Tölvumál - 01.11.1992, Side 17
Nóvember 1992
Upplýsingastefna RSK
Öflun og úrvinnsla upplýsinga
I. Markmiö og lagaskyldur
1. Lögum samkvæmt ber RSK og skattstjórum að halda skrá um greiðslustöðu launamanna og
launagreiðenda í staðgreiðslu á staðgreiðsluári, skrá um launagreiðendur, skrá um álögð
opinber gjöld, skrá um virðisaukaskattsskylda aðila, skrá um barnabætur, húsnæðisbætur og
hvað annað er varðar ákvörðun opinberra gjalda.
2. Markmið RSK er RÉTTUR SKATTUR MEÐ RÉTTUM HÆTTI. í því skyni og vegna þarfa
í skatteftirliti og annarra skattframkvæmda heldur RSK ýmsar skrár um upplýsingar til að ná
því markmiði.
3. RSK nýtir sér opinber upplýsingakerfi til að ná frarn markmiðum sínum og heldur auk þess
viðbótarskrár eða hliðarskrár þegar opinber upplýsingakerfi fullnægja ekki þörfum RSK.
4. RSK nýtir sér upplýsingar úr óopinberum upplýsingagögnum (frá bönkum, Bifreiðaskoðun
íslands og fleirum).
5. Upplýsingar verði sóttarbeint til upplýsingaskyldra aðila (launagreiðendur, fasteignamat,
þjóðskrá, bankar og fleira) í auknum mæli í stað gjaldenda.
II. Einkenni viö framkvæmd upplýsingastefnu.
1. Gætt sé hagkvæmni.
2. Gætt sé óhlutdrægni í öflun og meðferð upplýsinga.
3. Veita gjaldendum og notendum skattkerfa góða þjónustu.
4. Sjálfvirkni verði sem mest (nútíma tölvuvæðing).
5. Öryggi gagna og upplýsinga sé tryggt.
6. Aðgengi upplýsinga sé gott.
III. Leiðir.
1. Byggja á traustum þekktum lausnum.
2. Nýta sér nýjustu tækni með tillit til staðla.
3. RSK og skattstjórar verði tengdir sarnan í víðneti.
4. Allar skrár skattkerfis verði varðveittarhjá RSK nema skrár séu hluti opinbers upplýsingakerfis.
5. Opinber upplýsingakerfi RSK verði varðveitt hjá miðlægri tölvumiðstöð.
6. Aðkeypt þjónustua tölvumiðstöðva við rekstur tölvukerfa RSK verði í lágmarki.
7. Hönnun og framleiðsla upplýsingakerfa RSK verði boðin út á almennum markaði.
8. Hönnun kerfa verði sveigjanleg þannig að fyrirvaralitlar breytingar geti átt sér stað með
lágmarkstilkostnaði.
9. Þarfagreining og viðhald hugbúnaðar verði hjá RSK.
10. Daglegt viðhald netkerfis verði hjá RSK og skattstjórum.
hálfu embættisins. Eins og sjá
má er frumskyldan að uppfylla
þær kröfur sem gerðar eru til
skattyfirvalda lögurn samkvæmt.
Rík skylda er á ríkisskattsljóra og
skattstjórum að halda ýmsar
skrár. Það er óhjákvæmilegur
hluti starfsemi þeirra stofnana að
sinna þeirri skyldu.
Markmiðasetning
Þá hefur ríkisskattstjóri sett sér
það nteginmarkmið að réttur
skattur sé ákvarðaður nreð
rétturn hætti. í hugtakinu réttur
skattur felst að öllurn gjaldendum
sé gert að greiða það sem þeirn
ber, hvorki meira né minna.
Þarfir í þágu skatteftirlits
Skatteftirlit er ákaflega þýðingar-
inikið í starfsemi skattyfirvalda.
Til grundvallar þess þarf að halda
ýmsar skrár um upplýsingar til
að ná frarn árangri í skatteftirliti.
Þá er leitað upplýsinga og fanga
í óopinberum upplýsingagögnum
17 - Tölvumál