Tölvumál - 01.11.1992, Síða 14

Tölvumál - 01.11.1992, Síða 14
Nóvember 1992 geðþótta. Allar óskir um nýj- ungar þurfa þá að koma frá einum og sama aðilanum. Ekki er um frjálsa samkeppni að ræða og er það ekki í þágu kaupandans. Dæmi um hið gagnstæða væru kerfi sem bjóða upp á samtengdan búnað frá fleiri en einum aðila og ynnu saman eftir ákveðnum staðli. Einfalt dæmi um slíkan búnað er t.d. IBM PC samhæfð tölva. Hún keyrir mismunandi stýrikerfi og tengjanleg við net- kerfi. frá mismunandi framleið- endum og geta unnið sem ein heild. Við skulum samt hafa í huga að íslenski markaðurinn er ekki stór og auðvelt er fyrir þá sem eru að fjárfesta í tölvubúnaði að feta í fótspor annarra. Þess vegna er nauðsynlegt að fræðsla sé góð áþessusviði. Hér kemur til kasta þeirra er selja tölvubúnað til ríkisins, svo og þeirra sem starfa við ráðgjöf fyrir ríkið. Mjög mikilvægt er að halda námskeið um þær nýjungar og breytingar sem koma fram. Einnig er mikil- vægt að þessir aðilar séu tilbúnir til að prófa nýjungar og taki þeim með opnum huga. Eg hef oft sagt að þróunin á verkfærum og aðbúnaði hjá hefðbundnum iðnaðarmanni sé svipuð á 100 árum, eða einni öld, eins og hjá okkur sem erum að glíma við tölvuiðnaðinn, er á 3 til 5 árum. Ég vil ítreka það að ég tel nauðsynlegt fyrir ríkið að hafa fasta og skýra stefnu í tölvumálum sínum. Nauðsynlegt er að allir geri sér grein fyrir þeim reglum sem fylgja þarf og hér er ekki síður nauðsynlegt að fylgja stöðlum og opnum kerfum. Með því næst fram hagkvæmni í innkaupum, tryggir að ávallt sé hægt að bæta við því nýjasta á tölvusviðinu og tryggir eðlilega framþróun tölvubúnaðar hjá viðkomandi stofnun eða fyrir- tæki. Framtíöin opin kerfi eða hvað? Ég hef lýst því yfir að það sé skoðun mín að framtíðin sé opin kerfi. En hvað er átt við með opnum kerfum? Er það eitthvað sem allir geta tengst og allt á að vinna saman. Nei, hér eins og annars staðar þarf að gæta fyllsta öryggis. En þó byggir hið opna kerfi á því að tengja má saman búnað frá mismunandi fram- leiðendum, bæði á vél- og hugbúnaðarsviði. Oft hafa opin kerfi verið tengd við hugtakið "downsizing" og er þá átt við að minni tölvur taki við af stærri tölvum. Það má segja að það sé að hluta til skýringin á þessari aðferð. 14 - Tölvumál

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.