Tölvumál - 01.11.1992, Qupperneq 10
Nóvember 1992
Almenn stefna danska ríkisins í upplýsingatækni
* Áhersla á árangur: tryggir aö upplýsingatækni verði fléttað inn í
almenna nýsköpunar- og hagsýslustefnu.
Markaðsstýring: markaðurinn verði svo sem fært er látinn stýra
þróuninni.
Dreifing: mál verði afgreidd á lægsta skipulagsþrepi sem við
verður komið. Einungis vegna sérstakra aðstæðna skulu hærri
þrep koma til sögunnar.
- Stofnun sem heild
- Starfssvið einstaks ráðuneytis
- Ríkiskerfið í heild
- EB
og skjalavistun getur gerst sam-
tímis um leið og bréfið verður
til, og jafnvel afgreiðsla erindis í
sömu andránni. Fleira má nefna
af því tagi.
Með tækni við framsetningu
efnis eiga þeir við "multimedia"
og þá möguleika sem í þeirri tækni
felast að blanda saman texta,
grafík, hljóði og hreyfanlegum
myndum.
Er ríkiskerfið tilbuiö?
Þeir telja ríkiskeifið vel búið til
að tileinka sér nýja möguleika.
Hvarvetna á Norðurlöndum er
talið að ríkisstofnanir séu vel
búnar upplýsingakerfum sem ekki
séu nærri því að vera fullnýtt. Er
þá átt við bæði hug- og vélbúnað.
Jafnframt sé starfsfólk tiltölulega
vel kunnugt tækninni. Þetta tel
ég að við íslendingar getum allt
tekið undir varðandi okkur sjálfa.
Og með því að útlit sé fyrir
áframhaldandi hagstœða þróun
eiga þeir við að sífellt verður
hagstæðara hlutfall milli kaup-
verðs upplýsingabúnaðar og þess
afls og þeirra gæða sem fyrir
peningana fást. Auk þess verða
tæknilegir möguleikar, svo sem í
framsetningu efnis, sífellt fjöl-
breyttari.
Stefna ríkisins og
framkvæmdaáætlun
Ogþákemur almenna stefnan. í
fyrsta lagi áhersla á árangur þ.e.a.s.
tryggja á að upplýsingatækni
verði fléttuð inn í almenna
nýsköpunar- og hagsýslustefnu.
Samhliða þessu er geysimikið
lagt upp úr því að árangur sé
mældur. í fyrsta lagi geri menn
áætlanir fyrirfram um hvaða
árangri skuli náð og síðan verði
kappkostað að fylgjast með því
hvernig til hefur tekist og
árangurinn mældur jafnt og þétt.
Markaðsstýring. Markaðurinn
verði svo sem fært er látinn stýra
þróuninni, þ.e. horfið verði frá
tilskipunum og miðstýringu og
markaðurinn verði látinn ráða
ferðinni þar sem slíkt þykir væn-
legt til árangurs.
Dreifing. Mál verði afgreidd á
lægsta skipulagsþrepi sem við
verður komið og það sé einungis
við sérstakar aðstæður sem hærri
þrep koma til sögunnar. Það sem
átt er við með lægsta skipulags-
þrepi er að fundið verði eðlilegt
samhengi hlutanna, en það er oft-
ast nær stofnun. Vissir þættir
geta átt við starfsemi einstaks
ráðuneytis og eins getur verið
eðlilegt að hugsa aðra þætti frá
sjónarmiði ríkisins sem heildar.
Ég legg hér áherslu á og endurtek
orðin eðlilegt samhengi hlut-
anna, séð frá nægilega víðsýnum
sjónarhóli.
S vo taka þeir Efnahagsbandalagið
með sem sérstakan lið.
Kem ég þá að tækjunum, fram-
kvæmdaáætlunum um einstök
svið eða málaflokka. Ég sýni
hér nokkrar þeirra:
10 - Tölvumál