Vísir - 16.08.1962, Page 2
2
VÍSIR
Fimmtudagur 16. ágúst 1962.
■n
faAa fe.
o Lrr J Ll— “i r h 1—
W//////Æ W///////ÚL
WrAnr jafnaBi á síðustu mínátum
KR hafði sótt mestallan
leikinn og sýnt mun betri
knattspyrnu, en skyndi-
lega, um miðjan síðari hálf
leikinn tóku Valsmenn sig
saman og á 9 mínútum
voru þeir búnir að taka ann
að hinna tveggja dýrmætu
stiga af KR og aðeins rúm
mínúta eftir. Þannig léku
Valsmenn hið niðurbrotna
KR-Iið heldur grátt, en leik
tnenn KR fóru mjög illa út
ár landsleiknum í írlandi.
Þannig máttu bræðurnir
Hörður og Bjarni Felixsyn
ir og Garðar Árnason vera
utan vallar skakkir og
skældir og Svéinn Jónsson
hóf Ieik meira af vilja en
mætti og varð brátt að yfir
gefa völlinn.
KR HAFÐI YFIRBURÐI
Fyrsta markið í leiknum kom
eftir 10 mínútna leik og skoraði
Gunnar Felixsson fallega með nokk
urri heppni. Jón Sigurðsson hljóp
með boltann hratt upp miðjuna, en
gaf á réttu augnabliki til Gunnars
á vítateig, en hann notaði sér frá-
munalega lélega staðsetningu Björg
vins Hermannssonar, sem var ö til
6 metra út úr markinu og átti eng-
in tök á að ná háum bolta Gunn-
ars, sem lenti í hægra horninu.
Rétt á eftir sóttu KR-ingar fast
og tveir skallaboltar (Sigurþórs og
Gunnars Felixsonar) voru ekki
fjarri lagi.
Fyrsta tilraun Vals og raunar ein
af fáum, var skot á 21. mín. en
það kom frá Bergsteini og var af
of löngu færi og of augljóst til að
Heimir lenti í vandræðum.
Rétt fyrir hálfleikslok varð Gunn-
ar Felixson á undan markverði Vals
að lausum bolta við markteigshorn-
ið, en flausturslegt skotið rúllaði í
rólegheitum fram hjá horninu, virt
ist lengi ætla inn f hornið, en fór
svo rétt fram hjá.
STÓRSÓKN KR -
OG VALURSKORAR
Strax í byrjun síðari hálfleiks
skaut Gunnar Felixson hörkuskoti,
sem var bjargað naumlega. Tveim
mínútum síðar, eða á 4. mfnútu
skoraði Jón Sigurðsson svo 2:0 frá
vítateig, er Valsvörninni mistókst
að hreinsa frá teignum, en skot
Jóns með jörðinni fór milli fóta
Valsmanna, ekki sérlega glæsilegt,
en nógu gott og fyllilega verð-
skuldað eftir yfirburðaleik KR.
Um miðjan síðari hálfleikinn var
sem hlutverkaskipti yrðu. Vals-
menn byrjuðu að leika knattspyrnu,
sem átti yfirleitt rót sína að rekja
til hægri útherjans Skúla Þorvalds-
sonar, sem átti sinn bezta meistara
flokksleik nú, en hann kom inn á
í fyrri hálfleik sem varamaður.
Á 25. mínútu jaðraði tvívegis við
að mark væri skorað á KR, en í
bæði skiptin var bjargað. Á 30. mín.
komst Bergur Guðnason innfyrir
(hálfbróðir hins kunna landsliðs-
manns Bjarna Guðnasonar, er Iék
með Víking), en Heimir sá við hætt-
unni í tíma og bjargaði með út
hlaupi mjög laglega.
Á 33. mínútu munaði minnstu
að KR hefði skorað 3. mark sitt
Leggur skóna
á hilluna
Jack Kelsey er nafn sem flestir muna síðan 1960, er hann
og 2 félagar hans úr Arsenal dvöldu hér á landi á vegum
Rfkharðar Jónssonar og um árabil verið einn bezti marjt-
vörður Breta og því til sanninda merkis hefur hann leikið
41 sinni í welska landsliðinu, en hann er fæddur í Welsh og
auk þess hefur hann að baki 327 Ieiki með Arsenal.
Kelsey hefur nú ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir
alvarleg meiðsli er hann hlaut í leik i Brazilíu í maí s. 1. en
læknar telja óráð hið mesta fyrir hann að halda áfram.
Kelsey sem er 32 ára gamall hafði kastað sér flötum fyr-
ir brazilska innherjann Vava og hlaut mikil meiðsli á mæn-
unni. .
Welska knattspymusambandið mun greiða Kelsey 5.000
sterlingspund úr tryggingasjóði en Arsenal fær fyrir skaða
sinn 25.000 pund.
Sjaldgæf sjón I fym hálfleik. Heimir þurfti að hlaupa út og kýla boltann frá marki.
og hefði svo farið hefði sigurinn
líka eflaust orðið þeirra og þeir
nú staðið betur að vígi í íslands-
mótinu. Það var Gunnar Felixson,
sem skaut góðu skoti í fang Björg-
vins, en hann missti boltann, —
í þverslá — niður á völlinn þar sem
boltinn hoppaði á línunni, en Björg-
vin tókst að verða aðeins á undan
ásæknum KR-ingum að hirða bolt-
ann af hættusvæðinu.
MARK BEINT ÚR HORNI
Þrítugasta og fimmta mínúta
færði Val fyrra markið. Það kom
jafnóvænt og þruma úr heiðskíru
lofti. Matthías tók hornspyrnu frá
vinstri, boltinn sveif fyrir markið
eftir sterkum hliðarvindinum, yfir
Heimi markverði og yfir Ellert
Schram, sem stóð í horninu og
gat ekki að hafzt, 2:1.
Mikið fjör færðist í leikinn við
þetta og sóttu Valsmenn ákaft og
tókst furðu vel að finna leiðina
gegnum vörn KR, og er klukka dóm
arans sýndi 44 mínútur liðnar af
hálfleik fékk Bergur góðan bolta
inn fyrir Helga Jónsson miðvörð og
notfærði sér færið og renndi fram
Framhald á bls. 5.
Staðan
Akranes 7 4 2 1 17:8 10
Fram 7 3 3 1 13:5 9
Valur 8 3 3 2 11:6 9
K.R. 8 3 3 2 16:10 9
Akureyri 8 4 0 4 18:15 8
I’safjörður 8 0 1 7 1:32 1
Eins og sjá má er staða Akra-
ness bezt, en Fram næstbezt í
mótinu, en þrjú næstu lið eiga
samt nokkra von um íslands-
meistaratitilinn í þessu jafna móti,
með 6 jafnteflisleikjum til þessa.
Jafnteflið í gærkvöldi eykur
möguleikana fyrir Fram og Akra-
nes, og verður leikur þeirra aðila
á mánudaginn á Laugardalsvell-
inum sannarlega nokkurs konar
úrslitaleikur mótsins. Næsti leikur
mótsins er annað kvöld á Laugar-
dalsvelli milli Fram og Isafjarðar,
en ísafjörður er þegar fallinn og
vart við miklu að búast af þeim,
— — og þó, allt getur skeð í
knattspyrnu!
Víkingur ú
ísafirði
I síðustu viku heimsóttu hinir
efnilegu 4. og 5. flokkur Víkings,
' sem báðir eru í úrslitum á íslands
mótinu í knattspyrnu, hina gest-
risnu knattspyrnumenn á Isafirði
Víkingarnir léku 4 leiki þar, 2 í
hvorum flokk. I 5 fl. sigruðu Vík-
ingar með 7:1 og 3:1 og í 4. fl.
sigruðu þeir einnig með 4:0 og
3:0. Móttökurnar voru frábærar
eins og alltaf hjá ísfirðingum, þeg
ar um íþróttaflokka er að ræða
enda er ísafjörður einn vinsælasti
staður á landinu að heimsækja
l fyrir íþróttafólk.
Boltinn hrökk f brjóst Björg-
vins upp í stöngina — og af
stönginni niður á grasi gróna
marklínuna og þar gómar
Björgvin boltann og grúfir sig
vendilega yfir hann. Smá-
heppni liefði getað fært KR
þama 3:1 og þá hefðu þeir stað
ið betur að vígi í íslandsmót-
inu en þeir gera. Þetta gerð-
ist á 33. mín. síðari hálfleiks
(sbr. frásögn).
Markhæstu
menn
Steingrímur Björnsson, Akure. 8
Ingvar Elísson, Akranes, 7
Gunnar Felixson, KR, 7
Þórður Jónsson, Akranes, 6
Skúli Ágústsson, Akureyri, 5
Grétar Sigurðsson, Fram, 5
Ellert Schram, KR, 4
Matthías Hjartarson, Val, 4
Guðm. Óskarsson, Fram, 3