Tölvumál - 01.03.1999, Page 19
Að gefa út bók á netinu
Viðtal RÚV við Þorgeir Þorgeirson
Mér hefur alltaf
þótt ritverk eiga að
vera ókeypis til
lestrar, kennslu og
rarmsókna
Kosturinn við
útgáfu með þessum
hætti, er að maður
þarf ekki að hlaða
upp lagerum
I þættinum Víðsjá í Ríkisútvarpinu
29. maí 1998 var Þorgeir Þorgeirson
rithöfundur heimsótfur.
Ævar Kjartansson og Hjálmar Sveinsson
ræddu við hann um nýstárlega
heimasíðu „Leshúss" og hugmyndir
skáldsins um gagnvirka útgáfu á Netinu.
A/lec? leyfi hlutaðeigandi birta Tölvumál
nú viðtalið, svo til óstytt.
Leshús. Þegar þangað er kornið inn
þá blasir við - ég veit ekki hvort á
að kalla þetta búð... verkstæði....
sennilega er best að kalla þetta ekki neitt
nerna það sem það heitir það er að segja
Leshús. Hér er lesið ímyndaði ég mér, en
þannig er að húsráðandinn Þorgeir
Þorgeirson... ég veit ekki hvort hann er
hættur að lesa, hvort hann er gersanrlega
kominn í bland við Vefinn, hvort hann er
svo samofinn vefnum orðið að hann sé
varla til í þessari venjulegu efnislegu
merkingu. En Hjálmar Sveinsson er eigin-
lega ofan í tölvunni hjá Þorgeiri.
- Já mikið rétt ég er hérna inni í afhýsi í
Leshúsi og hér situr Þorgeir Þorgeirson
fyrir framan blálitaðan skjá og margar
táknmyndir á þessum skjá flestar
gullitaðar. En Þorgeir er nýbúinn að opna
Vefsíðu og hann hefur boðist til þess að
leiða okkur inn í undraheima Netsins.
Þorgeir, sæll.
- Heyrðu já sæll vertu og verið þið
velkomnir. Eigum við ekki aðeins fyrst að
líta á tölvuna sem er nú geymslan og
hérna miðstöðin fyrir þetta. Hér er tölvan
mín semsagt, hér styð ég á my computer.
Þessi tölva hún er 3,2 gigabæti. Um
helmingurinn af því plássi fer í kerfið og
því um líkt; við getum sagt að hún sé að
geymsluplássi svona eitt og hálft gígabæt.
Það þýðir það að hér í C, hér í D og hér í E
þar get ég geymt sem svarar einni og
hálfri milljón blaðsíðna af lesefni.
- Það er ekkert annað!
- Og hérna í D-inu, þar geyrni ég vef-
síðurnar mínar, og þá athugum við þær,
þær eru hérna inni í þessum kassa sem
heitir mitt og hérna hér eru þær semsagt,
ein af annarri. Þetta er handritasafnið,
númerað frá 0 og upp í 11. Og ef við
athugum það nánar hvernig þessi handrit
eru gefm út - það er að segja við skulum
gá reyndar fyrst hérna inn í E-ið. Þar
geymi ég nefnilega sömu handritin en í
öðru formi. Þar er ég með sömu textana
jafnóðum og ég set þá inn á Netið, þá tek
ég þá hérna inn í E-ið og nota það pláss til
þess að brjóta það um fyrir pappírsútgáfur.
Þannig að það er hvort tveggja í gangi í
einu. Og síðan get ég prentað pappírsút-
gáfurnar út bara hérna á laserprentarann
minn.
- Hmm, og ef þú opnar nú héma.... vef-
síðuna?
- Við förum nú hérna... þá skal ég ekki
bara opna vefsíðuna heldur sýna ykkur
hvernig þetta liggur. Nú opnast tveir
gluggar.. það er að koma inn í þennan...
(bendir). Hér liggja semsé handritin mín.
Þau eru á tölvunni hérna. Síðan er komið
þarna upp og ef að þið athugið vel - þetta
er upp í 11 hérna megin, en hérna megin
er það ekki nema upp í 10. hérna í vinstri
glugganum þar eru handritin sem eru á
tölvunni hérna, sömu nöfn og númer koma
fyrir hinu ntegin, það er sama efnið, sem
að liggur á tölvunni þeirra inni í
Miðheimum - í miðstöðinni. Við tökum
eftir einu, hér eru bara tíu númer en hérna
í handritunum ellefu. Sem að þýðir það að
þarna er óútgefin bók.
- Akkúrat. En, er hún tilbúin?
- Hún er tilbúin. Hún er alveg tilbúin og
ég ætlaði einmitt að fara að gefa hana út.
Eigurn við að taka tímann á því, hvað það
er langt? Eruð þið með sekúnduvísi?
- Að gefa út bók?
- Að gefa út bók á nelinu.
- Já, það væri nú fróðlegt (Ævar).
- Þá skyggi ég hérna númer ellefu.
- Tek tímann....
- Stíg svo hérna á þessa ör... og nú er
hún ... byrjuð.
- Já þarna birtisl lílill rammi og þarna er
ja upptalning, nánast.
- Ja það eru prósentin.
Tölvumál
19