Tölvumál - 01.03.1999, Page 25

Tölvumál - 01.03.1999, Page 25
hef hljóðbækur til sölu, sem ekki er hægt að setja inn á, inn á vefmn, og þannig, er vefurinn lika - hann er svolítið aug- lýsingatæki líka. En með miklu hljóðlátara og hlutlausara hætti en, heldur en bók- salan og það er. - Manni finnst, Þorgeir (Ævar), að það, þetta sé hugsanlega óskastaða, fyrir þann sem hefur eitthvað að segja, og kann að koma því frá sér, að þú ert laus við pólitískt skorðaða ritstjóra og - og svona mis- hvað á að segja -verslunarsinnaða útgefendur, það er bara, bara ef þú ert, ef þú getur komið höndum yfir þetta tæki, þá ertu þinn eigin herra, í útgáfunni! En - frelsið, svona til framtíðar litið, þú skri... hérna ég sé hér í - að ég held það sé úr nýju bókinni, eiginlega alveg orðinn ruglaður í þessu.... - Já,jájá. - Nýju bókinni, þar sem þú ert að tala um... um áhrif vefsins, þessa miðils, og segir eitthvað á þá leið að það hafi verið fróðlegt að fylgjast með innreið frelsisins í stjórnmálaumræðuna. Þið kveinkið ykkur, sem vonlegt e>; undan því að standa allt í einu berskjölduð áflatlendi stjómmál- anna. Þið virðist óttast það að óheiðarleg vinnubrögð á Netinu muni uppskera mikla pólitíska sigra og safna atkvœðum í sekkjavís. Þannig varþetta í gamla kerfinu. Er þetta bréf til - hvað borgar- stjóra eða hvað? - Þetta er bréf til þeirrar sem að seinna varð borgarstjóri, já. Og hérna, það er nú reyndar ennþá merkilegra að skoða þetta dæmi sem að ég er að fjalla um þarna, þetta er náttúrlega Hrannars-dæmið. Það er ... voru skítleg vinnubrögð. Og ég efast ekki um það að tvö-þrjú prósent af yfir- burðum R-listans er bein afleiðing af þessu. Af því fólki fellur þetta ekki í geð, þessi aðferð, þessi persónulega uppljóstrun. En, vondur hlutur getur leitt af sér góðan hlut. Takið eftir því hvað gerist eftir kosningarnar. I fyrsta sinn í íslenskum stjórnmálum, þá víkur stjórn- málamaður sjálfviljugur sæti. Þetta eru alger vatnaskil í íslenskum stjórnmálum. Bein aUeiðing af illri gerð er eitthvað það bjartasta sem hefur gerst í pólitík lengi. - Þannig að þú, Þorgeir, telur (Hjálmar) ekki ástæðu til þess að, að vera mjög óttasleginn yfir því að Internetið, sem er svona galopið, að það sé þá um leið grundvöllur fyrir allskyns skrílmennsku og níð og slíka hluti, og þessvegna beri eiginlega að ritskoða.... - Ekki meira - ekki meira heldur en bara lífið sjálft. Eg meina, þú kemur ekki og lokar lífinu af því að einhver er að ljúga einhverju upp á annan. - En nú hefur, nú hefur til dæmis erlendis, (Hjálmar) og eitthvað hefur það nú aðeins borið á góma hér, að... ákveðnar tilhneigingar til þess að setja einhverjar skorður á Internetið, menn - það eru svo sem alltaf nefnd sömu dæmin, klám, og ekki bara klám þá heldur barnaklám, og persónuníð og aðrir slíkir hlutir... - Já. Menn eru alltaf að reyna að vernda börnin. Eg veit það ekki. Þau verða nú fullorðin með tímanum. Aha, en hérna.... - (Ævar springur) - Aha, en ég, nei netið verður ekki hamið. Það er ógjörningur. Við skulum bara taka dæmi. Við skulum segja að ein- hverjum líkaði ekki það sem ég er að skrifa núna á netinu, og og hérna kæmi með saksóknara og segði: þetta gengur ekki, við kærum þig. Eg segi: elskurnar mínar við tökum þetta bara út. Við tökum þetta bara út, ef að, ef að íslensk lög leyfa þetta ekki þá tökum við það bara út. Ég hef svæði hérna í Sviss eða Kanada eða hvar sem er, það er fullt af svæðum, sem að vista það sem ekki fæst birt. Þetta eru mannréttindasamtök, „url“. Og þar er þetta sett inn. Svo set ég tengil, ja, það tekur fimm sekúndum lengri tíma að ná þessu heldur en, heldur en áður, en það er ekki hægt að lögsækja mann fyrir það því að íslensk lög ná ekki yfir það. Þetta gerir það að verkum, í málfrelsismálum, að það liggur við að maður þurfi ekki að hafa áhyggjur af þeim lengur. Vegna þess að - að reglur um mál..., þar sem að höft á málfrelsi eru víðust í heiminum, það verður mælikvarði fyrir allan heiminn. Fyrir allan heiminn eins og hann leggur sig. - En þetta þýðir þá líka öðrum þræði (Hjálmar), að tæknilegar framfarir, þær hafa einhvern veginn, ja brotið niður múra og unnið gegn - kannski þeirri tilhneigingu, ja valdaaflanna í þjóðfélag- inu, til þess að halda einhverju ákveðnu ástandi og jafnvel banna einhverja Tölvumál 25

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.