Tölvumál - 01.11.1992, Síða 21

Tölvumál - 01.11.1992, Síða 21
Nóvember 1992 Opin kerfi sem valkostur við stórtölvur Frosti Bergsson Greinin er byggð á erindi semflutt var á samnefndri ráðstefnu HP á Islandi. Starfsemi HP á íslandi Tölvufyrirtæki áíslenskum mark- aði eru á margan hátt ólík. Við hjá HP á íslandi höfum valið þann kost að sérhæfa okkur í því að þjóna stærri viðskiptavinum. Við seljurn t.d. ekki beint til heimila eða minni fyrirtækja og við seljum fyrst og fremst tölvu- búnað frá einunr aðila, þ.e.a.s. Hewlett-Packard. Salan er á eftirfarandi hátt: 1. Sala á PC vélurn og jaðar- tækjum til valinna söluaðila sem eru með verslun. 2. Sala í samstarfi við hugbún- aðarfyrirtæki þar sem áhersla er lögð á heildarlausn. 3. Sala til stærri fyrirtækja þar sem við bjóðum þjónustu frá A til Ö. Við gerum okkur grein fyrir því að viðskiptavinir eins og SKÝRR, RB og Flugleiðir gera mjög miklar kröfur um góða þjónustu. Við viljum skilja þær þarfir sem þeir hafa og við viljum hafa getu til þess að þjóna þeim hratt og vel. í dag leggur HP um heim allan ríka áherslu á að bjóða stór- tölvunotendum nýjan valkost þar sem aðal áherslan er lögð á öryggi en boðið upp á ódýrari lausn og meiri sveigjanleika tölvukerfis- ins sem byggir á nýjustu tækn- iþróun á tölvusviðinu. Lykilorð er RISC - opin kerfi sem byggja á stöðlum. Við höfurn ákveðið að sérhæfa okkur á nokkrum sviðum sem tengjast þessum málum. 1. Byggt hefur verið upp náið samstarf við hugbúnaðar- fyrirtæki sem hafa sérþekkingu á stórtölvuumhverfinu. Við ætlum ekki að gera alla hluti sjálfir heldur setja sarnan lausnina og kalla til þess þá sem hafa reynslu og þekkingu. 2. OpenView neteftirlitskerfi. Byggð hefur verið upp þekk- ing á því sviði því við teljum að um leið og vinnslan dreifist sé nauðsynlegt að hafa mið- stýrt eftirlitskerfi. 3. NewWave. Auðveld notenda- skil eru eitt þýðingarmesta atriðið í tölvunotkun. A- kveðið er að koma með ís- lenska útgáfu af NewWave sem byggir á Windows. 4. SoftBench þróunarumhverfi. Byggð hefur verið upp þekk- ing á því sviði og góð kynn- ingaraðstaða. Islenski tölvumarkaðurinn - Þróun PC vélar Posix/Opin kerfl Millitölvur/Lokuð kerfi ”MainframeM Áætluð velta: 1980 1992 1995 0% 60% 60 %* 0% 10% 30% 50% 15% 5% 50% 15% 5% 100% 100% 100% 1.500 m 3.000 m 3.500 i * á PC vélum verða keyrð POSIXsamhæfð stýrikerfi 21 - Tölvumál

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.