Tölvumál - 01.11.1992, Qupperneq 6

Tölvumál - 01.11.1992, Qupperneq 6
Nóvember 1992 Stefnt er að því að gera árið eftirminnilegt með ýmsum hætti og verður dagskrá afmælisársins kynnt nánar á næstunni. Styrkur til geröar oröasafns Að frumkvæði formanns RUT var stofnaður sjóður til verndar íslenskunni eftir “Tyrkjaránið” svonefnda síðastliðið vor. Nokkur fjöldi fyrirtækja gaf fé til sjóðsins. Nú hefur verið veitt úr honum og hlaut SÍ 500.000 króna styrk til útgáfu orðasafns á árinu 1993. Gefendum vil ég þakka þeirra framlag en útgáfa orðasafnsins er liður í heildarendurskoðun á Tölvuorðabók sem fyrirhugað er að komi út innan ekki allt of langs tíma. Fagráö í upplýsingatækni Hinn 26. ágúst síðastliðinn var stofnað Fagráð í Upplýsinga- tækni í tengslum við Staðlaráð íslands. Skýrslutæknifélag ís- lands er einn stofnenda Fag- ráðsins en því er ætlað að fjalla um staðla, stöðlun og notkun Punktar.... Endurvinnsla gagna Nokkur fyrirtæki sérhæfa sig í að endurheimta gögn af biluðum segulmiðlum. Eitt þeirra er breska fyrirtækið S&S Intemational, sem hefur staðla í upplýsingatækni. For- maður SÍ var kjörinn í stjóm sem unnið hefur mikið undirbúnings- og stefnumótunarstarf á liðnum vikum og mánuðum. A næstunni er að vænta nánari upplýsinga um þetta starf sem er okkur afar mikilvægt. Inngangaí Evrópusamtök skýrslutæknifélaga - CEPIS Skýrslutæknifélagið hefur sótt um inngöngu í CEPIS, sem eru Evrópusamtök Skýrslutækni- félaga. Ég bind miklar vonir við þátttökuna og tel að hún muni mynda nánari tengsl á milli félagsmanna SI og systrafélaga okkar í Evrópu auk þess sem við komumst í nánari snertingu við það starf sem fram fer á þessu sviði í Evrópu. Framkvæmdastjóra- fundur norrænu skýrslutækni- félaganna - NDU Framkvæmdastjórar norrænu skýrslutæknifélaganna hittust í Reykjavík 25. september síðast- liðinn. Skipst var á upplýsingum um það markverðasta sem er að gerast á vettvangi norrænu félaganna svo og á alþjóða- vettvangi en samstarf er á milli okkar þar. Einnig var rætt urn samnorrænar ráðstefnur á næstu árum en við eigum kost á að halda slíka ráðstefnu árið 1995. Fjölmörg önnur mál voru til umræðu og verða þeirn gerð betri skil síðar. Breytingar á ritnefnd Á liðnum vikum hafa átt sér stað breytingar á ritnefnd Tölvumála. í nefndinni hafa hætt, Sigrún Harpa Hafsteinsdóttir og Björn Þór Jónsson og vil ég fyrir hönd stjórnar og félagsmanna þakka þeim óeigingjarnt starf fyrir félagið að útgáfu blaðsins. I stað þeirra hafa tekið sæti í ritnefnd, Dagný Halldórsdóttir, Nýherja, Hjálmtýr Hafsteinsson, Háskóla Islands, Jóhann Haraldsson, Seðlabanka íslands og Magnús Hauksson, Pósti og síma, og vil ég bjóða þau velkomin til starfa við væntum mikils af samstarfinu. þróað mjög næmt grein- ingatæki til að lesa gögn af biluðum diskum. Þeir hjá S&S telja sig gcta lesið gögn af diski þótt skrífað hafi vérið yfir þau eitl skipti. Engin furða er að JxemaðaryfirvÖld siórveldanna kjósa frekar að eyðileggja úreltan tölvu- búnað en að selja hann. Falsaöir DOS- pakkar Eögrcgl uyfirvöld. í Kaliforníu og New Jersey hafa tekið í sínavörslu lóflutningavagna ogmeðþeim 150.000 ólögleg afril af stjimkerfinu MSDOS 5.0. Söluverðmætið er talið vera a.m.k. 9 milljóni r banda- ríkjadala ! 6 - Tölvumál

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.