Vísir - 18.07.1962, Side 9

Vísir - 18.07.1962, Side 9
Miðvikudagur 18. júlí 1962. VISIR Það er sagt, að margt af ferðafólkinu, sem flýg ur yfir heimskautsbaug, fari í þeim tilgangi ein- um, að ná sér í skírtein- ið, sem þeir fá, sem kom ast yfir bauginn. Sagan er einna helzt kennd við gamlar konur frá Banda- ríkjunum og er hér ekki seld dýrari en hún var keypt. En ósennileg er hún ekki, því að það er sagt um Ameríkumenn yfirleitt, að þeir skoði staðinn, sem þeir ferð- ast til, þegar þeir eru komnir heim. Þeir fari á fleygiferð, komi víða við og taki myndir af öli- um mögulegum og ómögulegum hlutum. Hvergi er staldrað við, ekkert skoðað — nema mynd- irnar, þegar búið er að fram- kalla þær heima! Annað ein- kenni er þó ekki síður á Ame- ríkumönnum og kemur raunar heim við það sem hér hefur verið sagt. Það er áfergja þeira í minjagripi hverju nefni sem þeir nefnast. Þetta á svo sem ekki eingöngu við um amerfska ferðamenn, en er þó meira á- berandi hjá þeim, þar sem flest ir þeirra hafa meiri auraráð en gerist meðal Evrópumanna. „Gorkúlurnar“. Við hér í Reykjavík höfum fundið nasaþefinn af þessu. Síð an ferðamannastraumurinn fór að verða verulegur á okkar mælikvarða, hafa minjagripasöl ur risið bér upp eins og gor- kúlur. Og ekki minnkaði sá vöxtur, eftir að skemmtiferða- skipin fóru að venja komur sínar hingað. Með þeim er oft- ast fólk sem ekki þarf að telja hvern eyri í vasa sínum, auð- ugir ferðamenn frá meginlönd- unum beggja megin hafsins. Þeir leita uppi „gorkúlurnar" og þurfa þá sjaldnast að leita lengi. Strax á bryggjusporðin- um við kóngsins Loftsbryggju F erðamenn, hótel og rænar kindur hefur verið komið upp skúr rækilega merktum sem minja- gripasala. í miðborginni hafa nú um árabil dafnað fjölmargar búðir, sem eingöngu selja muni og hluti miðaða við erlenda ferðamenn. <> Grænar kindur. Er þá ekkert til sparað, og ó- trúlegustu hlutir hafðir á boð- stólnum. Lituðu gærurnar vekja mesta athygli meðal innfæddra, og ef þú ynnir í minjagripasölu þá rækist þú oftar en einu sinni á viðskiptavin, sem raunveru- lega stæði í þeirri meiningu að hér væru kindur grænar! Flestir þeir, sem kaupa þó gæruskinn, snúa sér frekar að eðlilegu lit- unum, enda mun ódýrari. Okk- ur er sagt að fólk kaupi alla mögulega hluti, en meginþorr- inn leggur þó áherzlu á að fá gagnlega hluti. 1 því sambandi vekja ullarvörurnar geysilega hrifningu, og eru mikið keypt- ar. Annars er nokkur munur á því hvað Evrópumenn kaupa og svo aftur Ameríkumenn. Þeir síðarnefndu leggja ekki eins mikið upp úr gagninu sem þeir geta haft af hlutunum, hafa t.d. tekið miklu ástfóstri við lítil merki sem hægt er að hengja við armbönd. Brúður seljast mikið og nú ekki alls fyrir löngu er byrjað að selja kálf- skinn í stórum stíl. Hótelin. Helztu viðskiptavinirnir að undanförnu hafa verið farþeg- arnir af stóru skemmtiferðaskip unum. Það er fólk sem kemur og fer, stendur við einn, tvo daga. En svo er það hinn hóp- urinn, fólkið sem dvelst hérna um lengri eða skemmri tíma. Það gerir meira en leita uppi Þrír ferðamenn á götum Reykjavíkur áður en þeir halda út á land. minjagripasölur í miðbænum. í kringum það hefur skapazt eitt af þessum sígildu vandamál um á ísiandi, hótelin. Hefur bæði verið kvartað undan lé- legri þjónustu og hóteleklu, og hvort tveggja talið standa æski- legum ferðamannastraumi fyrir þrifum. Heiðarlegar tilraunir hafa verið gerðar til að bæta úr þessu, og óhætt er að segja að það hafi tekizt á lofsverðan hátt, hvað þjónustuna snertir. Að flestra áliti hefur hún breytzt mjög til batnaðar, og verður að þakka það betri húsa kosti og aukinni samkeppni. 100 á götunni. Hóteleklan er hins vegar enn hin sama. Allmörg hótel hafa hafið starfsemi sína á undan- förnum árum og alls kyns hús- næði hefur verið tekið til þess- ara nota yfir sumarmánuðina. Útkoman er samt alltaf sú, að aukning ferðamannastraumsins er alltaf meiri en aukning hó- telherbergja og sömu vandræð- in koma upp ár eftir ár. Má benda á það, að ferðaskrifstof- urnar kvarta sífellt undan því að þær fái ekki húsnæði undir þá ferðamenn sem koma á þeirra vegum. Gizka fróðir menn á, að jafnan séu hér yfir 100 ferðamenn sem ekki fái inni í hótelum af þessum sökum. Samkvæmt lauslegri athugun á fjölda hótelherbergja á land- inu í dag, má gizka á að þau séu um 800, þ.e. 1600 rúm. Eru þá meðtalin öll hótel, gistihús og önnur þau pláss sem rekin eru sem slík um land allt. Hins vegar eru ekki meðtalin öll þau mýmörgu herbergi sem hótelin hafa á leigu annars staðar. Hundrað ferðumenn era doglegn „d götunni vegnu hótelskorts yfír sumurtínrann ®// Sjóstunguveiðin vinsæl Sjóstangaveiðin, nýjasta íþróttin á íslandi, nýtur sívaxandi vinsælda og er eftirspurn svo mikil, að full- skipað hefur verið í flestum ferð- um ferðum í sumar. Ferðaskrifstof an Lönd og leiðir hefur i sumar loigt bát og mann og gefið fólki þannig kost á að njóta þessa skemmtilega og sérkennilega tóm stundagamans. Ingólfur Blöndal hjá Löndum og leiðum tjáði okkur í gær, að ferð- ír þessar hefðu legið niðri nú síð- ustu daga vegna veikinda skip 'tjórans á bátnum, en nú mundu þær verða teknar upp aftur um þes.sa helgi. Er þá eins og áður farið tvisvar á dag a!la daga vik unnnr og jafnvel þrisvar, ef eftir- spurnin minnkar ekki. „Við iánum stöng, línu, beitu og galla“, sagði Ingólfur, ,og flest það sem til fararinnar þarf, nema mat“. Lagt er upp úr Nauthólsvíkinni og stímað beint út um klukku tíma, eða út fyrir svokallaða „Sexbauju“ Ferðin öll tekur um 5 tíma. Margir ferðalangarnir koma með heilu pokana með sér af fiski til baka Veiðin er jafnt þorskur. ufsi, ýsa, 'úða og steinbftur oa jafnvel karfi. Mikið hefur verið um það i sum ar, að - heilir starfsmannahópar hafa tekið sig til og farif iamar út. „Man ég ekki eftir neinum sem ekki hefur komið úr þessum sjóstangarveiðum hrifinn og neill aður af ferðinni“, sagði Ingólfur að lokum. Nýtt embætti Eins og kunnugt er gekk síðasta Alþingi frá löggjöf um Handrita- stofnun tslands. Embætti forstöðu- manns hennar hefir nú verið aug- lýst laust til umsóknar með um- sóknarfresti til 7. ágúst nk. Samkvæt lögum um Handrita- stofnunina skal forstöðumaður hennar jafnframt vera prófessor með cakmarkaðri kennsluskyldu við Heimspekideild Háskólans Um sækjendur um þetta embætti skulu láta fylgja umsókn sinni ýtarlega skýrslu um vísindastörf sín, rit smíðar og rannsóknir, svo og náms feril og störf. Enn fremur fylgi ein- tök af vísindalegum ritgerðum þeirra, prentuöum sem óprentuð um. \ Nýtt Sjálfstæðisfélag Stofnfundur Sjálfstæðisfélags Strandasýslu var haldinn á Hólma- vík sunnudaginn 8. júlí s.l. Axel Jónsson, fulltrúi framkvæmda stjóra Sjálfstæðisflokksins, setti fundinn og ræddi um fyrirhuguð verkefni hans, Fundarstjóri var kjörinn séra Andrés Ólafsson, Hólmavík og fundarritari Jörundur Gestsson. Hellu. Axel lónsson flutti erindi um skipulagsmál Sjálfstæðisflokksins1 og lagði fram frumvarp að .ögum fyrir félagið sem síðan var sam þvkkt. Hlaut félagið nafnið Sjálf- stæðisfélag Strandasýslu og íélags svæði þess ákveðið Strandasýsla sunnan Árneshrepps. Stjórn félagsins skipa: Séra And rés Ólafsson, formaður, Knstján Jónsson, Hólmavík, Sjöfn ÁSDjörr.s dóttir, Hólmavík, Guðjón Jónsson, Gestsstöðum, Kirkjubólsherppi og Magnús Guðmundsson, Drangs- nesi. Þá voru kosnir fultrúar í full- trúaráð og kjördæmisráð Sjálf- stæðisflokksins í Vestfjarðakjör- dæmi. Sigurður Bjarnason, ritsjóri á- varpaði fundinn og árnaði hinu nýstofnaða félagi heilla í störfum. Mýr safnvörður Nýlega skipaði menntamálaráðu- neytið nýjan safnvörð við Þjóð- minjasafnið. Er það Halldór J. Jóns- son, cand. mag. Hann hefur áðn.r starfað við þjóðminjasafnið á sumrin og verður fastur star'smaö- ur þar síðan á sl. hausti. Aðrir safn verðir auk þjóðmir.javnrðar eru Gfsli Gestsson og Þorkel! Gríms- son.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.