Vísir - 01.11.1962, Síða 8

Vísir - 01.11.1962, Síða 8
8 Utgefandi: BlaðaUtgáfan VISIR. Ritstjórar: Hersteinn Pálsson, Gunnar G. Schram. Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson. Fréttastjóri: porsteinn Ó. Thorarensen. Ritstjómarskrifstofur Laugavegi 178. Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3. Áskrifstargjald er 55 krónur á mánuði. I lausasölu 4 kr. eint. — Slmi 11660 (5 línur). Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f wmii iinijimu—iiiiiiihihii n ■UHmWIIWiH'—WMIWI—>!■ Mikiö alvörumál Dómsmálaráðherra Bjarni Benediktsson lýsti því yfir á þingi í gær að það hefði ekki verið að ófyrir- synju, sem vakin var athygli á aukinni neyzlu deyfi- iyfja hérlendis. Væri hér um vandamál að ræða, sem rannsaka þyrfti til hlítar. Vitnaði hann í skýrslur embættismanna um að neyzla deyfilyfja hefði auk- izt hér allverulega síðustu árin. Vísir hóf fyrstur blaða skrif um þessi mál fyrir hálfum mánuði og vakti athygli á því að hér væri að skapast nýtt þjóðfélagsvandamál. Ýmsir aðilar, m. a. bæði önnur dagblöð og nokkrir lyfjafræðingar, risu þá upp og töldu hér mjög ýkt og hæpið að orða þessi mál opinberlega. Yfirlýsing dómsmálaráðherra sýnir að þessir að- ilar höfðu á röngu að standa. Það var sjálfsagt og bráðnauðsynlegt að varpa ljósi á þessi mál og draga þau fram úr skúmaskotum. Og það er hlutverk blaðanna að vara við og vekja at- hygli á slíkum vandamálum. Því hlutverki gegna þau ekki með úrtölum eða þögninni. Það er gleðilegt að dómsmála- og réttargæzlu- yfirvöld skuli hafa hrundið af stað ítarlegri rannsókn í þessu máli og jafnframt að nákvæmar skýrslur hafa verið gerðar opinberar. Fram hefir þar komið, að nokkrir læknar virðast hafa verið allt of örlátir á deyfilyfjaseðla. Listi með nöfnum þeirra er í höndum lögreglu og dómsmálayfirvalda og eftirlit mun verða mjög hert með þessum litla hóp manna. Deyfilyfin bjóða eiturlyfjanautn heim. Því ber að byrgja brunninn í tæka tíð. Það verk er nú hafið og fagnar Vísir því að svo er. Beð/ð úrskurðar Þess er að vænta, að sjúkrahúslæknarnir virði þau tihnæli ríkisstjórnarinnar að gegna áfram störf- um þar til Félagsdómur hefir kveðið upp dóm í ágrein- ingsefni því sem fyrir honum iiggur. Ríkisstjórnin lýsti því yfir að hún mundi gera sitt til þess að málinu yrði hraðað sem unnt væri fyrir dómnum. Ljóst er, að uppsagnir læknanna munu skapa vandræðaástand á sjúkrahúsunum og með tilliti til þess virðast það engir afarkostir að þeir gegni störfum sínum áfram í fáa daga þar til úrskurður dómsins er genginn. Heimildin til handa yfirlæknum, sem veitt var ! gær, þess efnis að þeim sé heimilt að kveðja til sér- fróða lækna til einstakra brýnna nauðsynjaverka, mun þó koma í veg fyrir að neyðarástand skapist í þess- um efnum og var það skref rétt og sjálfsagt. Bæði ríkisstjórnin og allur almenningur hafa full- an skilning á málstað lækna og kröfum þeirra um kjarabætur. Hins vegar er það réttarágreiningurinn, sem tafið hefir málið, ágreiningurinn um það, hvort uppsagnir þeirra eru löglegar. V í SIR . Fimmíuúugur 1. nóvti..'uer 1962. Erích Honecker æfði unga kommúnistG! í meðferð skotvopnn Tjegar rætt er um hver muni verða eftirmaður Ulbrichts sem foringi austur-þýzkra kommúnista mun Erich Honec- ker verða einn þeirra sem lík- legastir verða taldir í þessa æðstu stöðu á yfirráðasvæði Rússa í Þýzkalandi. Stjómmála ferill hans I kommúnistaflokkn um hófst fyrir fjórum árum. þegar hann hélt ■ ræðu til að styrkja Ulbricht, og dæmdi , mjög harkalega fyrri foringja flokksins Schirdewan og félaga hans sem hann kallaði óvini fiokksins. I dag er þessi stofn- andi og foringi æskulýðsfélags kommúnista F.D.J. (Frjáls þýzk æska) Erich Honecker valda- mesti maður næst Ulbricht. Áhrif hans í austur-þýzkum stjórnmálum eru þannig miklu meiri en þau virðast á yfir- borðinu. Erich Honecker. ■: 1 j^rich Honecker er sonur námuverkamanns sem var kommúnisti af lífi og sál. Hann fæddist í Saar fyrir fimmtíu árum og ólst upp í hugsjóna- heimi æskulýðsstarfs kommún- ista. Þegar hann var tíu ára lét faðir han: skrá hann í sam- tök ungra kommúnista sem köll uð voru „Ungir brautryðjend- ur“. Tveim árum seinna gekk hann í unglingafélagið og þeg- ar hann var 18 ára varð hann meðlimur kommúnistaflokksins. Þegar nazistar tóku stjórn Þýzkalands f sínar hendur hafði Honecker unnið sér nafn sem ung - kommúnisti og skipulagði félög ungmenna. Hann vann að þessum störfum sínum á ólög- legan hátt en í Berlín komst upp um störf hans og Gestapo handtók hann og dæmdi hann í tíu ára þrælkunarvinnu. ■%7brið 1945 þegar Rauði her- inn hertók Mið-Þýzkaland varð Erich Honecker leystur úr fangelsi og tók hann þegar að skipuleggja æskulýðsstarf kommúnista á svæðum þeim sem voru undir sovézkum yfir- ráðum. Á fyrsta þingi „frjálsrar æsku“ sem var haldið í Brand- enburg í marz 1947 var honum falin forysta F.D.J. samtaka ungra kommúnista í Austur- Þýzkalandi. Þau níu ár sem hann var í þeirri stöðu skipu- lagði hann samtökin eftir sovézkri fyrirmynd. Hann átti iíka stærstan þátt í að þjálfa austur-þýzka æsku í meðferð skotvopna og það var hann sem stóð fyrir hinni mjög svo árang urslausu baráttu gegn kirkju- iegri unglingastarfsemi. Árið 1955 þegar hann lét af störf- um sei.. forystumaður F.D.J. hafði hann unnið sér ótakmark- að traust hjá Ulbricht oð öðrum starfsmönnum kommúnista flokksins. m ím ÍW m ■ ★ Fyrir nokkru lauk í Vestur- Berlín 13. iðnsýningunni, sem oft hefir verið nefnd „verzlunargluggi hins frjálsa aeims“. Rúmlega 900 fyrir- tæki — 179 útlend, 182 starf andi í Vestur-Berlín og 550 vestur-þýzk — sýndu fram- leiðslu sína á 50,000 ferm. >tóru sýningarsvæði. Yfir 30 \fríkuþjóðir höfðu sameigin lega sýningu undir samheit- inu „Félagar í framförum, og ít myndin tekin, þegar dr. Ludwig Erhard, efnahags- nálaráðherra Vestur-Þýzka- lands, ræðir við hljómsveit, 5em Afríkuþjóðirnar sendu á iýninguna til að skemmta neð afrískri.tónlist.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.