Tölvumál - 01.03.1999, Síða 23
mínútur og það stysta sextán. Þetta eru
svona stutt útvarpsleikrit, með aldeilis
úrvalsleikurum. Og hér er að finna
textana. Nákvæmlega orðrétta eins og þeir
eru á bandinu. Viðkomandi háskóli getur
keypt kópíu af þessum leikritum á bandi.
Fyrir 35 dollara held ég eitthvað svoleiðis,
og síðan getur hver nemandi eða deildin í
heild prentað þessa texta niður, þeir geta
lesið þessa texta, kynnt sér þá, farið ofan í
þá, og hlustað síðan og lært framburð.
- Aha. (Hjálmar) Þannig að þetta er
einskonar alheimsbatterí, sem er stjórnað
hér frá þessum punkti við Bókhlöðu-
stiginn. En það spurning hvort við ættum
ekki að heyra brot úr, úr hérna....
- Já, (Ævar) hvað mættum við, við fá að
hlusta á, Þorgeir?
- Ég held hann sé með niðurlagið af
leikritinu sem heitir Böðullinn. Þar sem að
Helga Bachmann leikur Agnesi hérna
Magnúsdóttur. Rétt, og við erum stödd rétt
fyrir aftökuna.
-En, en hvað þessi skjótti þarna er
fallegur (Helga) Hver á hann?
Hver skyldi eiga þennan hest?
-Ég veit ekki góða mín (....)
- (Hjálmar) Við heyrðum lokasenuna úr
leikj'iti Þorgeirs Þorgeirsonar; Dómarinn
heitir það; og við vorum stödd hérna rétt
áðan inni í Netheimum, þar sem Þorgeir
leiddi okkur um sína vefsíðu og þann
netheim sem hann hefur komið sér upp.
Og þar fundum við raunar œviágrip
Þorgeirs Þorgeirsonar. Fœddur í
Hafnarfirði 30.04.1933, sem þýðirþað
væntanlega að Þorgeir hefur átt sextíu og
fimm ára afmæli nýlega. Síðan stendur
stúdent frá stœrðfræðideild MR 1953.
1953-1962 ferðalög um Evrópu og nám í
Vín, Madríd, París og Prag, í
tungumálum, listasögu, sjónvarpsmynda-
gerð og leikstjórn. 1962-1972, rak sjálf-
stœða kvikmyndagerð f Reykjavík og fram-
leiddi dokkumentalmyndir. Stofnaði
kvikmyndasafnið SEST og rak Litlabíó við
Hverfisgötu um sinn 1968. Skrifaði og
þýddi útvarpsleikrit, sem hann leikstýrði
fyrir leiklistardeild Ríkisútvarpsins,
skrifaði um kvikmyndir og sjónvarp fyrir
blöð og tímarit, hlaut verðlaun úr
Arasjóði fyrir skrif um þjóðfélagsmál,
fe'kk alþjóðlega viðurkenningu fyrir
kvikmyndina Mann og verksmiðju. 1972
til þessa dags: Freelance-ritstörf og
þýðingar, var meðal stofnenda leiklistar-
skóla SAL, og kenndi þarýmisfög. 1987:
Dæmdur af hœstarétti Islands fyrir
óviðurkvœmileg skrifum lögregluofbeldi.
1988: Stofnaði bókaútgáfuna Leshús.
1991: Kjörinn heiðursfélagi íslenskra
kvikmyndagerðarmanna „meðþökkum
fyrir ómetanlegt framlag og braut-
ryðjendastörf íþágu kvikmynda á
Islandi “. Og um kvikmyndagerð hefur
Þorgeir skrifað greinaflokkinn Kvartett
um kvikmyndir. 1992, 26.júní, skar
Mannréttindadómstóll Evrópu í
Strassborg upp þann úrskurð að dómur
Hæstaréttar Islands frá 1987 hefði verið
brot gegn 10. grein Mannréttindasáttmála
Evrópuráðsins. - Og síðan stendur hér
reyndar: Þorgeir hefur notið hálfsárslauna
úr launasjóði rithöfunda undanfarin ár.
- Já. (Ævar) Og þetta er eitt af því sem
hægt er að skoða og glöggva sig á á
Vefsetri Þorgeirs, sem við höfum verið að
biðja hann að leiða okkur um eins og
Hjálmar nefndi. En það er nú farinn - við
erum komin eiginlega nær sólskininu
hérna úti í eiginlega dyrnar á Leshúsi, -
við erum komin í efnisheiminn. Komin í
eiginlega - þetta er svona eins og að
lenda svolítið í álögum eða einhverjum
ævintýrum.
- Ganga í björg (Þorgeir).
- Ha? (Ævar) Ganga í björg? Já en þú -
það er hérna í þessari - það er einmitt
dagsetningin á stofnun Leshúss. Það eru
tíu ár síðan.
- Já.
- Og það eiginlega - mig langaði til þess
að, að bera undir þig, Þorgeir, í framhaldi
af þessu tali um Veftnn, er þessi nýi
staður þinn, Vefsetrið, er það, ertu, hvað á
að segja, er þetta ennþá svona rneira
konungsríki einyrkjans heldur en nokkurn
tímann Leshús gat verið?
- Ja, , allir staðir þar sem ég kem eru að
hálfu leyti flóttamannabúðir.
- Jahá.
- Þetta eru mínar flóttamannabúðir, sem
stendur.
- (Hjálmar) Attu við að þú sért að flýja
raunveruleikann, flýja efnisheiminn inn í
...?
- Ég er að flýja allan skrattann. Og- og
hérna, já meðal annars kannski raun-
Tölvumál
23