Vísir - 01.11.1962, Síða 10
10
VlSIR . Fimmtudagur 1. nóvember 1962.
—WBMB—III 111111111 I .I III IIHl—III
Roger Poore enskur kappakst-
ursmaður er að semja við
Onassis um að kaupa af honum
hlutabréfin í Spilavítinu í
Monakó. Onassis hefur átt meiri
liluta í fyrirtækinu en vill nú
selja fyrir 4 milljónir sterlings-
punda eða um 500 milljónir
króna. Margir efast um að það
séu góð kaup, því að allt sé nú
á niðurleið í Monte Carlo.
Kennedy forseti lét skyndilega
kalla nokkra áhrifamikla þing-
menn og nefndarmenn til
Washington áður en hann tók á
kvörðun sína í Kúbu-málinu.
Meðal þeirra var Hale Boggs
þingmaður fyrir Louisiana.
Hann var þá í fríi og var að
veiðum í bát um 30 mílur úti í
hafi.
Allt í einu flaug herfiugvél
yfir bát hans og varpaði flösku
niður í fallhlíf. Þeir náðu í
flöskuna og i henni var miði
með svofeildri orðsendingu:
„Hringið strax í símastúlku nr.
18. Hún hefur áríðandi skeyti
til yðar frá forseta Bandaríkj-
anna.
+
Linda Christian kvikmyndaleik-
kona flaug nýlega frá Róma-
borg til New York. Hún segist
sjá eftir að fara þá för, því að
á leiðinni var stolið frá henni
skartgripum að verðmæti um 5
milljónir króna. Meðal þeirra
voru demantar sem Tyrone
Power hafði gefið henni í morg
ungjöf eftir brúðkaup þeirra fyr
ir mörgum árum. Linda segir að
skartgripir þessir hafi ekki ver-
_ ið vátryggðir og hafi hún því
tapað nærfellt aleigu sinni.
í Japan gerði vasaþjófur tilraun
til að stela skjalatösku af
manni sem var í verzlunarferð í
stóru vöruhúsi. En þjófnaðurinn
mistókst, þar sem eigandi tözk-
unnar var Miyake heimsmeist-
ari í lyftingum og í töskunni
voru 50 kg. af blýi. Þjófurinn
var handtekinn.
Melina Mercouri gríska kvik-
myndaleikkonan sem fræg hef-
ur orðið af kvikmyndinni Aldrei
á sunnudögum tilkynnti blaða-
mönnum (auðvitað síðastliðinn
sunnudag), að hún ætlaði á
næstunni að giftast leikstjóran-
um Jules Dassin. Það þykir ekki
seinna vænna, þvf að þau hafa
verið saman í fimm ár, en ekki
fengið hjónavígslu þar sem
bæði voru gift áður.
*
Andrej Smirnov sendiherra
Rússa f Bonn ætlar að halda
einhverja mestu veizlu sem um
er vitað í Þýzkalandi á afmælis-
degi byltingarinnar 9. nóvem-
ber. Hann hefur þegar boðið
yfir þúsund gestum til veizlunn
ar. Á borðum verða m. a. nægar
biygðir af kavíar.
í New York er til sölu sérstök
Yoga-vél. Hún er þannig að
eigandi hennar getur notað
hana til að standa á höfði. Get-
ur hann svo staðið á höfði eins
lengi í vélinni og hann vill,
eða þangað til sannleikur Yoga-
vísindanna rennur upþ fyrir
honum.
Abbe Lane söngkona og hljóm-
sveitarstjórinn Xavier Cugat,
sem bæði eru víðkunn fyrir
tónlist sína hafa sett merkilegt
met af Hollywood-búum að
vera. Þau hafa nú verið gift í
10 ár og þykir það miklum tfð-
indum sæta. Blaðamenn spurðu
Xavier hvernig þetta hefði mátt
verða. Hann svaraði: — Ég
sleppi aldrei augunum af henni.
Stan Xenton hljómsveitarstjóri
í Bandaríkjunum hefur stofnað
í Hollywood „Klúbb fráskilinna
manna" og er þátttaka f honum
þegar mjög mikil. Klúbburinn
hefur það hlutverk að veita frá-
skildum mönnum ánægju í ein-
manaleikanum með félagsskap
þeirra sem beðið hafa slíkt skip
brot.
/
Carroll Baker er varð fræg á
sínum tfma fyrir leik sinn í
kvikmyndinni „Baby Doll“ rak
upp ákaft neyðaróp, er hún var
að leika í leikhúsi einu við
Broadway. Maður einn á
fremsta bekk kastaði böggli til
hennar. Carroll æpti af skelf
ingu. Hún fmyndaði sér að þetta
væri sprengja. I reyndinni var
þetta aðeins vesæll stefnuvott-
ur, sem hafði hvergi getað fund
ið Carroll fyrr en á sviði. Var í
bögglinum stefna Warner
Brothers kvikmyndafélagsins,
sem krefst um 3 milljón króna
skaðabóta af Carroll fyrir samn
ingsrof.
*
Lana Turner hefur fengið skiln-
að í Mexíkó frá 'fifrrhitá':éígin*-
manni sínum. Hann heitir Fred
May og er 45 ára, en Lana er
nú 42 ára. Það er uppi orðróm-
ur um að Lana sé þegar búin
að klófesta þann sjötta væntan-
Iegan eiginmann sinn.
*
Pablo Picasso hefur gefið eitt
af málverkum sínum til hjálpar
því fólki sem verst varð úti f
fióðunum miklu í Barcelona.
Málverkið verður boðið upp á
næstunni og selt hæstbjóðanda.
Vafalaust verður þar um
milljónaupphæð að ræða.
Snowdon Iávarður eiginmaður
Margrét prinsessu lagðist
inn á sjúkrahús f London. Þar
mun konunglegur læknir rann-
saka Tony eins og hann er enn
kallaöur. Hann þjáist af þvf
hvað hann er taugaveiklaður.
í Bandarískunum eru þjónar á
veitingahúsum sammála um það
að menn sem koma á veitinga-
hús með ljóshærðum konur.i
gefa yfirleitt meira þjórfé en
aðrir.
Tónabíó sýnir um þessar mundir
kvikmyndina Dagslátta Drottins,
sem er mest selda skáldsaga allra
tíma. Er mér ekki grunlaust að hún
hafi frekar selzt fyrir það hve mik-
ið hún gerir úr kynferðismálunum,
en því hve góð hún er. í myndinni
tekst með ágætum að sneiða hjá
hinum tíðu ástarsenum, sem í
bókinni eru, án þess að tapa þræði
sögunnar.
Myndin fjallar um fátæka fjöl-
skyldu í Georgia. Faðirinn (Robert
Ryan) er kynlegur kvistur, sem
hefur leitað að gulli á jörðinni
sinni í 15 ár, að sjálfsögðu án þess
að finna neitt. Syni á hann þrjá,
tvo sem hjálpa honum að grafa og
einn sem kvænzt hefur ríkri ekkju
og flutzt burt. Dætur á hann tvær,
aðra gifta atvinnulausum manni í
nálægri borg og hina ólofaða og
léttlynda sem enn er heima. Þá
hefur annar sonurinn sem heima
er kvænzt stúlku (Tina Lousie),
sem er til vandræða falleg. Girnast
hana bæði einn bróðirinn og
tengdasonurinn á heimilinu. Mynd-
in fjallar um líf þessa fólks og er
það sérlega vel gert. Myndin er
gerð af samúð með sögupersónun-
Framh. á bls. 5.
Ekki af einu saman —
Framhald af bls. 6.
Sannanir fyrir þvl að ráð æðstu
samstarfsmanna hans hafi ekki
gefizt vel eru margar til bæði
skjalfastar og munnlegar. Eitt
auðskildasta dæmi um hvernig
komið er tel ég þá hörmulegu
staðreynd, að íslenzka kennara-
stéttin, einhver friðsamasta og
elskulegasta stétt í heimi, sem
flest lætur bjóða sér, hefur tví-
vegis á þessu ári verið reiðubúin
til hópuppsagna. í fyrra skipti
vegna þess að engar efndir feng-
ust á ádrætti um bætt kjör stétt-
inni til handa hjá fyrrnefndum
ráðamönnum. í seinna skiptið
vegna þess, að allt var I óvissu
um gildi erindisbréfs, sem kenn-
urum var sent. Um tíma var eins
vel útlit fyrir að gefa ætti út nýtt
bréf og gera þannig að engu þau
mannréttindi, sem búið var að
veita 1 hinu fyrra. Raunar bera
þessi erindisbréf sömu vanhæfni-
merkin og svo margt annað, sem
frá fræðslumálastjórn kemur. T.
d. segir í erindisbréfi skólastjóra
orðrétt. „Verði ágreiningur milli
skólastjóra og meiri hluta kenn-
arafundar, getur hvor aðili um
sig skotið máli sínu undir úr-
skurð fræðslumálastjórnar". Ekk-
ert er tekið fram um það í þessu
sambandi hver eigi að stjórna
skólanum meðan fræðslumála-
stjórn fellir sinn úrskurð.
Allir góðir menn hljóta að
fagna þvl, að enn er ekki farið
að setja skipstjórum slík erindis-
bréf. Væntanlega ætti þá að vísa
ágreiningi milli skipstjóra og á-
hafnar til sjávarútvegsmálaráðu-
neytisins og skipið að vera stjórn
laust á meðan.
l"kg þar erum við komin að
kjarna málsins. Fræðslumál-
in hafa árum saman verið svo
stjórnlítil að stappar nærri fullu
stjórnleysi. Ekki verður úr þessu
bætt með því að áfellast menn,
sem ekki geta bet’ur gert. — En
það má gera annað! Þáð má fá
fræðslumálastjóranum annað eða
jafnvel betra starf svó hann þurfi
einskis I að missa og skipa I hans
stað menntamanna, sem veit hvað
er að gerast I mennta- og upp-
eldismálum heimsins og skil-
ur hvers þjóðin þarfnast og getur
tekið á málum samkvæmt því.
Nágrannaþjóðir okkar á Norð-
urlöndum hafa á seinni árum
gert miklar og gagnlegar breyt-
ingar á fræðslumálum sínum.
Æska þessara landa nýtur I vax-
andi mæii aðstoðar og ráðlegg-
inga alls konar .fagmanna á þess-
um sviðum I þeim tilgangi að
þegar skólavist lýkur geti ung-
mennin gengið út í atvinnulífið
með þekkingu á því sem um er
að velja og góða undirbúnings-
menntun, sem tryggi þeim traust-
an grundvöll að hverju sem þau
stefna.
íslenzku fræðslumálastjórninni
hefur æ ofan æ verið bent á,
að eitthvað svipað yrði að gera
hér — alls konar samtök for-
ustumanna í atvinnu- og fræðslu-
málum ásamt Alþingi hafa beint
þeim tilmælum til ríkisstjórnar-
innar, að hún geri nú verulegt á-
tak til að koma til móts við æsk-
una, þar sem nauðsynin er mest.
Eftir langa bið kemur svarið
loks. Fræðslumálastjórn stuðlar
að dansnámskeiði fyrir kennara
eir, sem eiga börn á æskuskeiði
og láta sig framtíð þeirra
einhverju varða geta ekki unað
við þetta ástand lengur. Yfir-
völdin geta ekki sóma síns vegna
horft upp á drykkjuskap og pillu-
át unglinga án þess að hafast
eitthvað að og það verður að
byrja á byrjuninni. Það verður að
viðurkenna, að uppeldi þjóðarinn
r er í molum og það verður af
fela færustu og beztu mönnum
sem völ er á að byggja það upp.
Ólafur Gunnarsson.