Tölvumál - 01.03.1999, Side 26

Tölvumál - 01.03.1999, Side 26
umræðu, og þarna eru það bókstaflega tæknilegar framfarir, sem að gera þetta eiginlega, eiginlega ómögulegt! - Já. Það má segja það. Það eru tækni- legar framfarir sem að koma því á sem að Sameinuðu þjóðirnar hafa ekki getað komið á. Fyrst og fremst af því þær hafa engan dómstól. Að þetta bara gerist, í tækninni, að semsagt reglur þess lands sem að hafa víðastar og frjálslyndastar reglur, þær verða heimsreglurnar. Af því að það verður að lögsækja menn í því landi þar sem að ummælin eru vistuð. Nú síðan getur viðkomandi ríki tekið höfundinn og hálshöggið hann og búið til úr honum sunnudagsmat eða hvað sem þeir vilja, en þetta stendur þarna áfram. Og ég var einmitt að skrifa upp þessa hugsun sem að þú last þarna áðan, á Netinu, af því að það er nú eitt við það er nú alltaf hægt að endurnýja, .... - Já. - Að segja skoðanir sínar á Netinu, það er stórfenglegt, af því, að það tekur þær enginn og skeinir sig á þeim. Eins og gerist alltaf við skoðanir sem að maður skrifar í blöð. - Þær standa þarna, eða sitja, rólegar, og bíða, í hundrað ár ef þú vilt, þangað til að einhver kemur og sækir þær. skoðanir, nefnilega, ég held að það séu góðar skoðanir, sem að einhver er sendur til að sækja, eða sækir sjálfur. - Nú er það, Þorgeir, hefur verið bent á það upp á síðkastið (Ævar), að, að umræðan á íslandi sé, hún sé þannig að allskyns fyrirbæri í peningastofnunum og víðar, það þurfi alþingismenn til þess að vekja athygli á því í fyrirspurnartímum, það er að segja, fjölmiðlarnir, þessir hefðbundnu, standi sig alls ekki, í stykkinu, að grafa ýmislegt upp og koma með gagnrýni. Samspil þessara hefðbundnu fjölmiðla og Netsins, í framtíðinni? -Það er spennandi spurning, sem að ég hef nú ekki hugsað mikið um. En, en ég segi: Vert þú bara ekki að gera miklar kröfur til blaðamannastéttar, sem er vaxin upp við þau skilyrði sem að íslensk blaða- mannastétt er vaxin upp við. Hundrað og fimmtíu fyrstu árin sem að blaðamennska var stunduð hér, var í gildi það sem að - klásúla, sem var sett átján hundruð fjörutíu og átta, og varð seinna hundrað- asta og áttunda greinin, og var ekki felld úr lögum fyrr en eftir níutíu, 1994. Þar er bannað að segja sannleikann urn opinbera starfsmenn. Það er að segja - fyrsta skylda blaðamannsins er sakarefni! Ég meina hvað er... - hver hefur leyfi til að kalla sig blaðamann sem að lýtur höfði fyrir því að það megi ekki segja sannleikann? Og sérstaklega að það megi ekki segja sannleikann um opinberar fígúrur? - En hjálpin er - þessi nýi miðill (Ævar), heldur þú að hann hjálpi okkur gömlu fjölmiðlamönnunum; gammeldags? - Eg þori ekki að segja um það - hann ögrar ykkur allavega. Þessi slagur minn núna í kringum kosningarétlinn, hann endaði með því að ég sendi á Netinu, öllum miðlum, útvörpum og sjónvörpum, auglýsingu, sem að, ykkur að segja, var bara venjulegur lýðræðissinni að tala. Og lýðræðissinni niðri á fletlendinu. Ennþá hefur enginn fjölmiðill þorað að birta þetta. - En hérna hafði kö.... - Þannig að ástandið er raunverulega eins og það var í Sovétríkjunum, eða hjá Lúðvíki XVI við hirðina, venjulegur lýðræðissinni, hann er, hann er hættulegur sprengjukastsmaður sem að enginn má taka eftir! Þetta er bara sönnunin á því að hér ríkir þessi, þessi fasismi. Sem að ég hef oft verið að tala um. - Svo segir maður bara - svo segir maður bara amen... (Ævar) Nei, nei, ég veit ekki hva... ég held við bara... segjum nú amen hér, í þessu. - Eitt sem mig langaði til þess að koma inn á, og sem ég veit að það er ekki bara spurning um Vefinn, þá nýju aðferð, en þú sagðir áðan Þorgeir, að þú hugsanlega fengir viðbrögð, jafnvel við, jafnvel við þínum texta? - Það var ég að vona. Það var ég að vona að það væri hægt að þróa, í vefútgáfu, sérstaklega ef hún er svona víðtæk eins og ég er að fara útí hana, að það væri hægt að þróa einhver tvíhliða skipti. Að maður væri ekkert að bíða eftir því að einhver, einhver krítikera-vitleys- ingur skrifaði eitthvert bull, heldur gæti fengið sendingar, skemmtilegar, jákvæðar, neikvæðar, gagnlegar, ógagnlegar, frá þeim sem eru að lesa. Framhald á bls. 28 26 Tölvumál

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.