Vísir - 01.11.1962, Blaðsíða 4

Vísir - 01.11.1962, Blaðsíða 4
4 VÍSIR . Fimmtudagur 1. nóvember 1962. * Eg óttast, að mennirnir snúi huga sínum frá guði Jónas Þorbergsson fyrrverandi útvarpsstjóri. Nýlega er komin út bók um spíritisma eftir Jónas Þorbergsson fyrr- verandi útvarpsstjóra, en hann hefur um árabil helgað sig málefni spírit- ismans. Hér á landi hef- ur löngum verið mikill á- hugi á eilífðarmálum og þess vegna hefur Vísir komið að máli við Jónas í tilefni af útkomu þess- arar bókar, „Líf er að loknu þessu“. Samtal það sem hér fer á eftir, fjall- ar þó ekki um bókina, heldur um skoðun hans á eilífðarmálum almennt og persónulega reynslu. Trú eða vísindi. Við hittum Jónas Þorbergsson snemma dags að heimili hans, hann er hvatlegur, öruggur í tali og vafningalaus. Við snúum okkur því beint að efninu og spyrjum: Er spíritismi- trú eða vísindi? Hann svarar: Spiritismi er rannsóknarstefna og þvf í sjálfu sér vísindi. Hann er fyrst og fremst leit að sannleikanum um lífið eftir dauðann, sem er kjarni allra trúarbragða. öll trúarbrögð, þjóðsögur og þjóðsagnir virðast styðja það, að mennimir hafi allt frá þvf, er joeir gerðu sér grein fyrir tilveru sinni, verið að sjá og hlusta inn á næsta tilverusvið. Er nauðsynlegt að sanna ann- að líf? Ég álít þörf á að sanna þetta. Eins og ástatt er í veröldinni nú, álít ég þetta mikilvægasta málið í heimi. Kærleikur manna á milli, ekki sízt kærleikur ástvina og skyldmenna er sterkasta kennd- in, sem ræður í lífi manna og jafnframt sú mikilvægasta. Sár- asta spurningin í hjarta sérhvers heilbrigðs manns verður venju- lega einhvern tíma á ævinni spurningin um það, hvort horfnir ástvinir lifi'áfram, og hvort nokk ur von sé þess að hitta þá aftur og njóta ástúðar þeirra. Fullnægjandi svar. Er þetta þá ekki í rauninni eigingimi einstaklingsins? Þetta er einstaklingsbundið og það, sem honum verður fyrst fyrir að hugsa um síðasta spöl- inn, þegar samfylgdin stöðvast svo hastarlega við moldarbing- inn. Að því er mig sjálfan varð- ar, missti ég móður mína 8 ára gamall, og móðurmissirinn mun að mjög miklu leyti hafa mótað líf mitt og hugarfar í þessum efnum. Og þessi sára spurning þjáði mig fram eftir allri ævi og varð þess valdandi, að ég hef lagt á það mikla stund að leita til beztu miðla utanlands og inn- an. Og ég tel mig hafa fengið fullnægjandi svar. Er þar um að ræða einhverj- ar beinar sannanir? Ég hef haft nálega 20 ára samstarf við Hafstein Björnsson miðil, sem ég samkvæmt kynnum mínum af mörgum miðlum tel vera miðil á heimsmælikvarða á hæfileikasviði sínu sem trans-, sannana- og skyggnimiðil. Og um þá reynslu mína fjallar nýút- komin bók mín. En stærsta reynsla mín má teljast vera sú, að ég hef oftar en einu sinni ver- ið einn Islendinga á líkamninga- fundi hjá Einari Nielsen í Kaup- mannahöfn, þar sem fyrri kona mín, sem andaðist árið 1923, hef- ur komið fram líkömnuð og lagt mig undir vanga sinn. Ég hef fundið tár hennar renna niður kinnar mínar. Ég hef getað skoð- að nákvæmlega andlit hennar og RÆTT VIÐ Já, það tel ég hiklaust. Það er það, sem ég tel nauðsynlegt. Og ekki sízt mundi það breyta trúarlífi manna. Ég óttast efnis- hyggjuna, sem er í svo stórkost- andlegri reisn um allar byggðir þessa lands. Samkvæmt minni hyggju eins ' óg nú er háttað í veröldinni verður helgasta og sterkasta vé trúarinnar og þar með kirkjunnar í hjarta sérhvers manns, sem hefur óbifanlega trú studda af sannreyndum á fram- haldslíf allra manna. ■ "i\ Uppspretta > * allrar orku. Hvað er að segja um manninn og tengsl hans við æðri máttar- völd? Okkur hefur verið kennt, að maðurinn sé líkami og sál. Ég vil snúa þessu dálítið við og segja, að maðurinn sé fyrst og fremst andi (ego), sál og líkami. Líkaminn, sem við störfum í hér á jörð, tilheyrir efni jarðarinnar, ferst og hverfur aftur til jarðar- innar. Þá leysist næsti líkami, sem hefur öldutíðni í samsvörun við næsta tilverustig, og síðan hver líkami af öðrum, eftir því sem manninum þokar áfram á næstu tilverustigum. Þetta er að vísu kenning guðspekinga, en ég er henni alveg sammála. Mín skoðun er, að það, sem við köll- um almætti og enginn getur skil- greint, ekki guðspekingar heldur, sé uppspretta allrar orku, að orka sé undirstöðuverund alls, sem er í alheimi. Allir sýnilegir og á- þreifanlegir hlutir okkar takmörk uðu skilningarvita séu fyrirbæri geislunarinnar frá þessari upp- sprettu. Miðilshæfileikar. Hvað er miðilsgáfa, og hvern- ig er henni háttað? JONAS ÞORBERGS S.-Afríkustúdentar heiðra LUTHULI SON UM EILIFÐARMAL Það hefir vakið mikla athygli í S.-Afríku og víðar, að stúdent ar I S.-Afríku hafa heiðrað blökkumannahöfðingjann Albert Luthuli. Það var Luthuli, sem fékk friðarverðlaun Nóbels á síðasta ári, og hlaut hann þau fyrir frið samlega baráttu sfna fyrir rétt- indum blökkumanna f S.-Afríku, en stjórnarvöld þar hafa beitt aðferðum lögregluríkis til að halda svertingjum og öðrum þel dökkum mönnum niðri. Stúdent ar sýndu hug sinn til slíkra stjórnarhátta valdhafanna með þvl að kjðsa Luthuli heiðurs- forseta samtaka sinna fyrir starfsárið 1962—’63. Hefir Lut- huli tilkynnt, að hann muni þiggja kjör þetta, þótt ekki sé víst, að hann geti gegnt störf- um, sem þessu fylgja. Stafar það af því, að honum er bannað að fara úr Stranger-hverfi sem er skammt frá Durban að við- lagðri refsingu. En stúdentar hafa svarað, að ekki gerði til, þótt Luthuli sitji heima, því að ætlunin hafi fyrst og fremst verið að auðsýna samúð með baráttu hans. hendur. Og hún hefur talað við mig undir vanga sinn. Ég hef sínu, íslenzku, með sínum sér- stæða málrómi og öðrum þeim auðkennnum í tali hennar, sem ég taldi, að ekki gæti farið milli mála. Ég óttast efnishyggjuna. Teljið þér, að það mundi ger- breyta breytni manna, ef hægt væri að sanna þeim framhaldslíf? legri framrás í sambandi við vfs- indaframfarirnar og tækniþróun- ina. Ég óttast, að mennirnir snúi huga sínum algerlega frá guði og almættinu og fari að trúa á mátt sinn og megin. Hinar ev- angelísku lútersku kirkjur á öll- um Vesturlöndum eru að tæm- ast. Það tel ég hættulegt. í gegn- um allar aldir kristindómsins hefur kirkjan verið trúar- og sáluhjálparathvarf manna. I gegn um alla okkar eymd á liðnum öldum hafa prestarnir haldið uppi Ég lít svo á, að miðilsgáfan sé bundin því lögmáli, að nokkrir, að vísu tiltölulega sárafáir menn í veröldinni, séu gæddir þeim hæfileika, að þeir fari svonefnd- um sálförum. En sálfarir er það, að næsti líkami vfkur sér út úr jarðlíkamanum, getur farið sinna ferða um svið jarðarinnar og önn ur svið, sem eru f samræmi við öldutfðni hans, og komið skynj- un sinni og reynslu inn í dag- vitund líkama sfns gegnum svo- nefndan silfurstreng, sem tengir líkamina saman. Þegar maðurinn fer alfarinn úr líkama sínum á jörðinni við svokallaðan dauða, er klippt á þennan streng. Hann gegnir hlutverki naflastrengs hins nýfædda barns á jörðinni, sem tengir barnið við móður sfna.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.