýjar gerðir hafa sprottið upp hver á fætur ann- iSAR arri £ Þýzkalandi, Frakklandi og Bretlandi og framleiðsla Fiat á ítalíu á smábilum hefur aldrei verið meiri en nú. FÓTGANGENDUR EIGNAST BÍLA. Hvað veldur þessari smábíla- öldu? Margar ástæður liggja fyrir henni, svo sem þrengsiin á vegum og bi'lastæðum, sem verða æ erfiðari viðfangs. Aðal- orsökin er þó, að nú er sú þró- un að verða £ Evrópu, að iág- launafólk sem hefur verið fót- FIAT gangandi fram að þessu er að fá sér bila og þá er viðráðan- legast bæði upp á kaupverð og reksturskostnað að fá sér smá- bil En smábílarnir eru svo mjög í tízku, að efnafólk hefur iíka fylgt með, mörgum finnast þess ir litlu léttu vagnar skemmti- legri og auðveldari i öllum vöf- um. Brigitte Bardot og ýmsar aðrar stjörnur í Frakklandi hafa valið sér smábíi. Og það er nú í tízku í Frakklandi jafnt meðal efnafólks og láglaunaðra að AUSTIN fara í sumarfrí með tjald og sem allra einfaldastan smábíl af Renault eða Citroen-gerð. Smábílarnir ættu þá ekki síð- ur að geta orðið vinsælir á Is- landi, þar sem allt bílverð er uppsprengt og margfaldað með tollum og innflutningsgjöldum, enda hefur sú orðið raunin á hér, að smábílaeignin hefur mjög aukizt síðan bílainnflutn- ingur fór að verða frjáls. VANDAÐUR AÐ BYGGINGU1. Eitt af því sem hefur gert smábílana vinsæla eru ýmsar skemmtilegar tæknilegar nýj- CITR9EN ungar, sem hafa komið fyrr fram á þeim en stærri bílum. Þeir eru margir sérstaklega vandaðir að byggingu og stafar það af því, að framleiðendur verða að leggja að sér til að gera svo litla bíla vel úr garði. Þar verða þeir í rauninni að gera hið ómögulega mögulegt og koma öllu því sem tii þarf í hinn litla vagn. Það er mjög skemmtilegt að athuga hvernig hinir ýmsu framleiðendur leysa vandamál- in hver með sínum hætti. En helztu úrlausnarefnin eru tvenns konar, að gera bílinn þægilegan þrátt fyrir smæðina og bæta úr því að langar vega- lengdir verða þreytandi og hætt við að hraðinn verði ekki eins mikill og hjá stærri bílum. Oft hefur fjölskyldufaðirinn mestan áhuga á verði bílsins, að það sé sem lægst, en konan hef- ur oft mestan áhuga á útlitinu, að bíliinn sé fallegur. En þegar allt kemur til alls, er það ekki kaupverðið sem skiptir mestu máli, heldur end- ingin. Ef hún er. slæm, ef vélin er ónýt eða ef lakkhúðin er illa gerð og bíllinn ryðgar fljótt niður, þá er hætt við að þeir bílar fái fljótt slæmt orð á sig. Hér á íslandi skiptir varahluta- þjónustan líka afar miklu máli. Menn hafa haft svo vonda reynslu af henni á undanförn- um haftaárum, að fyrsta spurn- ingin, sem hver einasti bíl- kaupandi ber fram er, hvort hún sé góð. Úti á meginlandi Evrópu eru menn hins vegar yfirleitt öruggir u m að vara- hlutaþjónusta og viðgerðir eru í góðu lagi, þótt stundum sé erfitt að komast inn með bílinn á hin yfirfullu viðgerðaverk- stæði. SAMANBURÐUR A FIMM TEGUNDUM. Vegna hins vaxandi áhuga á smábílum tók þýzka tómaritið Stern sig til nýlega og prófaði og gerði samanburð á nokkrum helztu smábílunum sem þar hafa rutt sér til rúms að und- anförnum, og verður hér sagt frá nokkrum atriðum úr áliti þess. Tegundirnar sem bílasérfræð- ingur blaðsins Hans Spoerl próf aði voru tvær þýzkar, ein ítölsk, ein brezk og ein frönsk. Það voru þessar gerðir: BMW- 700, Isar T-700 sem er fram- leidd af Goggomobil, en lítt þekkt hér, Fiat 600 D, Austin Seven 850 og Citroen Ami 6. Um verðið er það að segja að Fiat 600 var ódýrust 4110 mörk (sambærilegt við 97 þús. ísl. kr.), Þá kom Isar 4630 mörk (100 þús. ísl. kr.), BMW kost- aði 4760 mörk (105 þús. ísl. kr.), Aústin 5295 mörk ( 110 þ. ísl. kr.) og Citroen Ami 5450 mörk (112 þús. ísl. kr.). Utlit og MÁLNING. Hvað útlitið snerti taldi Spoerl að BMW væri fallegast- ur, en Fiat legði minnsta á- herzlu á útlitið, en hann hefði lengi verið eins að útliti og fólk væri farið að venjast honum. Hins vegar væri Citroen Ami sérvizkulegur. Spoerl segir að þegar hann dæmir þannig útlit bíla, eigi hann Við það álit, sem almenningur hafi á þessum hlut- um. Um málningu segir hann að BMW standi fremstur, en Aust in sé tortryggilegastur og hætt við ryði. Lakkið á Citroen er miklu betra, en efnið (platan) í yfirbyggingu hans í þynnsta lagi. Hann telur bæði málningu og efni í yfirbyggingu Fiats mátulega. ÞÆGINDI VIÐ AKSTUR. Spoerl telur sætin í Isar ó- þægilegust og kveðst ekki langa til að sitja í honum i langferð- um. Fyrir hávaxna menn er út- sýnið úr honurp slæmt, auk þess er loftræsting i honum ó- fullnægjandi og upphitunin ekki lyktarlaus. En þægindin í Isar liggja í mjög góðri og öruggri gfrskiptingu og því að hreyfill- inn er hljóðlítill enda þótt hann sé loftkældur. Citroen Ami er vafalaust þægilegastur af þessum smá- bílum, enda er hann stærstur þeirra, dásamleg sæti, gott út- sýni og fjöðrun bílsins er ein- stök, eins og góð og loftfjöðrun. Þægindin í Fiat liggja í því, hve auðvelt er að aka honum. Allt gerist eins og af sjálfu sér. Maður þarf ekki að venjast Fiat, segir Spoerl, heldur sezt upp í hann og eftir eina mínútu finnst manni eins og maður hafi aldrei ekið öðrum bíl. Þar er ekkert framúrskarandi, en allt rétt, sætj, útsýn, rúðuþurrkur, dyr og fjaðraumbúnaður Það kemur manni á óvart, hve Austin Seven sem virðist minnstur þessara bíla er rúm- góður að innan. Samt er hann ekki þægilegur og stafar það helzt af hinni frekar stífu gúmmífjöðrun og af því að þurfa að tvikúpla við gírskipt- ingu á miklum hraða. BMW er þægilegri en þó er þreytandi við hann á langleiðum vélar- hljóð og hin of viðkvæma gír- skipting. Fiat-billinn er þægilegur í borgarumferð en Citroen Ami beztur í langferðir. VÉLAENDING OG HRAÐI. Það er erfitt að segja um endingu á vélunum skrifar Spoerl. Um Fiat-vélina er það að segja, að reynslan er sú, að hún endist illa í Þýzkalandi en miklu betur í heimalandinu Italíu. Telur hann að þetta stafi af þvi að í Þýzkalandi sé hitinn á kælivatninu stilltur of lágt. Hann kveðst búast við að ending Citroen-vélarinnar sé góð. Hann telur þó líklegast að vélin í Austin Seven sé ending- arbezt og það þrátt fyrir það að vélsmíði Breta, sem áður bar af hafi hrakað. Hann segir að hljóðið á Austin-vélinni sé sér- staklega fallegt. Hvaða hámarkshraða snertir skara BMW og Austin fram úr báðir með 120 km hraða, en hinir allir með 110 km hraða. BMW skaraði fram úr með hraðaaukningu. Þar stóð Citro- en Ami sig ilia. Fiat er fremur lengi að auka hraðann fyrst í stað en vinnur mjög vel á 60 til 80 km hraða. Spoerl bendir annars á und- arlegt fyrirbæri á flestum bíl- um, að hraðamælarnir eru ekki réttir, sýna að jafnaði of mik- inn hraða. Verst er þetta hjá Fiat. Þegar hann er á 50 km hraða sýnir mælirinn Ö6, og við Framh. á bls. 10

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.