Vísir - 01.11.1962, Side 3
öv
Ein af þeim íþróttum, sem
iítið hefur borði á hér á Iandi,
er judo, eða japönsk glfma. Þó
æfa hana hér um 60 manns f
vetur, sem er meira en sumar
aðrar íþróttir geta státað af. Er
það Glímufélagið Ármann, sem
stendur fyrir þessu.
Kennari í íþrótt þessari er
Sigurður Jóhannsson, sem hefur
hæstu gráðu sem hægt er að
fá, áður en mcnn teljast tll hóps
meistara. Er við komum á æf-
ingu hjá honum, sagði hann
okkur meðal annars að margir
kæmu í æfingamar fyrst, tii að
Iæra slagsmál, en það breyttist
þó fljótlega. Menn fengju fljótt
áhuga á þessu sem íþrótt.
Mikilvægasta atriðið, sem
mest þarf að þjálfa, er jafnvæg-
isskyiyð. íþróttin byggist á því
að menn missi aldrei jafnvægið
og haldi því við þyngdarpunkt
líkamans, sem er rétt neðan við
mittið.
Ekki eiga venjulegir menn
mikla möguleika á því að ráða
við þá sem hafa þjálfað þetta.
Lendi þeir í átökum við menn
sem Iært hafa vita þeir varla
hvað komið hefur fyrir, þegar
þeir liggja f gólfinu. Sigurður
sýndi blaðamanninum nokkur
tök og fór vægilega að, en ekki
verður séð í fljótu bragði að
neinar vamir séu við þeim
brögðum sem beitt er.
Á efstu myndinni sést svoköll
uð gólfglíma, sem á japönsku er
nefnd katame-waza.
Á myndinni að neðan til
hægri sést bragð þar sem mót-
stöðumanninum er kastað yfir
öxiina.
Til vinstri er svo bragð, sem
Sigurður segir að mætti kalla
sniðglfmu á lofti. Takið eftir'
því að önnur höndin stendur
alltaf út frá likamanum. Er það
gert til að geta barið henni í
gólfið, rétt áður en aðrir hlutar
líkamans kom við. Minnkar
þetta höggið mjög, þegar menn
koma niður og kemur f veg fyr-
ir beinbrot. Þetta er það fyrsta
sem mönnum er kennt, áður en
þeir byrja að æfa glfmuna.
(Ljósm. Vísis, B.G.)
E