Vísir - 29.08.1962, Qupperneq 12
VISIR
Miðvikudagur 29. ágúst 1962.
► Gyðingaráðið brezka hefur bor
ið fram mótmæli gegn fyrirhugaðri
fasistagöngu Sir Oswalds Mosieys
til Lundúna næstkomandi sunnu-
dag — telja hana ögrun við Gyð-
inga, og vilja láta banna hana.
HeiMarafíim
yfír tvær mffljónir
veiði s.l. sólarhring
Mikil og góð síldveiði
var síðastliðinn sólarhring.
Fengu 67 skip samtals
44.000 mál og tunnur. Mun
nú heildarafli sumarsins
vera kominn vel yfir tvær
milljónir, mál og tunnur.
Bátar voru á sömu slóðum
og áður en nú hefur Ægir
fundið síld út af Skrúði.
Flugvél frá síldarleitinni
aðstoðaði skip við að finna
Lætur af starfi
Árni Siemsen aðalræðismaður
íslands í Hamborg lætur af því
starfi um n. k. mánaðamót.
Árni var skipaður í þetta starf
árið 1957, en áður var hann ræð-
ismaður og þar áður, eða frá 1949,
vararæðismaður Islands í Hamborg.
Jafnframt hefur Árni gegnt ræðis-
mannsstarfi fyrir Island í heima-
borg sinni Líibeck um fjölda ára
og mun gegna því starfi áfram.
þau mið og fengu nokkur
þeirra mikinn afla.
Hagstætt veður var við Norður-
og Austurland sl. sólarhring. Fyrir
Norðurlandi var veiðisvæðið NA a
A 65 sjómílur frá Grímsey. Út af
Austfjörðum var veiðin einkum í
Norðfjarðardýpinu út af Glettinga
nesi og 47-55 sjóm. A af Skrúð,
en á sfðastnefndu slóðum fann Æg
ir mikið síldarmagn í gær.
Þessi skip fengu afla:
Hrafn Sveinbj. GK 800, Leifur
Eiríksson 600, Anna SI 450, Sæfari
900, Hrafn Sveinbj. GK 850, Arn-
kell SH 1000, Guðbjörg IS 500,
Einar Hálfdáns IS 1100, Jökull SH
900, Guðm. á Sveinseyri 600, Eld-
ey 600, Bjarmi 250, Björgvin 250,
Ársæll Sig. 400, Sunnutindur 500,
Súlan EA.-700, Páll Pálsson 600,
Húni 600, ÓI. Tryggvason 800,
Tálkftfirðingur 600, Steinunn 400,
Pálína 900, Halldór Jónsson 200,
Bergvík 600, Ófeigur 1000, Ljósa-
fell 500, Árni Geir 550, Gunnólfur
1109 Jón á Stapa 1000, Mummi
1000, Glófaxi 550, Heimaskagi 700
Björn Jónsson 800, Björg 800, Gull
faxi 1400, Guðr. Þork. 700, Álfta-
nes 800 Ásúlfur 700, Hugrún 600,
Skírnir 1200, Höfrungur 1050, Auð
unn 800, Ól. Magnússon 1000, Hag
barður 1000, Haraldur 1400, Jón
Jónsson 800.
Brúin fserð í heilu lagi
í gær var brúin á togaranum
ísborgu flutt úr sínum gamla
stað og á þann stað sem henni
er ætlaður, þegar ísborg er orð-
in fiutningaskip.
Brúin var fiutt um átta og
hálfan meter aftur eftir skipinu.
Hún er um 25 tonn að þyngd.
Höfðu verið byggðar undir hana
brautir til hiiðanna og síðan
skornar undan uppistöður. Flutn
ingurinn gekk vel og var lokið
skömmu eftir hádegi.
Breytingum á ísborginni mið-
ar vel áfram og standa vonir til
að þeim verði iokið um áramót.
Mun þá skipið bera urn 600
tonn, ef ekki þarf að steypa
mikla ballest í það, sem talið er
óiíklegt.
Ný vél verður sett í skipið.
Hefur gufuvélin þegar verið tek-
in úr því og verður sett í stað-
in 750 hestafla Scandia diesel
vél. Er reiknað með að hún gefi
skipinu fullhlöðnu 10—11 milna
ganghraða.
Ekki gátum við • fengið nein
ákveðin svör um hvað breyting
þessi myndi kosta, en ágizkanir
sem við heyrðum um kostnað,
eftir allar breytingamar, voru
frá sex til átta milljónir.
Myndin var tekin við opnun iðnsýningarinnar á Akureyri. Jónas G. Gafnar alþingismaður flyt-
ur opnunarræðu.
Veghgasta iðnsýning á ís-
Frá fréttaritara Vísis.
Akureyri í morgun.
í sambandi við afmælishátíð Ak-
ureyrarkaupstaðar var iðnsýning
opnuð í gær á tveim hæðum
Amaro-hússins þar sem sýnd er
framleiðsla á iðnaðarvömm á Ak-
ureyri eins og hún er í dag. Telja
menn þetta einhverja skemmtileg-
ustu og fullkomnustu iðnsýningu,
sem haldin hefur verið á íslandi
til þessa.
Á. 5. hæð Amaro-hússins sýna
fyrirtæki Sambands ísl. samvinnu
félaga og KEA, samtals 11 að tölu
hvers konar framleiðsluvörur Gefj
unar og Iðunnar, Heklu og Skó-
gerðarinnar, mjólkurframleiðslu-
vörur, kaffibrennslu, og vörur frá
Pylsugerðinni.
Á sjöttu hæð byggingarinnar
sýna 17 framleiðendur, einstakling
ar og fyrirtæki, hvers konar fram
leiðslu á iðnaðarvörum, sem fram
leiddar eru á Akureyri, þ.á.m. hús
gögn, spegla, dúka, töskur, bóka-
Framhald á bls. 5.
Stórfelldar umbætur á Iðnó
Dregur jbó ekki úr baráttu
fyrir nýju leikhúsi
Leikfélag
liefur nú í
Reykjavíkur
undirbúningi
ekki átt um nema tvo kosti að
velja, annað hvort að gera miklar
endurbætur á salnum eða hætta
starfsemi sinni með öllu. Ástandið
hefði verið orðið þannig, að ekki
hefðu selzt nema 7 til 8 fremstu
bekkirnir, nauðsynlegt væri að
tniklar endnrh^fnr á áhnrf Iselja 8 111 9 bekki ti! að fá upp 1
rniKiar enaurDæiur d anorr | beinan kvöldkostnað. Sem dæmi
um það, hve ástandið væri orðið
alvarlegt, sagði Helgi Skúlason, að
enda þótt leikritið Kviksandur
hefði verið sýnt 40 sinnum og að
Framhald á bls. 5.
sndasalnum í Iðnó. Er;
ætlunin að skipta um sæti
í salnum og hækka öftustu ,
bekkina, svo jafn vel sjáist
alls staðar í húsinu. 9. og
10. bekkur hækka um 18
cm. og 13. og 14. bekkur
um 35 cm., svo dæmi séu
nefnd. Þá er og ætlunin að
breikka svalirnar og bæta
þar við tveimur bekkjaröð-
um. Kostnaður við þessar
breytingar er áætlaður um
250—300 þúsund.
Vísir sneri sér I morgun til Helga
Skúlasonar leikara, formanns Leik-
félags Reykjavíkur, og innti hann
nánar eftir þessum breytingum.
Sagði hann, að hér væri um algert
nauðsynjamál fyrir leikfélagið að
ræða og hefðu þeir leikfélagsmenn
ftiorðimsðiir deilir
við skipstjóro
Fyrir nokkrum dögum kom til
áreksturs milli eins skipverja og
skipstjóra á norsku síldarskipi við
Austfirði. Endaði þetta með þvi að
hásetinn gekk úr skipsrúmi þegar
skipið sem er frá Koppervik kom
í höfn.
Hásetinn kom síðan með flugvél
til Reykjavíkur og fylgdi honum
lögregluþjónn til þess að fylgjast
með því að ákvæðum útlendinga-
löggjafarinnar væri fylgt. Fór há-
setinn fljúgandi út á eigin kostnað
í morgun. Varð hann að ferðast
upp á eigin kostnað en deilurnar
milli hans og skipstjórans voru svo
miklar, að hann gat ekki verið
lengur um borð.
I