Vísir - 12.11.1962, Síða 2
V1SIR . Mánudagur 12. i>5vember 1962.
Reykjavíkurmótið í handknuttleik:
Þróttur og IR unnu
leikinu um helginu
Spennandi leikir og ó-
vænt úrslit voru í leikjum
Reykjavíkurmótsins í hand
knattleik um helgina, þeg-
ar Gunnlaugur Hjálmars-
son leiddi sitt lið til sigurs
gegn hinum velleikandi Ár
menningum, og Þróttarar
unnu Víking þvert ofan í
alla spádóma. En báðir
voru sigramir naumir og
munurinn aðeins eitt mark.
Leikur ÍR og Ármanns var nokk-
uð spennandi lengst af og mjqg
spennandi undir lokin, eftir að tek-
izt hafði að leggja nokkrar höml-
ur á Gunnlaug sem allan leikinn
hafði gert Ármannsvörninni lífið
leitt með hinum frábœru uppstökk
um sínum.
Gunnlaugur skoraði fyrsta mark-
ið og Gylfi bróðir hans bætti öðru
við með mjög fallegu skoti. Enn
átti sama ætt eftir að koma við
sögu, því Lúðvlk Lúðvíksson,
frændi þeirra bræðra, skoraði
fyrsta mark Ármenninga skömmu
síðar. Björgvin Samúelsson skor-
aði 3:1 fyrir iR, en Árni og Hörð-
ur jafna, 3:3. Ármenningar kom-
ust yfir í 5:4, en tvö vítaköst Gunn-
laugs færðu IR aftur yfirhöndina,
og í hálfleik tókst ÍR að hafa yf-
ir, 8:7.
Fyrstu mínútur síðari hálfleiks
færðu 3 mörk í Ármannsmarkið
og gerðu nær út um sigurinn fyr-
ir ÍR. Ólafur skoraði fyrsta markið
en Gunnlaugur bætti þegar við
'tveim í viðbót með uppstökkum.
Ármenningar létu þetta ekki á sig
fá og skora nú 3 næstu mörk,
11:10 fyrir IR. Gylfi skorar, 12:10,
og það s. eftir er hálfleiks leiða
ÍR-ingar örugglega. Ekki munaði
þó miklu að Ármenningum tækist
að skora 14:14 er aðeins voru 5
sekúndur til leiksloka. Þá brunaði
Hans upp völlinn og aðeins voru
markvörðurinn og Gunnlaugur til
varnar. Gunnlaugur bjargaði þarna
stigi fyrir iR með góðri vörn, en
skot Hans varð máttlítið og auð-
verjanlegt fyrir tilverknað Gunn- j
laugs.
Gunnlaugur var bezti maður ÍR-
liðsins, auk þess sem hann skoraði
manna mest, eða 7 mörk. Gylfi var
og góður. Hermann lék ekki með
liðinu að þessu sinni. Beztur Ár-
menninga var Árni Samúelsson, en
Jákob og Lúðvík voru allgóðir. Ár-
mannsliðið ætti að ná mun meiru
út úr leik sínum en það gerir. Liðið
ræður við mikinn hraða, en vantar
allt hugarflug I leik sinn. Þannig
er oft leikið tímum saman af hraða,
án þess að nokkuð komi út úr
leiknum.
Þróttur og Víkingur léku leik,
sem að leikgangi til var ekki ó-
svipaður fyrri leiknum, nema hvað
leikhraðinn var 33 y3 á móti 78'
snúningum ÍR og Ármanns. Er það
furðulegt, hvað svo góðir hand-
knattleiksmenn sem þessi tvö lið
eru skipuð af geta verið makinda-
legir þessar 30 mínútur, sem leik-
ur fer fram. Vart var á nokkrum
manni að sjá að hann legði að
sér. Niðurstungur hjá flestum leik-
mönnum, leikið til baka, tafið. Vel
á minnzt, tafir, hvenær verður far-
ið að taka boltann af liði, sem
reynfr að tefja?
Jóhann Gíslason skorar fyrsta
mark leiksins, en Helgi Árnason,
vaxandi leikmaður hjá Þrótti, jafn-
ar. Axel nær forystunni fyrir Þrótt.
Þróttur hefur frumkvæðið og kemst
I 5:3, en I hálfleik er staðan 5:5,
en Björn Kristjánsson skoraði úr
heldur vafasömu vítakasti.
I síðari hálfleik skora Þróttarar
strax 2 mörk, 7:5. Víkingar komast
næst þvl að jafna I 8:7, en um
miðjan hálfleik er Þróttur með yfir-
höndina I 10:7 og Víkingar farnir
að leika „maður-gegn-manni“. Á
þessari harkalegu leikaðferð skora
þeir tvívegis, og staðan verður nú
10:9 fyrir Þrótt.
Meira fyrir heppni en góðan leik
fá Þróttarar sigurmarkið. Boltinn
hrekkur út á línu Víkings til Helga
Árnasonar, sem sópar boltanum I
autt markið, en markvörður hafði
hlaupið út að hliðarlínu til að reyna
að ná boltanum. Víkingar skoruðu
mark rétt fyrir leiksloks, en það
nægði ekki — tveim stigum hafði
verið glatað, mjög á óvænt, en með
sigri þessum tekur Þróttur foryst-
una I Reykjavíkurmótinu með 5
stig eftir 4 leiki, en á eftir að leika
við Fram og Ármann.
Beztu menn Þróttara voru mark-
vörðurinn Guðmundur Gústafsson,
Þórður Ásgeirsson, sem nú leikur
úti, og Helgi, mjög vaxandi og
sýndi athyglisverðan leik. Axel Ax-
elsson, mjög góður leikmaður, ætti
að venja sig af að stinga niður,
það er hættulegur sjúkdómur, smit-
I næmur I meira lagi og kemur mjög
niður á leik þeirra liða, sem sýkj-
ast.
Víkingsliðið var ekki nema svip-
ur hjá sjón frá I fyrra, leikur ekki
af sama öryggi og engu var líkara
en leikgleðina vantaði. Pétur Bjama
son var lang öruggasti maður liðs-
ins, en Sigurður Hauksson og Rós-
mundur voru allgóðir. Jóhann
Glslason virðist vera að komast I
góða æfingu og verður mikill styrk
ur innan tlðar. — jbp -
27. félags-
bréf A.B.
Ot er komið Félagsbréf Almenna
bókafélagsins, hið 27. I röðinni. I
ritinu eru tvö ljóð eftir Hannes
Pétursson, Steingrlmur J. Þorsteins
son ritar um Halldór Kiljan Lax-
ness sextugan, Guðbergur Bergs-
son skrifar smásögu, er hann nefn
ir Pílsarvættis missir. Þá er I ritinu
grein um rússneska höfundinn
Abram Tertz, en það mun vera dul-
nefni, einhvers höfundar, sem ekki
vill láta nafns slns getið. Sveinn
Einarsson ritar um sænska skáldið
Hjalmar Gullberg, og nefnir hann
grein sína Helgríma og lystigarður,
eftir titli á Ijóðabók Gullbergs. Þá
er grein um bókina „Framtíð
manns og heims" og loks ritar ÓI-
afur Jónsson greinina Símtöl við
guð, blaðað I nokkrum Ijóðabókum.
Áskriftasími
Visis er
1 16 60
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
STEINU og DÓDÓ,
Laugaveg 11, sími 24616.
Dömur, hárgrciðsla við allra hæfi.
TJARNARSTOFAN,
Tjarnargötu 10, Vonarstrætismegin,
SI.lii 14662.
Hárgreiðslustofan
HÁTÚNI 6, simi 15493.
Hárgreiðslustofan
SÓLEY
Sólvallagötu 72, sími 14853.
Hárgreiðslustofan
PIROLA
Grettisgötu 31, sími 14787.
Húrgreiðslustofa
"."ESTURBÆJAR
Grenimel 9, sími 19218.
Hárgreiðslustofa
SVÖNU ÞÓRÐARDÓTTUR,
Freyjugötu 1, sími 15799.
LAUGAVEGI 90-92
Volkswagen, allar árgerðir.
Volkswagen ’58, verð 73 þ. útb.
Opel Record ’56, 58, 60, 62
Opel Caravan ’55 58 60 62.
Opel Capitan 56 57, nýkominn.
Ta..nus 2ja dyra 58 og 60.
Taunus station 59 60, góðir.
Consul ’62 4ra dyra, sem nýr.
Yolvo station ’55, skipti mögul.
á yngri bíl.
Reno Dophine 60 og 61.
6 manna bílar:
Ford 55 56 57 58 59 60.
Chevrolet 53 54 55 56 57 59
Benz 220, 55 56 58
Sendibllar.
Ford 55 56.
Chevrolet 52 53 55
Volkswagen 55 56 57.
Gjörlð svo vel og skoðið
bílana. Þelr eru á staðnum.
Kárgreiðslustofa
KRISTlNAR INGIMUNDAR-
DÓTTUR, Kirkjuhvoli, simi 15194.
Hárgreiðslustofa
AUSTURBÆJAR
(Marla Guðmundsdðttir).
Laugaveg 13, slmi 14656.
Nuddstofa sama stað. —
Hárgreiðslu- og snyrtistofan
PERMA, Garðsenda 21, sími 33968
Bíla & búvélasalan
SELUR:
Chevrolet ’55, station.
Mercedes Benz ’57-’60.
Opel Capitan ’61.
Opel Caravan ’61
Consul ’62
VÖRUBlL .R:
Volvo ’63 5 tonna.
Mercedes ’60-’61.
Cíievrolet ’55-’61.
Volvo ’55.
Lóð I Kópavogi undir einbýlis-
hús: Skipti á bíl.
Bila & búválasalan
við Miklatorg. Simi 23136
- BÍLAVAL -
Nýi sýningarbíllinn DKV (Das Kleine Wunder) frá
Mercedes Benz-verksmiðjunum er til sýnis og sölu
á sölusvæði okkar í dag. Kynnið yður hina hagstæðu
skilmála.
BÍLAVAL
Laugavegi 90—92 . Símar 18966, 19092 og 19168
IJr leik ÍR og Þróttar í meistaraflokki. Það er Þórður, sem hér er kom- •
inn inn á línu, en skot hans var varið.
Híolbarðaverkstæðið Millan
Opin alla daga frá td. 8 að morgni til kl. 11 að kvöldi.
Viðgerðir á alls konar hjólbörðum. — Seljum einnig allar
stærðir hjólbarða — V3.iduð vinna — Hagstætt ve?ð. —
3