Vísir - 11.09.1962, Blaðsíða 11

Vísir - 11.09.1962, Blaðsíða 11
r i j Þriðjudagur 11. september 1962. VISIR 11 SAGA gerbreytir viðhorfunum SM THIS SHOULP BE A SREAT 5HOW IF IT EVER. OPENS. THEY'VE GOT EVERYTHINö JW IN IT BUT THE ERUPTION JF\ OF AtT. VESUVIUS... IF YOU PIP J BET YOU SOT THROWN. OUT. PON'T BOTHER , ME^ CARTER... AREN'T YOU SOINS TO LOOK, STELLA? X JUST FELL FROM HEAVEN... Slysavarðstofan í Heilsuverndar- stöðinni er opin allan sólarhring- inn. — Næturlæknir kl. 18—8, sími 15030. Neyðarvaktin, sími 11510, hvern virkan dag, nema laugardaga, kl. 13-17. Söfnin Bæjarbókasafn Reykjavikur simi 12308 Þingholtsstræti 29A Útlánsdeild: 2-10 alla virka daga nema laugardaga 1-4. Lokað sunnu daga. Lesstofa: 10-10 aila virka daga nema laugardaga 10-4. — Lokað sunnudaga. Útibú Kofsvallagötu 16: 5,30-7,30 alla virka daga nema laugardaga. Útibú Hólmgarði 34: 5-7 alla virka daga nema taugardaga. - Gengið - S 1 Sterl.pund ,120,38 120,68 1 Jan ríkjad 42,95 43,06 1 Kanadadollar 39,85 39,96 100 Danskar kr. 620,88 622,48 100 Norskar kr. 600,76 o02,30 100 Sænskar kr. 835,20 837,35 100 Finnsk mörk 13.37 13.40 100 Franskir fr 376,41 378.64 100 Belgiskir fr 86,28 86,50 100 Gyllini 1192,43 1195,49 100 Svissneskir fr. 993,12 995,67 00 Tékkneskar kr. 596,4t 598,00 1000 V-þýzk mörk 1075,34 1078,10 1000 Lirur 69,20 69,38 Það kemur nokkuð oft fyrir, að sá, sem þetta párar að þessu sinni, hlusti á veðurfregnir, og er óhætt að segja, að raddir og lest- ur veðurstofumanna er nokkuð mismunandi, eins og gefur að skilja. En það er einkum ein rödd, sem vakið hefir athygli upp á síð- kastið. Þetta er ung kvenrödd, bara þægileg en með einn ávana, sem brýtur aðallögmál íslenzks fram- burðar. Rétt er þó að geta þess, að þessi framburðarskekkja kemur aðeins fram á einu eða tveimur orðum, og er annað orðið ágætt, þegar sagt er frá skyggni á hinum ýmsu stöðum. Þá segir stúlka þessi ekki „skyggni ágætt“ með áherzlu á fyrsta atkvæði, heldur „skyggni áGÆTT" með áherzlu á síðara at- kvæði orðsins, en slíkt er rangt í íslenzku. Sá, er þetta ritar, heyrði þetta greinilega nokkrum sinnum um mánaðamótin ágúst-sept., og veit um fleiri, sem tekið hafa eftir hinu sama. Hins vegar virðast veður- stofumenn ekki hafa tekið svo eftir þessu, að þeir leiðrétti stúlkuna og kenndu henni hið rétta. Það mættu þeir þó gjarnan hafa gert, ef þeir hlusta þá á veðurfregnir. Párinu hefir verið skýrt frá ein- kennilegri og vafasamri þjálfunar- aðferð, sem viðhöfð er á Framvell inum fyrir norðan Sjómannaskól- ann. Þar eru smásnáðar þjálfaðir þannig, að þeir eru jafnvel látnir taka stærri stráka á bakið og klöngrast þannig með þá upp og niður brekku með klettastöllum. Manni þeim, er tók eftir þessu, fannst rétt að benda páriiiu á þetta og biðja það fyrir fyrirspurn um það, hvort ekki sé haft eftirlit íþróttalæknis með þvl, að ekki sé reynt um of á krafta óharðnaðra Stjörnubíó sýnir um þessar mundir norska gamanmynd, er i nefnist „Svona eru karlmenn“, með Inger Marie Andersen, Odd Borg, Ingerid Vardund og Grynet Molvig í aðalhlutverk- um. Eru hér á ferð sömu leik- ararnir og í kvikmyndinni „Allt fyrir hreinlætið“. Þetta er eins konar framhaldsmynd — um ^ hlutverk eiginmannsins. Fyrirlestur Pólverja Dr. Stanislaw Helztynki prófessor við Varsjárháskóla flyt- ur fyrirlestur f boði Háskóla Is- lands í dag (þriðjudag 11. sept.) kl. 17.30 í 1. kennslustofu. I' fyrirlestrinum verður rætt um pólska rithöfunda, er fjallað hafa um íslenzk efni. Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku, og er ölium heimill aðgangur. unglinga eins og þeirra, sem þarna eru oft í þjálfun. Læknisskoðun mun talin nauðsynleg, þegar um fullfríska íþróttamenn er að ræða, og ekki ætti síður að vera það, þegar óharðnaðir ungiingar eru annars vegar. Bella fer að koma, en er bara að fara í gönguskó. Carter Cambell, farðu strax inn í herbergið þitt og vertu ekki að njósna um mig. Ég var aðeins að furða mig á um hvern þú værir að njósna um, Stella. Þegar stúlkan sem ég ætlaði að giftast horfir svona á aðra menn, þá fær það mig til að taka heljarstökk aftur á bak. Ó, hann er lítilfjörlegur teik- i ari í aukahlutverki, en hann er óskaplega sterkur, ég var eins og fiður í höndunum á honum. Flugfélag Islands hefir unnið mikilvægt starf i sumar í þágu landkönnunar, og hefir boðið hing- að -40-50 manns, starfsmönnum flugfélaga og ferðaskrifstofa. Vísir átti í gær tal við Svein Sæmundsson, blaðafulltrúa Flug- félagsins, um þessi mál. og komst hann svo að orði, að viðhorfin í móttöku ferðamanna væru nú ger- breytt með tilkomu Hótel Sögu — hefðu möguleikar á að veita vax- andi fjölda ferðamanna góðan beina mjög batnað, og allir út- lendingar, sem gistu í Sögu lykju upp einum munni um, að gisti- húsið væri fullkomlega sambæri- legt við hið bezta erlendis, bæði að því er snerti húsakynni, beina og verðlag. Fyrir viku fóru héðan 11 enskir ferðaskrifstofumenn eftir nokkurra daga dvöl. Áður höfðu hér verið norskir ferðaskrifstofumenn, og í morgun fór héðan hópur Frakka, sem starfandi eru í söludeildum flugfélaga í Parfs. Var sú för und- irbúin af skrifstofu Flugfélagsins f London og Áir France í Parfs. Loks er svo væntanlegur hingað hópur ítalskra ferðaskrifstofumanna um næstu mánaðamót. Farið er með alla þessa hópa á ýmsa staði í grennd við borgina, sem markveðastir eru frá sjónar- miði ferðámanna, og þeim sýnt hvaða aðstöðu við höfum til að veita ferðamönnum viðtöku og blina. Þegar þeir koma heim, vita þeir upp á hvað ísland hefir að bjóða fyrir ferðamenn, og geta veitt því fólki, sem til þeirra leitar, allar nauðsynlegar upplýsingar. f því sambandi má hafa eftir orð eins Frakkans, sem sagði við Svein: „Þegar fólk spurði mig um ísland áður, hélt ég, að hingað væri ekki komandi sakir sífelldra rigninga. Nú sé ég hins vegar, að hér getur líka verið fallegt, þótt hann rigni". Flugfélagið hefir varið miklu fé til þessarar útbreiðslustarfsemi, en það mun koma aftur margfaldlega, þegar gestirnir fara að ráðleggja mönnum ferðalög til fslands. Fuglarannsóknarstöð sett á fót í Garðskagavtta Ákveðið hefur verið að setja á fót fuglarannsóknarstöð í Garð- skagavitanum gamla. Verður hún stofnuð að tilhlutan Náttúrugripa- safnsins, en áhugamenn munu sjá um að koma öllu f það ástand sem er nauðsynlegt. Þegar hefur bor- izt 50 þús. kr. styrkur frá Vísinda sjóði til framkvæmdanna. Garðskagavitinn gamli hefur ekki verið í notkun í fjölda mörg ár og stendur aðeins búkurinn einn uppi eins og er. Þarf því að innrétta allan vitann, svo hægt sé að vinna þarna að fuglarannsókn- um og dvelja í vitanum um nokk- urn tíma. Öll skilyrði til fuglarannsókna eru hin ákjósanlegustu á þessum slóðum og um fartímann er mjög mikið um fugl. Dr. Finnur Guðmundsson hefut tjáð blaðinu að framkvæmdir við byggingu rannsóknarstöðvarinnar verði að mestu, ef ekki eingöngu unnar af áhugamönnum. Gera þeir vonir um að geta hafið vinnu í haust. Nærfatnaður Karlmanna og drengja, fyrirliggjandi. L. H MULLER

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.