Vísir - 18.07.1962, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 18. júlí 1962.
Fyrir nokkru flaug hópur Is-
lendinga út tii Færeyja. Þeir
fóru þangað með Gljáfaxa, Da-
kota-flugvél Flugfélagsins. Til-
gangurinn var að reyna Iend-
ingarskilyrði á flugvellinum hjá
Sáurvogi f Færeyjum, en það
er eini flugvöllur eyjanna. Var
hann Iagður þar á strfðsárun-
um af Bretum, en var sfðan
illa haldið við.
En nú hefur áhugi vaknað með
al Færeyinga á því að bæta sam
göngurnar við umheiminn og
vilja þeir nú mikið til vinna að
koma á flugsamgöngum við
önnur lönd. Standa yfir athug-
anir á því, hvort hægt sé að
stækka núverandi flugvöll, svo
að stórar flugvélar geti Ient
þar. Einnig eru Færeyingar að
hefja framkvæmdir, sem eiga
að stytta ferðina milli höfuð-
bæjar þeirra, Þórshafnar, og
Vogaeyjar þar sem flugvöllurinn
er. Hins vegar er talið útilokað
að leggja flugvöll á sjálfrl höfuð
eynni, Straumey, þar sem lands
Iagi er þar svo háttað, tóm fjöll
og klettar.
,
íslendingamir, sem fóru með
flugvélinni til Færeyja, notuðu
tækifærið til að korna á héraðs-
samkomu, sem haldin er árlega
f Saurvogi og kallast Vestan-
Hátíðin í Saurvogi, Vestanstevnan hófst með skrúðgöngu. Hér gengur mannfjöldim undir fánum gegnum bæinn.
Með Gljáfaxa til Færeyja
stevna. Þangað safnast fólk úr
öllum Færeyjum og er þar há-
tíð með íþróttakeppni, svo sem
keppni í róðri, knattspyrnu og
handknattleik. Var góð skemmt
un að þessari Færeyjaheim-
sókn.
Myndsjáin birtir í dag nokkr-
ar myndir úr Saurvogsferðinni,
sem Jóhann Gfslason loft-
skeytamaður tók.
Mynd tekin yfir bæinn Saurvog. Efst sést Gljáfaxi, þar sem
hann er að lækka flugið til að lenda á flugvellinum.
I ,
..................
Hér sjást flugmennimir við vélina, þeir Guðjón Ólafsson og Jóhannes Snorrason flugstjóri.