Vísir - 16.08.1962, Side 7
Fimmtudagur 16. ágúst 1962.
VISIR
Mikil hátíð í höíuðstað Norðurlands
Eftir tæpan hálfan
mánuð hefst mikil hátíð
á Akureyri. Verður þá
haldið upp á 100 ára af-
mæli kaupstaðarins og
stendur hátíðin linnu-
laust að heita má í fimm
daga. Verður þá mikið
um dýrðir í höfuðstað
Norðurlands. Bærinn all
ur prýddur og skrýdd-
ur, dansað á torgum á
kvöldin, skrautlýsingar í
miðbænum, flugeldasýn
ingar og hinar margvís-
legustu skemmtanir.
Mikil hátíð.
Akureyringar hafa jafnan
kunnað vel að halda gleði, þeir
eru skemmtimenn miklir en þó
hófsamir, söngurinn situr þar í
fyrirrúmi og á hátíðarstundum
sameinast allir bæjarbúar um
að gera sóma staðarins sem
mestan.
Hátíðahöldin sem fram fara
síðast í þessum mánuði hafa
verið lengi í undirbúningi. Og
sá undirbúningur liggur að
langmestu leyti í styrkum
höndum Hermanns Stefánsson-
ar, í þróttakennara Menntaskól-
ans. Hermann er mikill þúsund
þjala smiður, gæddur ríkri
skipulagsgáfu og hefir að auki
langa reynslu að baki í fé-
lagsmálum, eftir að hafa ver-
ið höfuðleiðtogi íþróttamanna
norðanlands í áratugi. Fátt er
til sparað, svo að hátíðahöldin
megi verða sem v.eglegust, og
er ekki að efa að undirbúningur
allur er í samræmi við það.
Blaðamaður Vísis var fyrir
nokkru á ferð á Akureyri. Nót-
aði hann tækifærið og knúði á
dyr skrifstofu undirbúnings-
nefndar inn af Flugfélagsskrif-
stofunni við Kaupvangsstræti.
Þar sat Hermann snöggklædd-
ur, umkringdur líkönum, teikn-
ingum, fánum og fleiri plöggum
og bauð fréttamanni góðan
daginn.
Mikill
undirbúningur.
— Hér er mikið í bígerð.
Hermann.
— Já, vfst má segja það. Við
höfum unnið að undirbúningn-
um í nokkurn tíma. Um hann
sér sérstök nefnd er bæjar-
stjórnin kaus undir forsaéti
bæjarstjóra. Er ég starfsmaður
hennar. Munu allir Akureyring-
ar sammára um að minnast ald-
arafmælis kaupstaðarins með
sóma.
— Hvað hafið þið svo á
prjónunum?
— Ekki vil ég ræða það í
mikil bygging og nú loks að
heita má fullgerð.
Eftir hádegið verður farið í
skrúðgongu inn á íþróttasvæð-
ið. Mun Davíð skáld Stefáns-
son frá Fagraskógi flytja hátíð-
arræðuna.
Sögusýning • hefst þennan
sýning mikii í Amarohúsinu í
Hafnarstræti. Verður sýningin,
sem er umfangsmikil, þar á
tveimur efstu hæðunum. Verð-
ur þar brugðið upp nokkurri
heiidarmynd af iðnaðinum á Ak
ureyri, en bærinn er blómleg-
ur iðnaðarbær sem kunnugt er.
Hermann Stefánsson. Að baki er íþróttavangurinn, — önnur miðstöð hátíðarinnar.
\ smáatriðum, enn sem komið er,
en á nokkur helztu atriðin skal
ég drepa.
í ráði er að hátíðin hefjist
raunverulega sunnudaginn 26.
ágúst, þótt afmælið sé ekki fyrr
en 29. ágúst, en þá verða aðal-
hátíðahöldin, svo sem gefur að
skilja.
Sunnudaginn 26. ágúst verður
opnuð sýning málverka eftir
Ásgrím Jónsson. Hefir frú
Bjarnveig Bjarnhéðinsdóttir tek-
ið að sér að velja myndirnar á
sýninguna. Hún verður haldin
í Oddeyrarskólanum. Þá er og
í ráði að bæjarkeppni í knatt-
spyrnu fari fram milli Akureyr-
ar og Reykjavíkur þennan
sama dag. Fer þá einnig fram
vígsla vallarhússins á íþrótta-
vellinum nýja, en þar eru bún-
ingsklefar, böð, fundarherbergi
fyrir íþróttamenn o. fl.
Aldarafmælið.
Aldarafmæli Akureyrar sem
kaupstaðar er ekki fyrr en rnið-
vikudaginn 29. ágúst og hefst
þá hin raunverulega afmælis-
hátíð. Elliheimilið nýja verður
vígt um morguninn, en það er
sama dag og verður hún í Gagn-
fræðaskóla Akureyrar. Verður
þar brugðið upp svipmyndum
úr sögu bæjarins, af húsum og
borgurum liðins tíma, atburð-
um og öðru. Sér Sverrir Pálsson
gagntræðaskólakennari um að
setja sýningu þessa saman.
Þá verður og haldinn sérstak-
ur hátíðarfundur í bæjarstjórn
Akureyrar og fer hann fram í
samkomuhúsinu gamla, þar
sem fundir voru haldnir um ára-
tuga skeið. Jafnframt verður
barnaskemmtun á torginu og úti
skemmtun og væntanlega dans-
að um kvöldið.
Iðnsýning.
Daginn eftir, fimmtudaginn
,30. ágúst, verður opnuð iðn-
Þá mun hinn finnski karlakór
Muntre Musikanter yæntanlega
syngja þennan dag, en 65 söng
menn eru í kórnum. Og um
kvöldið verður skemmtun á Ráð
hústorgi.
Enn hefir ekki verið gengið
frá dagskrá fyrir föstudaginn,
en á laugardaginn halda hátíða
höldin áfram.
Dagur íþróttanna.
Þann dag mun Róðramót ís-
lands verða haldið á Akureyr-
arpolli. Þá verður væntanlega
einnig handknattleiksmót, þar
sem aðkomulið keppa við Akur
eyringa. Sundmeistaramót Norð
urlands verður haldið í lauginni
en unnið hefir verið við það
í sumar að endurbæta lóðina
umhverfis laugina og fegra
hana.
Væntanlega fer Unglinga-
meistaramót íslands i frjálsum
íþróttum einnig fram á Akur-
eyri þennan sama dag.
Miðstöð hátíðáhaldanna verð-
ur þanriig íþróttasvæðið og
Ráðhústorg, segir Hermann okk
ur ennfremur. Dagana sem há-
tíðin stendur mun miðbærinn
verða fagurlega skrautlýstur og
hátalarakerfi komið fyrir í mið-
bænurn svo allir geti fylgzt með
því sem fram fer. Flugeldasýn-
ingar verða og á hátíðinni og
ýmislegt annað til skemmtunar.
Sinfóníuhljómsveit íslands
mun koma til Akureyrar um
miðjan september á vegum Tón
listarfélags Akureyrar og Ieika
í Akureyrarkirkju undir stjórn
Páls ísólfssonar.
Góðir gestir.
Til aldarafmælisins hafa Ak-
ureyringar boðið ýmsum góðum
gestum. Ber þar fyrst að telja
forseta íslands og forsetafrú,
ráðherra, fulltrúa annarra bæja
og gamla embættismenn Akur-
eyrarkaupstaðar sem nú hafa
látið af störfum. Að frátöldum
núverandi bæjarstjóra Magnúsi
Guðjónssyni, hafa aðeins tveir
bæjarstjórar verið í Akureyrar-
kaupstað. Það eru þeir Jón
Sveinsson síðar skattdómari og
Steinn Steinsen verkfræðingur.
Jón Sveinsson er nú látinn fyrir
nokkrum árum, en Steinn Stein-
sen mun væntanlega koma til
hátíðarinnar.
Formaður hátíðarnefndarinn-
ar er bæjarstjórinn Magnús
, Guðjónsson, en auk hans eiga
aæti í nefndinni þeir Jónas G.
Rafnar, Bragi Sigurjónsson, Rós
berg Snædal og Jakob Frímanns
son.
Bærinn hefir látið gera merki
bæjarins. Er það á bálum feldi
og prýðir það einnig bæjarfán-
ann sem blakta mun á hátfð-
Eftir að við höfðum fengið
framangreindar upplýsingar hjá
Hermanni Stefánssyni lagði
hann áherzlu á það, að aldrei
væri að vita nema eitthvað
breyttist í dagskránni á síð-
ustu stundu frá því sem hér er
sagt.
Akureyringar búast við mikl-
um fjölda aðkomumanna í bæ-
inn hátíðardagana. Eru þar
fremstir gamlir Akureyringar,
sem nú eru búsettir í öðrum
byggðarlögum en einnig aðrir
aðkomumenn. Munu öll hótel
bæjarins verða þéttsetin og
fjöldi fólks búa hjá vinum og
kunningjum úti um bæ.
Er ekki að efa að marga mun
fýsa norðurfarar er líður á mán
uðinn. En eins og jafnan skipt-
ir miklu hvernig viðrar er slík
hátíð skal haldin. Vonandi reyn
ast veðurguðirnir Akureyring-
um hagstæðir síðustu viku
þessa mánaðar.
Viðtal dagsins
Framhald af bls. 4.
fékk við það löngun til að kynn
ast íslandi nánar og sjá það
af eigin sjón. Ég hef staðið í
þeirri meiningu að það væri
engan veginn algengt að óvið-
komandi fólk leitaði á náðir
bókaútgefenda í Þýzkalandi til ,
að ræða við þá um efni bóka.
En ég hef persónulega allt aðra
reynslu í þeim efnum. Það hafa
margir, sem ég hef hvorki
þekkt haus eða sporð á kom-
ið til mín til að leita hjá mér
ráða og upplýsinga um Islands-
ferð. Ég hef reynt að leiðbeina
þessu fólki eftir beztu vitund
og getu. Sá síðasti sem til mín
kom, þessara erinda heimsótti
mig skömmu áður en ég lagði
af stað hingað á dögunum. —
Þetta var ungur maður. Hann
sagðist hafa skoðað íslandsbók
ina og hann spurði mig hvort
landið væri raunverulega jafn
fallegt og bókin gæfi til kynna.
Ég sagði honum að það væri
enn fegurra, og það væri bezt
að hann kynntist því af eigin
En undrun minni verður varla
með orðum lýst þegar ég veitti
því athygli í flugvélinni á leið-
inni hingað að þessi sami ungi
maður var sessunautur minn
og líka á Ieiðinni til íslands. Þá
sá ég að þetta landkynningar-
starf var ekki unnið fyrir gýg.
► Kusnetzov vara-utanríkisráðherra
Sovétríkjanna hefur tekið við af
Zorin sem aðalsamningamaður í
Genf. Afstaða Rússa þar er óbreytt.
Godber fulltrúi Bretlands segir ekki
annað sjáanlegt en að Rússar vilji
ekki semja til þess að geta haldið
áfram tilraunum.
Fulhrúaróð SpSfsfseðisffélagu
stofnað í Barðastrandarsýslu
Þann 31. júlí sl. var haldinn á
Patreksfirði stofnfundur Fulltrúa
ráðs Sjálfstæðisfélaganna í Barða-
strandarsýslu. Fundarstjóri var Ari
Kristinsson, sýslumaður og fundar-
ritari Trausti Árnason.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson,
framkvæmdarstjóri Sjálfstæðis-
flokksins flutti erindi um skipulag
flokksins og lagði fram frumvarp
að Iögum fyrir fulltrúaráðið og
rakti helztu verkefni ráðsins.
Stjórn Fulltrúaráðsins skipa: Ari
Kristinsson, sýslumaður, Patreks-
firði, formaður, Sveinn Guðmunds-
son, Miðhúsum, Reykhólasveit, Jó-
hann Jónsson, Mýratungu, Reyk-
hólasveit, Aðalsteinn Aðalsteinsson,
Hvallátrum, Flateyjarhreppi, Bjarni
Hákonarson, Haga, Barðaströnd,
Þórður Jónsson, Látrum, Rauða-
sandshreppi, Ásmundur B. Olsen,
Patreksfirði, Páll Hannesson, Bíldu
dal, HjálmaiSlÁgústss., Bíldudal, og
Hannes Friðriksson, Bíldudal.
Á fundinum voru kjörnir fulltrú-
ar í Kjördæmisráð Sjálfstæðis-
flokksins f Vestfjarðakjördæmi.