Tölvumál - 01.03.1999, Page 11
Skýrsla fyrir 1 998
Skýrsla formanns fyrir 1998
- Flutt á aðalfundi 12. febrúar sl.
Oskar B. Hauksson
Árið er metár að
mörgu leyti í starfsemi
þess og var bryddað
upp á mörgum
nýjungum
Sett var mef í aðsókn
á árinu en alls sóttu
1230 manns fundi og
ráðstefnur félagsins
og komu að meðal-
tali 112 á hvern
atburð
Ráðist var í útlifs-
breytingar og gefið út
veglegt afmælisblað
Síðasta ár var mjög viðburðaríkt í
starfsemi Skýrslutæknifélagsins
enda fögnuðum við 30 ára afmæli
félagsins. Árið er metár að mörgu leyti í
starfsemi þess og var bryddað upp á
mörgum nýjungum eins og ég kem að
síðar. í upphafí starfsársins voru sett
markmið og lagðar áherslur í starfinu og
er það mér mikil ánægja að geta greint frá
því á þessum fundi að flest þeirra mark-
rniða sem sett voru hafa náðst. Við stefnu-
mótunina nýttist vel viðhorfskönnunin
sem félagið lét gera á meðal félagsmanna.
Ráðstefnu- og fundahald
Sett voru markmið að halda 5-6
hádegisfundi á árinu og grípa tækifæri til
að koma að þeim málum sem efst eru á
baugi hverju sinni. Haldnir voru 5
hádegisfundir og var fjallað um mál sem
voru í brennidepli, til dæmis um gagna-
grunn á heilbrigðissviði og samkeppni á
fjarskiptamarkaði. Alls sóttu 495 manns
þessa fundi eða 99 manns að meðaltali og
verður það að teljast mjög góð
þátttaka.
Ráðstefnuhald var einnig lífíegt og hélt
félagið alls 6 hálfs dags ráðstefnur sem
725 sóttu. Þessi rnikla aðsókn að
ráðstefnum segir okkur að þær hafa öðlast
fastan sess á meðal félagsmanna.
Aðsóknin ein segir hins vegar ekki allt,
reglubundnar gæðamælingar eru mikil-
vægar til að bæta undirbúning ráðstefna.
Við rennum oft blint í sjóinn með val á
fyrirlesurum, sérstaklega þeim erlendu.
Skoðanir ráðstefnugesta í viðhorfskönn-
unum endurspegla hvernig til tekst í hvert
sinn. Að meðaltali fengu ráðstefnur
félagsins einkunnina 4,2 (af 5
mögulegum) á árinu 1998 og verður það
að teljast ágætur árangur.
Meginatriðið í ráðstefnuhaldinu er ekki
aðsókn eða fjöldi fyrirlesara heldur að
ráðstefnur séu áhugaverðar fyrir félags-
menn. Mörkuð var sú stefna í upphafi árs
að bjóða upp á breidd í efnistökum en
jafnframt að hver ráðstefna væri með
fókus á ákveðið efni. Haldnar voru m.a.
ráðstefnur um tungutækni og samruna
síma- og tölvutækni.
Eitt af markmiðum ársins var að stór-
auka markaðssetningu ráðstefna og funda
með tölvupóstsendingum til félagsmanna.
Þetta form hefur gefist mjög vel og fer
sífellt stækkandi það hlutfall gesta sem
skráir sig með því að senda svarskeyti til
skrifstofu félagsins.
Mikil vinna er við undirbúning ráð-
stefna og er hér um óeigingjarnt starf að
ræða sem unnið er í sjálfboðavinnu af
stjórnarmönnum og öðrum félags-
ntönnum. I auknum mæli hafa ráðstefnur
og fundir verið haldnir í samvinnu við
önnur félög og er útlit fyrir að slfkt muni
aukast á næsta starfsári.
Sett var met í aðsókn á árinu en alls
sóttu 1230 manns fundi og ráðstefnur
félagsins og komu að meðaltali 112 á
hvern atburð. Þetta þýðir að aðsókn tiefur
aukist í heild um 60% á milli ára og
meðalaðsókn á fund um 17%.
Utgáfumál
Útgáfa Tölvumála er ein af megin-
þáttum í þjónustu við félagsmenn og kom
það skýrt fram í viðhorfskönnuninni.
Ákveðið var að renna styrkari stoðum
undir útgáfu Tölvumála en uppi höl'ðu
verið hugmyndir unt að draga úr útgáfu
eða hætta henni alveg. Ráðist var í úllits-
breytingar og gefíð út veglegt afmælis-
blað. Alls voru gefin út 4 tölublöð, samtals
132 blaðsíður með 40 greinum. Unnið
hefur verið að því á síðustu vikum að
fjölga verulega í ritstjórn Tölvumála og
efla útgáfuna. Taka þarf auglýsingamál til
endurskoðunar en tekjur af auglýsingum í
Tölvumálum hafa minnkað upp á
síðkastið. Styrkja þarf enn frekar tengslin
á rnilli stjórnar félagsins og ritstjórnar.
Ráðist var í gagngerar endurbætur á vef
félagsins á árinu 1997 og er hann orðinn
virkur miðill fyrir fréttir af starfsemi þess
Tölvumál
11