Vísir - 18.07.1962, Page 2

Vísir - 18.07.1962, Page 2
2 Miðvikudagur 18. júlí 1962. VIS! R Kom mín eigin geta á ó vart — Segir Óttar Yngvason, stud. jur nýbakaður golfmeistari Islands Það var vitað fyrir frarn að keppnin í golfmeistara- mótinu mundi verða geysi hörð og jöfn og kunnugir sögðu, að um tíu menn kæmu til greina sem meist arar. En fæstir höfðu þó gert ráð fyrir þeim úrslit- um sem urðu, fæstir bjugg ust við Óttari Yngvasyni sem fslandsmeistara. Sigur hans var hins veg- ar sanngjarn og verðskuld aður. Einbeitni Óttars og harka, samfara hæfninni, réði þar úrslitum og hann var vel að sigri sínum kom inn. Hann lék af öryggi all an tímann, sérstaklega undir lokin, og skaut aft- ur fyrir sig mun vanari og reyndari mönnum svo sem Jóhanni Eyjólfssyni, Árna Ingimundarsyni og þeim Ársælsbræðrum úr Vest- mannaeyjum. - íslands- meistarinn frá í fyrra, Gunnar Sólnes, náði sér aldrei á strik, og varð að láta sér nægja fjórða sætið. t Það ætti þó að vera sárabót fyrir Gunnar, eins og Óttar sagði, að bik arinn helzt í lagadeildinni. Þeir Gunnar og Óttar eru nefnilega báð- ir laganemar, stunda laganám við Háskóla íslands. Meistarinn í fyrsta flokki á meist aramótinu nú, Kristján Torfason er einnig stud. juris., svo við spurð um Óttar þegar við náðum tali af honum f gaerdag, hvort þeir kenndu golf í lagadeildinni. Allt eru þetta ungir menn og þegar við impruðum á þeirri stað- reynd, gat hann ekki skýrt þetta á annan hátt, „en að góðar taug- ar og keppnisskap þeirra yngri mannanna reyndust haldbetri en reynslan, þegar á reyndi“. Sigurinn kom á óvart „Annars kom mér mín eigin geta á mótinu á óvart. Ég gerði mér vonir, en ég hef ekki haft tækifæri til að æfa mikið, og því ekkert alltof bjartsýnn. Æf- ingarnar hafa verið tiltölulega takmarkaðar, í hæsta lagi einu sinni f viku. Ef vel á að vera þurfa menn að æfa 4 sinnum í viku, og í Bandaríkjunum 'tefa atvinnugolfleikararnir 8 stundir á dag", „Þú hefur verið vel fyrir kall- aður?“ „Já, ég komst strax f „stuð“, og hélt því út alla keppnina. Ég gaf mér líka gott næði á milli keppna, hvfldi mig og svaf. Það róaði taugarnar". „Er ekki óvanalegt að maður sem ekki leikur á heimavelli sigri meistaramótið?" „Það hefur ekki komið fyrir sfð- an 1956, þegar Sveinn Ársælsson, varð meistari, en þá var leikið bæði f Hveragerði og Reykjavík. Sveinn er hins vegar Vestmanna- eyingur. Þar áður held ég að það hafi ekki komið fyrir síðan Gísli Ólafsson vann meistaramótið, að mig minnir 1942.. Þá var hann ekki á heimavelli/ Kosturinn við það að leika á heimavelli er einkum fólginn í því að menn dveljast þá heima hjá sér milli keppnanna, hafa næði. Það er ekki svo Iítið at- riði. Ekki þá endilega af því þeir séu vanir vellinum. Auðvitað hef ur það sín áhrif, en hitt held ég sé þyngra á metunum. Hæfni góðs golfleikara felst að hálfu leyti f andlegum hæfileikum, hugsuninni. Það reynir ekki síð- ur á það en Ieiknina og lagn- ina“. Skemmtilegur völlur „Þú kannt þá svona vel við þig á Eyjavellinum?" „Ég veit það ekki, en mér finnst sá völlur langskemmtilegastur. Hann er fjölbreyttastur og um- Óttar Yngvason stud. jur. hverfið og aðstæður allar svo sér- kennilegar og skemmtilegar að það er ánægja af að leika þar“. „Hefur þú iðkað golfið lengi, Óttar?“ ,Ekki náttúrulega miðað við þá sem hafa stundað íþróttina alla sína ævi og eru komnir á miðjan aldur. Ég hef stundað golf síðast- liðin átta ár. Ég átti heima ekki langt frá golfvellinum, og við fór- um þangað stundum strákamir. Svo var það einu sinni að Benedikt Bjarklind, sem var mikill áhuga- maður í golfi, og er reyndar enn, gaf okkur nokkrum strákum gaml- ar kylfur. Þá fórum við að leika okkur 1 þessu, og þannig skapaðist Skákmót sporvagnastjóra Skákmót sambands norrænna sporvagnsstjóra verður haldið hér f Reykjavík dagana 19. til 24. iúlí n.k. Taflfélag Hreyfils sem um nokk- urra ára skeið hefur verið í sam- bandinu og sent sveitlr sfnar 4 skákmót sambandsins erlendis, sér um að halda mótið og annast mót- töku hinna erlendu gesta. f mótinu taka þátt 43 skákmenn, þar af 1 Dani, 1 Norðmaður, 22 Svfar og 19 íslendingar. Að auki verða f hópnum konur sumrá útlendinganna og annað venzlafólk, þannig að gestirnir verða alls 46. Mótið verður háð í Sjómanna- skólanum og þar munu hinir er- lendu gestir búa meðan á dvöl þeirra hér stendur. Mótið verður sett fimmtudaginn 19. júlí og verða þá tefldar 3. umferðir f öllum flokkum, en þeir verða þrír Síöasta umferð verður tefld briðju daginn 24. júli. Að kvöldi fimmtudags 19. júlí verður kynningarkvöld með hinum erlendu gestum í húsi Slysavarna- félagsins við Grandagarð og fimmtudaginn 26. júlí verður hald- ið lokahóf þátttakenda og gesta í Lídó og þar verða verðlaun afhent. Auk þess verður reynt að kynna útlendingunum landið, svo sem kostur er á, skipulagðar verða kynnisferðir um borgina og ná- grennið og einnig verða Þingvellir heimsóttir, Gullfoss og Geysir. Með því að halda þetta mót hef- ur Taflfélag Hreyfils tekið á sig mikið og kostnaðarsamt starf. Fé- lagið hefur í því sambandi orðið að leita til ýmissa aðila um fjár- hagslega aðstoð og hefur félagið fengið góðar undirtektir. Vill fé- lagið færa öllum þeim alúðarþakk- ir fyrir. áhuginn smám saman Síðustu tvö árin þ. e. 1959 og 1960 gat ég lítið æft mig vegna anna og annarra ástæðna, og f ár hefur reyndar ekki mikið farið fyrir þeim held- ur. Ég hef keppt f þessum smá- mótum sem klúbburinn efnir til á hverju þriðjudagskvöldi, það er alft og sumt“. Ódýr fþrótt „Er það ekki dýrt „sport“, gólf- ið?“ „Ég hugsa að það sé ekki mikið dýrara en hver önnur íþrótt. Við borgum 1000 krónur á ári til Golf- klúbbsins og gildir það þá líka fyr- ir konur þeirra sem eru giftir. Fyr- ir þá sem aðeins vilja leika sér, hafa gaman af og njóta útiverunn- ar án þess að taka þátt í keppnum, kostar aðeins 200 krónur. Áhöldin eru heldur ekki svo ýkja dýr, hver kúla 40 — 50 krónur, og ef þú vilt hafa fullkominn útbúnað þá verð- urðu að hafa 14 kylfur sem kosta um 5000 krónur. Fyrir byrjendur nægir hins vegar ein kylfa. Af einhverjum ástæðum hefur á- lit fólks verið, að golfið væri of dýrt, til þess að hver sem er geti leikið það. Þetta er auðvitað mesti misskilningur, og væri vissulega á- stæða fyrir golffélögin að breyta þessari almennu skoðun". „Hefur það þá dregið úr áhug- anum á íþróttinni?" Tvímælalaust. Fólk, sérstaklega hér í Reykjavík, hefur almennt ekki gert sér grein fyrir hve skemmti- leg og þægileg iþrótt golfið er. Oti á landi, á Akureyri og í Vestmanna eyjum eru áhuginn hins vegar að aukast geysilega. Þó hafa menn t.d. í Vestmannaeyjum, ekki alltof mik- inn tíma til þess arna. En á þessum tveim stöðum er fjöldi iðkenda um fimmfaldur á við Reykjavík miðað við fólksfjölda. Þessu þarf að breyta og er það þá fyrst og fremst í verkahring okk ar golfleikaranna sjálfra". Tveggja landa landsliðsmenn Nokkrar umræður hafa spunnizt um það sérstaklega nú að lokinni heimsmeistarakeppninni, hvaða skilyrðum menn verði að uppfylla til að fá að leika í landsliðum. Vankantarnir á þeim reglum komu svo berlega í ljós, í Chile að hver viti borinn maður viðurkennir að brýna nauðsyn beri til að breyta þeim. Þar léku menn £ ýms- um liðum sem höfðu leikið með öðrum, jafnvel tveim löndum öðr- um áður. Sérstaklega er þetta á- berandi í Suður-Evrópu liðunum, frá Spáni og Italíu. Di Stefano hef- ur leikið með Uruguay, Argentínu og nú Spáni, Puskas varð fyrst frægur I ungverska landsliðinu. Si- vori einn snjallasti leikmaður ítala er borinn og barnfæddur I Argen- tínu og hefur leikið fjölda lands- leikja með þeim og í ítalska liðinu var einn maður, Altafini, sem varð heimsmeistari með Brazilíumönn- um árið 1958! RUGLINGUR Þetta er framkvæmanlegt á þann hátt, að í lögunum sem um þetta fjalla, segir að til þess „að geta leikið í viðkom- andi landi, verði maðurinn að vera fæddur í því. Ef menn eru fæddir í landi sem þeir teljast ekki þegnar í, er þjóðemi þeirra ákveðið, eftir því af hvaða þjóð emi feður þeirra em“. Síðari hluti þessa ákvæðis veld- ur ruglingnum og gefur hinum ýmsu þjóðum tækifæri til að hengja hatt sinn á það. Það veldur því að maður að nafni Di Stefano, sem er fæddur í Argentínu en á spánsk an föður getur með góðri sam- vizku leikið í landsliðum beggja landanna., Að vísu hafa verið settar þær reglur að knattspyrnumaður verð- ur að dveljast í þrjú ár samfleytt I viðkomandi landi til að geta leikið í lar.dsliði þess, en það á- kvæði er auðvitað ekki nema hlægilegt. Ef við lítum betur á of- annefnt ákvæði þá sjáum við að þar stendur, feður, en ekki fað- ir. Það hefur verið nóg að afi eða jafnvel langafi einhvers knatt- spyrnumanns sem keyptur er t.d. til Itah'u hafi verið Italskur, þá er knattspyrnumaðurinn sjálfur hæfur til að leika í ítalska landslið- inu þótt hann hafi aldrei fyrr stig- ið fæti sínum þar. ENGINN FRAMHERJI Þannig var Brazilíumaðurinn Al- tafini skyndilega orðinn ítali, þeg- ar félagið sem keypti hann upp- götvaði að langafi hans hafði ver- ið ítalskur! Sú uppgötvun var svo aftur vafasöm og í meira lagi gruggug. Og þannig hefur það verið sér £ ^agi í ítali'u, knattspyrhufélögin þar hafa einskis svifizt £ þessum efnum. Fjöldi erlendra knatt- spyrnusnillinga hefur verið flutt- ur inn og þeir „£talskaðir“. Afleið- ingin hefur verið sú, sérstaklega upp úr 1950, að ungir menn í Ítalíu sem lögðu út á kríattspyrnubraut- ina, forðuðust að leika framherja eða æfa þær stöður, þv£ þar voru fá sem engin tækifæri til frama i landsliðinu. REGLUNUM VERÐUR A Ð BREYTA Sem betur fer, hafa flest önn- ur lönd £ Evrópu hunzað þennan möguleika, og fylgt þeirri reglu að velja menn eingöngu f lið sfn, ef þeir eru fæddir i viðkomandi landi. Útkoman úr þvi getur einn- ig orðið kjánaleg. Þannig má benda á Joe Baker, Skotann sem leikur i ensk landsliðinu. Hann hefur bú- ið alla sína ævi £ Skotlandi og for- eldrar hans eru skozkir. En af til- viljun voru þau á ferðalagi, hjón- in, £ Englandi þegar Joe litli fædd- ist. Hins vegar fá þeir sem fæddir eru annars staðar en i Englandi, jafnvel þótt þeir séu fæddir innan heimsveldisins, ekki að leika með enska landsliðinu. Eins og sjá má af þessu rabbi, þá eru menn ýmist of strangir eða of linir. Reglurnar gefa tilefni til þess, og þeim verður að breyta. En hvernig? Um það standa deil- urnar og um það eru menn ekki á eitt sáttir 1

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.