Tölvumál - 01.03.1999, Síða 15
Frá ráðstefnu SÍ
Fjarskiptamál í brennidepli
- hefur samkeppnin skilað sér til neytenda?
Kristján Geir Arnþórsson skrifar um hádegisverðarfund SÍ, 26. janúar 1999
I dag snýst
samkeppnin um
vörugæði og
þjónustustig, sagði
Þór Jes Þórisson frá
Landssíma Islands hf
Arnþór Halldórsson
talaði fyrir Tal hf og
kvað sitt fyrirtæki
hafa 15% markaðs-
hlufdeild í
farsímaþjónustu á
landinu
Dagný Halldórsdóftir
frá Skímu hf sagði
að sitt fyrirtæki
hefði komið inn á
markaðinn í
virðisaukandi
fjarskiptaþjónustu -
„sem hefur alltaf
verið frjáls"
Fundarstjóri, Einar K. Guðfinnsson,
rakti í upphafí fundar tildrög þess
að lögin urn frelsi í símaþjónustu
voru sett og gengu í gildi á síðasta ári.
,,Nú er komin nokkur reynsla á þetta
fyrirkomulag og verður fróðlegt að heyra
hvað fulltrúar fyrirtækjanna hafa um hana
að segja.“
Hefur samkeppnin
skilað sér til neytenda
í dag snýst samkeppnin um vörugæði og
þjónustustig, sagði ÞórJes Þórisson frá
Landssíma Islands hf. Hann rekur
helstu atriðin í stöðu Landssímans í dag
og bendir á hvílíkur dvergur Landssími
íslands er í samanburði við erlendu
símarisana. „Við njótum ekki hagkvæmni
stærðarinnar eins og þeir."
Arnþór Halldórsson talaði fyrir Tal hf
og kvað sitt fyrirtæki hafa 15% markaðs-
hlutdeild í farsímaþjónustu á landinu.
Honum þykir frelsið vera fremur í orði en
á borði enn sem komið er og telur vanta
ákveðnari heimildir í lögin til að auka það
og festa í sessi.
Dagný Halldórsdóttir frá Skímu hf
sagði að sitt fyrirtæki hefði komið inn á
markaðinn í virðisaukandi ijarskipta-
þjónustu - „sem hefur alltaf verið frjáls“,
bendir hún á. Samkeppni í
Internetþjónustunni hefur skilað notend-
urn lágu verði, aukinni þjónustu og nreiri
gæðum. Nú, þegar höftum á talsíma-
þjónustu hefur verið aflétt, er Dagný sann-
færð um að þróunin á eftir að skila
notendum því sarna þar.
Arnþór segir að það sem komi til með
að skilja menn að á ntarkaðinum sé
hæfileikinn til að markaðssetja vöruna,
pakkana, ekki endilega tæknin sem beitt
er. Hann telur að samkeppnisstyrkur nú
kunni að snúast upp í andhverfu sína:
„Verður sá sterkasti sem er að byggja sig
upp með þunglamalegri og jafnvel úreltri
tækni kannski sem steinrunninn þurs á
morgun?“
Samkeppnisaðstæður
Arnar Sigurðsson, talsmaður Islands-
sírna hf sem ekki hefur hafið rekstur enn,
bendir eindregið á skyldur Póst- og
fjarskiptastofnunar því aðstöðumunur
Landssímans og nýrra fyrirtækja á
markaðinum sé geysimikill: Frelsið í
þessari starfsemi er undir dug og
frumkvæði Póst- og fjarskiptastofnunar
komið telur hann - henni beri að flýta
frelsisþróun sem verða má.
Eftirlitsstofnanir eru nauðsynlegar,
tekur Þór Jes undir, en krafan urn að skipta
Landssímanum upp í net- og þjónustu-
hluta gengur þvert á fyrrnefndar hug-
rnyndir um hagkvæntni stærðarinnar. Það
muni Landssíminn því ekki gera.
Arnþór segir að hér sé við ramman reip
að draga því stærsti aðilinn á markaðinum
hafí yfirburðastöðu og hætt sé við að þeir
láti „einokunarrekstur" greiða niður
samkeppnishluta rekstrarins. „Næstu 2-3
árin munu skera úr um það hvort frjáls
samkeppni í fjarskiptuin nær að skjóta
rótum hér.“
Þróun þjónustunnar
Árið 1906 hófst almenn ijarskipta-
þjónusta á Islandi, sagði Dagný
Halldórsdóttir, og var Póstur og sími einn
um hituna allt til 1989. Það ár fór IBM á
íslandi að bjóða fyrirtækjum upp á
tölvutengingar til útlanda. Árið 1994
byrjaði svo Internetsamkeppnin að fullu.
Bæði Skíma og Miðheintar voru stofnuð
1994, fyrirtæki sem sameinuðust 1997,
rekur Dagný áfram. Árið 1998 er fjar-
skiptaþjónusta gefin frjáls. Starfsmenn
hinna sameinuðu fyrirtækja eru nú 25 og
„þar er stærsti hnútpunktur á landinu í dag
og stærsta alhliða Internetþjónustan,“
segir Dagný hreykin, „- nenra þetta sagði
ræðumaður Landssímans líka og það sýnir
að það er tekist á,“ bætir hún við.
Þór Jes rekur nokkur rannsóknarverk-
efna Landssímans, en „Skýrsla
rannsóknardeildar Landssímans 1999“ lá
TöEvumál
15