Vísir - 16.08.1962, Síða 3
Fimmtudagur 16. ágúst 1962.
VISIR
3
Engin
hjáiparvél
Nýlega kom hér þýzkur segl-
bátur, Peter von Danzig, sem
er í eigu siglingaklúbbs stúd-
enta við háskóiann í Kiel. Á
bátnum er tólf mánna áhöfn.
Þeir félagar sigldu hingað
frá Kiel á tólf dögum og fengu
gott veður. Segja þeir ferðina
hafa gengið í alla staði hið
bezta.
Hér hafa þeir ferðazt um og
aðallega farið „á puttanum“.
Einn þeirra segir frá því að
hann hafi komizt alla leið til
Blönduóss og gengið vel. Aðrir
fóru til Gullfoss og Geysis á
sama hátt, en gekk ekki betur
en svo að niðri á Skeiðum urðu
þeir að taka rútu og þótti það
verulega miður.
Hingað hafa komið nokkrir
seglbátar á undanförnum árum,
en flestir hafa þcir haft veru-
legar hjálparvélar. Þessi bátur
hefur hins vegar engar siíkar.
Kokkurinn að elda matinn.
Hér sést áhöfnin öll um borð í bátnum.
Skipstjórinn, Peter Gottwald, í klefa sínum.
Er engin vél í bátnum og ekki
við neitt annað að styðjast en
seglin, til að komast áfram.
í bátnum er þó loftskeyta-
tæki og er það knúð rafgeym-
um, sem einnig eru notaðir til
ljósa. Ef ekki er leiði geta þeir
því ekkert gert annað en að
standa kyrrir.
Báturinn er 18 metra langur
og 23 tonna og sagður hið bezta
sjóskip.
Héðan fór báturinn til Akur-
eyrar, en fer þaðan til Shet-
landseyja og 'síðan til Kiel. Er
ætlunin að annar hópur fari þá
í siglingu sem verður styttri,
eða upp með Noregsströndum.