Tölvumál - 01.11.1992, Side 8

Tölvumál - 01.11.1992, Side 8
Nóvember 1992 Ríkið og tölvumálin - setningarávarp Jóhann Gunnarsson, deildarstjóri í Fjármálaráðuneytinu og heiðursfélagi SÍ Byggt á erindi semflutt var á ráðstefnu SÍ um ríkið og tölvumálin, 24. september s.l. Inngangur Mér er það mikill heiður og á- nægja að fá að setja þessa ráð- stefnu. Ég held að hér sé fjallað um mjög áhugavert efni og tel þarft að ræða þetta einmitt á mjög breiðum grundvelli. Ríkið og tölvumálin, hvert stefnir? er yfirskrift þessarrar ráðstefnu. An þess að ég sé að lýsa van- trausti á þessa ágætu undirbún- ingsnefnd eða félagið okkar, fjarri er mér það, ætla ég að biðja ykkur, eins og skáldið sagði, að lyfta þessu upp á örlítið hærra plan og tala frekar um Ríkið og upplýsingastefnuna - hvertstefnir. Það er örlítill munur á þessu, munur á hvar áherslumar liggja. Ég ætla allavega að reyna þetta og nú skyldi það síst koma fyrir mig að taka orðið frá þeim ræðumönnum sem eiga að koma hér á eftir. Ég var í svolitlum vandræðum með hvernig ég ætti að byrja, en mér datt í hug að það væri svona tiltölulega hlutlaust að segja ykkur örlítið frá tölvumálastefnu danska ríkisins. í júní í fyrra var sett niður nefnd hjá Dönum, 14 manna nefnd. Voruþrírúrfjármálaráðuneytinu, sem fer með skipulagsmál og sam- ræmingu upplýsingamála þar, síðan voru fulltrúar frá sjö ráðu- neytum og öðrum ríkisstofnunum og svo var fulltrúi frá félagi rekstrarráðgjafa, fulltrúi fráfélagi sem heitir Kontor og data, sem eru nokkurskonar markaðs- samtök, og svo frá Dansk Data- forening, eða danska skýrslu- tæknifélaginu. Þessi nefnd hefur unnið allhratt og gaf í apríl í vor út tvær bækur. Ég sýni ykkur titlana á þeim hér á eftir. Þeir byrjuðu á því að setja sér markmið: Athyglisvert er við þetta að fók- usinn er tekinn frá véltækninni sjálfri. Það er verið að reyna að líta á véltæknina og upplýsinga- tæknina sem lið í því að hagræða í samfélaginu til þess að við þegnarnir fáum betri þjónustu og hún verðiódýrari. Það eru tvennar forsendur sem þeir sjá þarna, annarsvegar nýir möguleikar úli við sjóndeildarhringinn eða jafnvel nær, og hinsvegar að ríkiskerfið sé tiltölulega vel búið til þess að tileinka sér þessa nýju möguleika. Síðan setja þeir upp Stefna danska ríkisins í upplýsingatækni Markmið: Áþessumáratugeigi upplýsingatækninveruleganþáttíþví að viðfangsefni hins opinbera verði leysta af hendi með betri og ódýrari hætti. * Nýir möguleikar við sjóndeildarhring * Ríkiskerfið vel búið til að tileinka sér þá * Almenn stefna ríkisins í upplýsingatækni * Framkvæmdaáætlanir á tilteknum sviðum 8 - Tölvumál

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.