Tölvumál - 01.03.1999, Side 18

Tölvumál - 01.03.1999, Side 18
Ártal 2000 Til að einfalda vinnuna og auðvelda aðgang starfsmanna að upplýsingum var komið upp upplýsingabrunni í hópvinnukerfinu okkar Búið er að yfirfara allan vélbúnað móðurtölvuumhverfis sem er og verður í rekstri um næstu áramót Árinu 2000 verður ekki frestað fyrirtækinu verði óbreytt, nerna sérstak- lega sé beðið unt annað. Nauðsynlegt þótti að móta strax fasta stefnu um þessi mál til að koma í veg fyrir skriðu af óþarfa breytingum hjá viðskiptavinum okkar. Upplýsingabrunnur Til að einfalda vinnuna og auðvelda aðgang starfsmanna að upplýsingum var komið upp upplýsingabrunni í hópvinnu- kerfmu okkar. Þar er að finna aliar upplýsingar sem tengjast ártalinu 2000. Þar eru vinnulýsingar, gátiistar og dæmi um útfyllt gæðaskjöl. Þar er einnig búið að korna upp sérstökum síðurn fyrir öll notendakerfi, hugbúnaðarpakka, vélbúnað og annan tæknibúnað. Umsjónarmönnum kerfa og búnaðar ber síðan að uppfæra þessi skjöl þ.a. á hverjum tíma sé hægt að sjá rétta stöðu 2000 breytinganna. Einnig hafa verið geftn út fréttabréf og eru þau viðieitni vinnuhópsins til að upplýsa alla starfsmenn um verkefnið og gera þá að virkum þátttakendum. Vél og tæknibúnaður Véibúnaðarumhverfí Skýrr er mjög margþætt og skiptist í megindráttum í móðurtölvuumhverfí, dreift tölvuum- hverfi, staðarnet, tengibúnað og tækni- búnað. Nefna má að vélbúnaður móðurtölvuumhverfis samanstendur m.a. af móðurtölvu, diskaturnum, afritunarbún- aði, fram- og samskiptatölvum og prent- urum. Dreifða tölvuumhverfið saman- stendur að fjölda miðlara, m.a. Unix og NT vélum. A staðarneti Skýrr eru urn 140 vinnustöðvar og fjöldi prentara. Allan þennan búnað þarf að athuga. Einnig þarf að yfirfara allar tengingar við fyrirtækið og athuga kerfi eins og símkerfi, öryggiskerfi, loftræsibúnað og ánnan tæknibúnað. Fyrirspurnir hafa verið sendar til ailra birgja okkar og framleiðenda vél-, hug- og tæknibúnaðar. Tilvísanir í svör eru síðan settar í upplýsingabrunninn. Þar geta umsjónarmenn viðkomandi búnaðar nálgast svörin og tekið ákvarðanir unt hvað gera þurfi til að gera búnaðinn 2000 hæfan. Búið er að yfirfara alian vélbúnað móðurtölvuumhverfis sem er og verður í rekstri um næstu áramót. Allur þessi vél- búnaður er nú ár 2000 hæfur eða verður ekki fyrir áhrifum vegna ártalsins 2000. Vinna varðandi yfirferð á 2000 hæfi annars vélbúnaðar og tæknibúnaðar er í fullum gangi og langt komin. Skýrr var einn af frumkvöðlunum í 2000 urnræðu hér á landi. Aíkoma, ímynd og trúverðugleiki fyrirtækisins eftir árið 2000 ræðst því m.a. af því að nýtt árhundrað gangi hnökralaust í garð. 2000 verkefnið er því forgangsverkefni hjá Skýrr. Mörg önnur verkefni kalla hinsveg- ar á, því eins og allir vita er skortur á sér- fræðingum á þessu sviði. Árinu 2000 verður ekki frestað. Mikil vinna er fyrirsjáanleg og því er nauðsynlegt að verkefnið fái allan þann stuðning sem þarf, eigi að leysa vandamálið á tiisettum tíma og með sem minnstum tilkostnaði. Sigríður B. Vilhjálmsdóttir er verkefnisstjóri hjá Skýrr hf. 18 Tölvumál

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.