Tölvumál - 01.03.1999, Side 13
Skýrsla fyrir 1 998
Á komandi ári þarf
að efla kosf-
naðaraðhald og
auka tek/ur, til dæmis
af auglýsingum
Stofnaður var á
árinu faghópur um
2000 vandann og
hefur hann unnið
mikilvægt starf sem
vakið hefur athygli
fjölmiðla á félaginu
könnunum og tveimur hádegisfundum.
Einnig hefur hópurinn birt efni um
málefnið á heimasíðu félagsins.
Mikilvægt er að efla þennan þátt í
starfsemi félagsins með stofnun fleiri
hópa.
Stiklað hefur verið á stóru í starfsemi
félagsins á síðasta ári sem var mjög
viðburðaríkt eins og komið hefur frarn.
Starfsemi félagsins vakti einnig mun meiri
athygli fjölmiðla en áður hefur þekkst en
gera þarf enn betur í þeim efnum.
Fjölmargir einstaklingar, innan og utan
stjórnar, hafa lagt hönd á plóginn og eflt
starfsemi félagsins. Þeim vil ég þakka
sérstaklega og vonast til að þeir starfi
áfram með félaginu að þeim áhugaverðu
verkefnum sem framundan eru.
Á þessum aðalfundi eru þrír félagsmenn
að hætta störfum í stjórn og nefndum fyrir
félagið. Þeir eru Heimir Sigurðsson, sem
hefur verið í stjóm félagsins í fimm ár, var
fyrst kosinn á aðalfundi 1994, Agnar
Björnsson, sem hefur verið í ritstjórn
Tölvumála í þrjú ár, þar af ritstjóri í eitt ár
og Snorri Agnarsson, sem hefur verið í
siðanefnd frá því að henni var fyrst komið
á laggirnar, eða frá árinu 1992.
Skýrslutæknifélag Islands þakkar þeim
öllum vel unnin störf í þágu félagsins.
Oskar B. Houksson er forstöðumaður
upplýsingavinnslu Eimskips og formaður
Skýrslutæknifélags Islands
Nýkjörín stjórn Skýrslutœknifélags íslands
Fremri röðfrá vinstri: Eggert Ólafsson, Sigríður Olgeirsdóttir, Hulda Guðmundsdóttir, Óskar B. Hauksson. Aftari röð
frá vinstri: Svanhildur Jóhannesdóttir, Einar H. Reynis, Ingi Þór Hermannsson, Magnús Sigurðsson, Stefán
Kjœrnested.
Tölvumál
13