Vísir - 29.09.1962, Side 4

Vísir - 29.09.1962, Side 4
VÍSIR . Laugardagur 29. september 1962. Hvað veizt þú um þjóðfélagsmál? Einn vetur hefir ný- stárleg stofnun starfað hér í höfuðborginni. — Hún heitir Félagsmála- stofnunin og veitir Hann es Jónsson félagsfræð- ingur og fulltrúi í Utan- ríkisráðuneytinu henni forstöðu. Markmið stofn unarinnar er að kenna mönnum hagnýt þjóðfé- Iagsvísindi — gegn vægu gjaldi. Hér er ekki um ríkis- stofnun að ræða heldur einkaskóla, sem settur Hefir verið á laggimar vegna þess að forstöðu- manni hans þykir sem við íslendingar séum of vankunnandi í þeim fræðum, er fjalla um þjóðfélagið sjálft, grund- völl efnahagslífsins og samskipti þegnanna. Okkur á Vísi fannst vel til fundið að spjalla dagstund við Hannes um skóla hans og fer viðtal- ið hér á eftir. —Hver er tilgangurinn með stofnun Félagsmálastofnunar- innar? — Þegar Félag'smálastofnunin var skrásett 24. október, 1961, var tekið fram, að tilgangur hennar væri þríþættur 1) að annast alþýðufræðslu um félags-, efnahags- og verka- lýðsmál. 2) að annast rannsóknarstörf á sviði félags- og efnahagsmála. 3) að annast útgáfustarfsemi. Námsflokkastarfsemin, sem miðar að því að fullnægja fyrsta Iiðnum, hefur verið mest áber- andi í starfseminni fram að þessu. Eigi að síður hefur verið unnið að hinum atriðunum af fullum krafti, eins og koma mun í ljós á næstunni". — Og hvernig varð nú reynsl- an af þessari nýstárlegu starf- semi f fyrra? — Betri en búizt var við. 105 nemendur tóku þátt f námskeið- unum sl. vor og náðu allir nokkr um árangri og sumir ágætum. — Hvaða greinar voru kennd ar í fyrra? — Tvær greinar: Fundarstörf og mælska og erindaflokkur um verklýðs- og efnahagsmál. Er- indaflokkurinn byggðist á rann sóknarstörfum, sem sérfræðing- ar þeir, er erindin fluttu, höfðu annazt. Úrval erindanna er nú í prentun og kemur að forfalla- lausu út í fyrstu viku október undir nefninu Verkalýðurinn og þjóðfélagið. Þetta verður fyrsta bókin í bókasafni Félagsmála- stofnunarinnar. — Hvers konar bækur verða í þessu bókasafni? — Fyrst og fremst skemmti- legar og fróðlegar bækur á sviði félags- og efnahagsmála, sem vonandi eiga eftir að vera góðar handbækur fyrir stjórnmála- menn, verkalýðsleiðtoga og félagsmálafrömuði. Motto bóka- safnsins er: Smáar bækur, mikið efni“. ir þátttöku í námsflokkunum? — Hún er lang-mest eftir — Nú verða greinarnar fjór- ar, þ. e. fundarstörf og mælska, verkalýðsmál, þjóðfélagsfræði og hagfræði". hæfni okkar og mælsku. — Þessu til viðbótar má geta þess, að árangursrík ástundun sumra atvinnugreina byggist að verulegu leyti á þvf, að viðkom* andi hafi þjálfað sig í framsagn- arlist og í að skipuleggja mál sitt. Þetta á að sjálfsögðu fyrst og fremst við um kennarana en einnig um lögfræðinga, presta o. fl. Ég held t. d. að kennarinn, sem kallaður er „lélegur" kenn- ari sé yfirleitt ekki verr að sér í þeirri grein, sem hann kennir, heldur en kennarinn, sem kallað ur er „góður“. Það, sem í flest- um tilfellum gerir gæfumuninn fyrir þá og nemendurna, er, að sá „góði“ hefur þjálfað sig í að skipuleggja betur efni máls síns en hinn og e. t. v. lagt sig eftir áheyrilegri framsögn. — En þetta eru jú tvö undirstöðuatrið in, sem við tökum fyrir við mælskukennsluna. — En hvað um þjóðfélags- fræðina? Er hún ekki merkileg en vanrækt fræðigrein hér á landi? Hannes Jónsson félagsfræðingur. um gagnfræðaskólum, öðrum ekki, er kennd félagsfræði 1 tíma í viku í efsta bekk. í Menntaskólanum er talið að ein hvert kennslukák fari fram í félagsfræði samhliða sögunámi; í iðnskólum, sjómannaskólum og húsmæðraskólum er félags- fræði yfirleitt ekki kennd. Og, það sem mér finnst alvarlegast af öllu, Kennaraskóli íslands hefur félagsfræði ekki m.jðal sérmenntaðra eða „hvítflibba"- launþega“. — Er þá að verða breyting á íslenzkri stéttaskiptingu? „Þjóðfélags- og atvinnuþróun- in það sem af er þessari öld virðist stöðugt hafa verið að breyta tölulegri þýðingu at- vinnugreinanna, og framleiðslu- og þjónustuhlutverk stéttar vinnuseljenda virðist stöðugt v^ra að fá breiðari grundvöll. SvoWð er oð finna hjá Félagsmálastofnuninni — Og hverjir kenna þessar greinar? — Bjarni Bragi 'Jónsson, hag- fræðingur, kennir hagfræðina en ég hinar greinárnar. —■ Er eftirspurnin sæmileg eft fundarstörfum og mælsku. — Eru það þá helzt upprenn- andi stjórnmálamenn, sem sækj ast eftir mælskuþjálfun? — Það má vera, að eitthvað sé af þeim. Hins vegar er það mikill og almennur misskiln- „Jú, það er víst óhætt að segja hvort tveggja. Þjóðfélags- fræðin fjallar fyrst og fremst um ríkið og einkenni þess, stjórnvöldin og samband hins opinbera og einstaklingsins og félagshópa innan ríkisins, rétt- indi og skyldur einstaklinga og stjórnvalda, samskipti ríkisins við önnur riki svo og kenning- ar um stjórnskipulagið. Um það verður, held ég, ekki deilt, að fræðigrein, sem fjallar um þetta ingur, að mælskan sé Iærdóms-| grein stjórnmálamanna einvörð- ungu. Margvísleg fundarstörf eru undirstaða hins þingræðis- lega Iýðræðisskipulags, sem hér ríkir, og allir erum við meðlimir f margs konar félagshópum, svo sem íþróttafélögum, verklýðs- félögum, starfsmannafélögum o. fl. félögum, og ef við viljum taka virkan og ábyrgan þátt í starfi þéirra, þá reynir á funda- efni, er hin merkilegasta, og lýðræðisþjóðfélag, sem ekki hefur tekið þessa fræðigrein inn í hið almenna skyldunám sitt, hlýtur að teljast vanþróað á þessu sviði og má búast við stjórnmálaþroska þegnanna í samræmi við það. Eftir þvf sem ég veit bezt, þá hljóta börn þau, sem ljúka skyldunámi 14 ára hér á landi, enga skipulega fræðslu í félagsfræði, en í sum- nájnsgreinanna. Við þetta má 1 svo bæta, að þar sem félags- fræði er kennd hér á landi, þá er kenndur aðeins lítill angi af henni, þ. e. íslenzk þjóðskipu- lagslýsing. Þetta stafar, held ég, m. a. bæði af kennslubókar- skorti og kennaraskorti.“ — En hvað viltu segja okkur um rannsóknarstörfin? Hvaða rannsóknir eru t .d. í gangi núna? „Þær eru tvær. Önnur Fjöl- skyldan og hjónabandið, og nið- prstöður hennar verða væntan- lega birtar á vornámskeiði Fé- lagsmálastofnunarinnar um sama efni. Hin er um íslenzk launþegasamtök, mikið verk, sem ég býst ekki við að ljúka að fullu fyrr en 1964/5.“ — Liggja nokkrar athyglis- verðar niðurstöður fyrir ennþá varðandi launþegasamtökin? v.Já, ég býst við að það rnegi segja það. Bráðabirgðatafla um umfang íslenzkra launþegasam- taka 1960 sýnir t. d„ að það fólk, sem lengi var talið mynda hina eiginlegu verkalýðsstétt, þ. e. verkamenn, sjómenn, verka konur og iðnverkafólk, telur að- eins um 58% af meðlimafjölda launþegasamtakanna, en 42% launþega er í félögum iðnlærðra, — En við skulum ekki fara nán- ar út í þetta núna, þar sem að rannsóknin er skammt á veg komin og bráðabirgðatölurnar verða birtar í bókinni Verka- lýðurinn og þjóðfélagið, sem kemur út á næstunni.“ — Má ég að síðustu spyrja, hvers vegna þú rekur Félags- málastofnunina í formi einka- fyrirtækis? Væri ekki æskilegt að stofna ríkisfyrirtæki um þessa starfsemi? „Þægilegra, öruggara og á- hættuminna fyrir þann, sem að þessu vinnur, jú. En æskilegra? Það er annað mál. Mér virðist, að það sé hagstæðara fyrir alla aðila að svona starfsemi sé rek- in af óháðum aðila, sem ,allt hpfur að vinna við að halda sér utan við pólitíska togstreytu. Ríkið gæti svo veitt starfsem- inni nokkurn styrk til fræðslu- og rannsóknarstarfa eins og það gerir jafnan til einkaskóla og skóla í félagseign. Ég held að það yrðu slæm skipti fyrir ríkið ef sett yrði á stofn ríkisstofn- un um slíka starfsemi, þar sem að þess konar ríkisstofnun mundi að líkindum fljótlega unga út embættismönnum og kostnaðarliðum í samræmi við Parkinsonlögmál." t

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.