Tölvumál - 01.03.1999, Qupperneq 14
Fjarskipt
GSJVI posar fáanlegir
Elvar Guðjónsson
Point á íslandi hefur nú nýverið hafið
sölu á posavél með innbyggðum
GSM síma til heimildarhringingar.
Posarnir eru franskir af gerðinni P2000 frá
CKD Moneyline. Point hefur einnig
hannað hugbúnaðinn í hann þannig að
hann getur tekið á móti öllum greiðslu-
kortum sem aðrar posavélar taka á móti
hérlendis.
I stuttu máli má segja að GSM posinn
vinni alveg eins og hefðbundinn posi,
nema í stað þess að nota hefðbundna
símalínu þá notar hann GSM til tengingar
við greiðslukortafyrirtækin auk þess hefur
hann innbyggt batterí og verður þannig
óháður rafmagni og símalínu, þannig að
það eina sem þarf er merki frá GSM neti
landsímans.
Posinn hefur bæði segulrandarkorta-
lesara og snjallkortalesara, auk þess að
hafa hraðvirkan hljóðlátan
(thermal) prentara. Posinn er kjörinn fyrir
þá staði þar sem ekki er hægt að komast í
rafmagn og venjulega símalínu t.d. í
leigubíla, sendibíla, rútur. fyrir sölumenn
sem ganga í hús, pizzasendla o.fl.
Posinn tengist GSM neti Landssímans
og hringir með V. 110 ISDN tengingu og
tengist X.25 neti símans og þannig tengist
hann greiðslu-kortafyrirtækjunum.
Símakortið sem notað er, er hefðbundið
nema að það er einungis opið fyrir
gagnaflutningsrásimar. Hver heimil-
darinnhringing tekur um 6 sekúndur og
kostar um 3,30 að degi til og um kr. 2.70
að kveldi.
Posinn hefur verið í prófun frá sept-
ember 1998 og hefur prófun gengið rnjög
vel og er nú svo kornið að bæði Visa
ísland og Europay Island hafa samþykkt
posann auk þess sem Visa International
hefur samþykkt hann fyrir erlend
greiðslukort.
Point er norrænt fyrirtæki með aðsetur á
öllum norðulöndum og leiðandi fyrirtæki í
þróun rafrænnar greiðslumiðlunar. Point
hefur m.a. flutt inn og selt megnið af þeim
posavélum sem í dag eru í notkun í
verslunum álslandi. GSM posann erhvort
heldur hægt að kaupa eða leigja hjá Point.
Frekari upplýsingar veita Point á íslandi
í Hlíðasmára 10 sími 544 5060.
14
Tölvumál