Vísir - 16.08.1962, Side 6
6
l/'ISIR
Fimmtudagur 16. ágúst 1962.
Tjaldstaður við Kjalvatn í Búðarhálsi sem er tanginn milli Þjórsár og Tungnaár
Leiðin er fremur greiðfærir melar. Verst er að eiga við læki
og gil, þar kemur grjótið .
Sprengisandsferð að hefjast. Fólksvagninum ekið upp á pall vatnabílsins, sem síðan öslaði
með hann yfir Tungnaá og Blautukvísl.
Ferðin yfir Sprengi-
sand um helgina gekk i
alla staði vel og sann-
færðust menn um það,
að ef Tungnaá væri brú-
uð myndu margir jeppa-
eigendur leggja leið sína
norður yfir miðhálendið.
Leiðin frá Tungnaá norð
ur yfir Sprengisand var
alls staðar fremur greið-
fær nema ef vera skyldi
síðasti kaflinn niður í
Bárðardal og yfir Mjóa-
dalsá, rétt við bæinn
Mýri í Bárðardal.
Fólksvagninn fór fremstur í bílafylkingunni eins og hann ætti öræfin.
Það bar til tíðinda í þessum
leiðangri, að sléttum og réttum
Volkswagen-bíl var ekið alla
leiðina yfir hálendið. Mikinn
hluta leiðarinnar voru þrír menn
í Fólksvagninum, en jeppar, sem
fylgdu honum báru hins vegar
mestan hluta farangurs þessara
manna. Ekki hafði Fólksvagninn
verið búinn neitt sérstaklega til
fjallaferðarinnar, ekkert gert til
að hækka hann upp á fjöðrum
eða gormum og þó komst hann
klakklaust yfir án þess að nokk
urn tíma þyrfti að draga hann
eða þá lyfta honum með hand-
afli. Erfiðast var það yfir fyrr-
nefnda Mjóadalsá, þvf að þar
náði vatnið aðeins upp á fram-
rúðuna, en Finnbogi Eyjólfsson
starfsmaður Volkswagen um-
boðsins sem var við stýrið
klöngraðist þetta á honum yfir
ána.
Framhald á bls. 10.
I Fólksvagni yfir Sprengisand