Tölvumál - 01.11.1992, Qupperneq 27
ETdagurinn
4.desember 1992
HótelLoftleiðum
ET dagurinn (eínmenningstölvudagurinn) er einn af
fjölsóttustur viðburöum sem Skýrslutæknifélagið stendur fyrir
ár hvert. Á hann mæta 120 til 150 manns sem eru gott
þversnið af þeim sem láta sig tölvur og upplýsingatækni
einhverju varða. Þó nafn viðburðarins sé "ET dagurinn" er oft
fjallað um önnur málefni en einmenningstölvur, t.a.m. það
sem áhugavert er að gerast á hverjum tíma án þess að það
rúmist innan annarra viðburða sem félagið stendur fyrir.
ET dagurinn verður haldinn á Hótel Loftleiðum, 4. desember
og hefst dagskrá kl. 13:00 og lýkur laust fyrir kl. 17:00. að
lokinni dagskrá býður Apple umboðið upp á léttar veitingar,
epladrykk og eitthvað fleira gott.
Á dagskrá verða mörg áhugaverð erindi og margir góðir
fyrirlesarar, s.s. Thor Vilhjálmsson, rithöfundur, Hjörtur
Emilsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Samskipa,
Sigurður Hjálmarsson, Taugagreiningu, Magnús Þór
Ásmundsson, rafmagnsverkfræðingur hjá Marel hf., Guðjón
Már Guðjónsson hjá Oz hf. og Heimir Þór Sverrisson. í lokin
mun svo Halldór Kristjánsson flytja annál ársins og spá í
framtíðina.
Skráning fer fram á skrifstofu félagsins í síma 27577 að venju
og lýkur 3. desember.
Skýrslutæknifélag íslands
i