Tölvumál - 01.11.1992, Side 18
Nóvember 1992
hjá ýmsum störum aðilum og
ekki síst það atriði að upplýsing-
areru sóttartil upplýsingaskyldra
aðila.
Fyrirframgerö skattframtöl
Takmarkið með þessu er m.a.
að fara á síðasta stigi til skatt-
aðila og láta þá gera grein fyrir
upplýsingum ef þær eru til reiðu
annars staðarfrá. Ríkisskattstjóri
stefnir að því í komandi framtíð,
ef til vill árið 1995, að skatt-
framtöl gjaldenda verði að
nokkru leyti útfyllt þegar að þau
verðasendgjaldendum. Þarkomi
fram upplýsingar urn laun, fast-
eignir, eignir, ökutækjaskrá, inn-
eignir og fleira. Gert er ráð fyrir
því að ef gjaldandi hafi engar
frekari upplýsingar fram að færa
þá sé hlutverki hans við gerð
framtalsins lokið og ekki þurfa
að sinna því meira.
Einkenni - hagkvæmni,
óhlutdrægni, öryggi,
aðgengi
Einkenni upplýsingastefnu skulu
þau helstu vera að þar ráði hag-
kvæmni, gætt sé óhlutdrægni í
öflun og meðferð upplýsinga og
gjaldendum og notendum sé veitt
góð þjónusta. Lögð er áhersla á
að sjálfvirkni verði sem mest og
þar með nútímatölvuvæðing.
Hafa verður þó í huga að tölvu-
væðing er einungis verkfæri til
þess að koma þessum hlutum í
ákveðið umhverfi. Miklaáherslu
þarf að leggja á öryggi gagna og
að aðgengi upplýsinga sé gott.
Kostnaður við
gagnavinnslu
Aðkeyptur
skýrsluvélakostnaður
Sé litið á mögulegar leiðir til að
framkvæma upplýsingastefnu
kemur ýmislegt til greina. Skoð-
um aðeins áður en lengra er
haldið hver hefur verið rekstrar-
kostnaður hjá skattkerfinu við
aðkeyptan skýrsluvélakostnað.
Aðallega er um kostnað að ræða
frá einu fyrirtæki. Vöxturinn frá
1987 - 1990 er frá 87 milljónum
og upp í röskar 200 milljónir á ári.
A árinu 1991 er þó aðeins farið
að síga niður á við og áætlaður
kostnaðuráárinu 1992 erum 160
milljónir. Sé spáð aðeins fram í
tímann þá má áætla að með mik-
illi hagkvæmni, fækkun keyrslna
og að dregið verði almennt úr
umfangi tölvuvinnslu eins og
frekast sé kostur, ásamt því að
ekki sé framleiddur neinn nýr hug-
búnaður og að fyrirliggjandi
hugbúnaður hljóti einungis lág-
marks viðhald, verði stærðar-
gráðan 130 - 140 milljónir á ári.
Vegna nokkurra ára yrði kostn-
aðurinn samanlagt nær einum
milljarði. Því er brýn nauðsyn á
að finna lausn á þessu kostnaðar-
vandamáli. Eins og sakir standa
er ekki unnt að halda áfram á
þessari braut.
Framkvæmd upp-
lýsingastefnu RSK
Lækkun kostnaðar með
dreifðri vinnslu
Þær leiðir sem hér eru raktar mið-
ast fyrst og fremst við að fara
hagkvæmari leiðir en hingað til.
Þau sjónarmið sem sett eru fram
í þessum leiðum við framkvæmd
upplýsingastefnu er að velja
traustar,þekktarlausnir. ísumum
tilfellum verður það áfram stór-
tölvuumhverfi en það má einnig
nýta sér opið umhverfi og tengja
saman RSK og skattstjórana í víð-
net. Það má velta fyrir sér þeim
möguleika að taka vissar skrár
frá aðkeyptri tölvumiðstöð sem
þar eru vistaðar og geyma þær á
staðarneti, einkum skrár sem
skattkerfið þarf að nota og í eðli
sínu þurfa ekki að vera á miðlægri
tölvumiðstöð. Það þarf einnig
að huga sérstaklega að rekstrar-
kostnaði við geymslu gagna sem
fletta þarf upp í. í fimmta lagi
þarf að huga að því að ríkis-
skattstjóri heldur ýmsar opinberar
skrár sem óhjákvæmilegt er að
séu aðgengilegar öðrum aðilum.
Þær skrár eru vistaðar hjá mið-
lægri tölvumiðstöð og yrðu þar
áfram þannig að aðilar sem eru í
viðskiptum þar með sín tölvu-
kerfi geta komist þangað til þess
að nota þær. Arangurinn af fram-
anröktu yrði að unnt væri að
draga verulega úr aðkeyptri
þjónustu tölvumiðstöðvar.
Útboö á almennum
markaði
Sé litið til framleiðslu upplýs-
ingakerfa er það skoðun ríkis-
skattstjóra að framleiðslu og
hönnun upplýsingakerfaembætt-
isins eigi að bjóða út á almennum
markaði. Nú er það því miður
oft svo að tilteknar þarfir myndast
óvænt. A grundvelli þeirra er
hafinframleiðslaátölvukerfi. Oft
er þetta ekki horft til enda og af
þeim ástæðum verður iðulega
tvíverknaður og aukinn kostn-
aður vegna þess. Það þarf þó að
hafa í huga að á undanfömum
árum hafa orðið örar lagabreyt-
ingar varðandi skattheimtu og
að ekki hefur verið nægjanlegur
tími til að undirbúa slíkar breyt-
ingar sem hefur komið fram í því
að framleiðsla tölvukerfa hefur
fyrir bragðið orðið dýrari. Slíkt
getur þó ekki gengið til lengdar,
einkum að verk af þessu tagi séu
unnin í tímavinnu.
Niðurstaðan er sú að hönnun og
framleiðsla upplýsingakerfa
verði boðin út á almennum mark-
aði. Það gerir hins vegar miklu
ríkarikröfurtil starfsmannaþeirrar
18 - Tölvumál