Vísir - 28.11.1962, Page 4

Vísir - 28.11.1962, Page 4
4 V1SIR . Miðvikudagur 28. nóvember 1962. Á stöðvarstjórafundi Loftleiða, sem haldinn var í Khöfn dagana 15.— 17. nóvember s.I., var m. a. rætt um aukna farþegaþjónustu, endurbætur á vinnutilhögun uop- lýsingaþjónustu fyrir farþega, fjar- skiptaþjónustu og ýmislegt fleira, sem snertir rekstur og starfsemi afgreiðslustöðva Loftleiða heima og erlendis. Loftleiðir hefur afgreiðslustöðv- ar í Khöfn, Hamborg, Glasgow, London, Luxemburg, Amsterdam, Gautaborg, Helsinki, Osló, Stav- angri, New York og Reykjavík, Fulltrúar frá öllum þessum stöðv- um mættu á fundinum í Khöfn, á dögunum, en það er í fjórða skipti, sem slíkir fundir eru haldnir, sá fyrsti f Reykjavík, næsti f Ham- borg og hinn þriðji f New York. Það er Bolli Gunnarsson eftir- litsmaður með flugvallaafgreiðslu Loftieiða á öllum flughöfnum heima og erlendis þar sem félagið hefur Iendingarleyfi, sem stjórn- aði fundinum og skipulagði undir búning hans. Á fundinum mættu, auk hans 14 fulltrúar frá öllum stöðvum félagsins, þar af þrír ís- lendingar, þeir Jóhannes Óskars- son úr Reykjavfk, Erling Aspelund frá New York og Emil Guðmunds son frá Khöfn. Hinir fulltrúarrir ailir eru af erlendu þjóðerni. Samkvæmt upplýsingum, sem Vísir fékk frá Bolla, eru það verk- efni þessara árlegu funda eða ráð- stefna að ráða fram úr ýmsum vandamálum, sem koma fram á hinum einstöku stöðvum og varða félagið í heild. Má segja, að þar beri umbætur á almennri farþega- xjónustu hæst, enda kvað Bolli að Loftleiðir legðu á það rika á- herzlu að gera farþegunum allt til hæfis, sem unnt væri að gera, jafnt f loftinu, sem á jörðu niðri meðan þeir bíða eftir flugvélun- um. Meðal annars kom fram á fundinum tillaga um að auka og endurbæta matarþjónustuna í flug vélunum. — Þetta stafar þó pkki af kvörtunum, enda eru Loftleiðir rómaðar bæði heima og erlendis fyrir góðan mat og fullkomna þjónustu á þvf sviði. Samt sem áður var lagt til að betrumbæta hana á næstunni. Annað sem snertir farþegaþjón- ustuna er aukið leiðbeininga- og upplýsingastarf fyrir farþega, þannig að félagið geti leiðbeint þeim um það helzta sem snertir framhald á ferðum þeirra eftir að þeir yfirgefa Loftleiðavélarnar og annað sem þeir óska upplýsinga um. Þá er ráðgert að auka og end- urbæta fjarskiptaþjónustuna milli Loftleiðastöðvanna bæði í Evrópu og Ameriku. Hefur félagið tekið upp fjarritakerfi og mun eftirleið- is senda allar upplýsingar og Bolli Gunnarsson skeyti milliliðalaust milli stöðva sinna innbyrðis. Á þennan hátt getur félagið sent upplýsingar um farþegalista sína milli áfangastaða strax eftir flugtak, en þær upp- Iýsingar hafa yfirleitt ekki fengizt til þessa fyrr en flugvélarnar hafa verið lentar. Um þessi mál hefur tekizt góð samvinna við yfirstjórn Landssfmans. Önnur mál, sem rædd voru á fundinum í Khöfn var m.a. ein- faldari og hagsýnni vinnuaðferðir f afgreiðslustörfum einkum í því skyni að flýta fyrir afgreiðslu flugvélanna á lendingarstöðum. Þá var og rætt um ýmiss konar vinnu- fyrirkomulag annað, vandamál er steðja að f sambandi við af- Eitthvert það athyglis- verðasta, sem komið hefur fram í umræðunum um Efnahagsbandalagið á Al- þingi, eru þau ummæli Bjarna Benediktssonar, að tolla- og viðskiptasamning ur sé nánast eitt afbrigðið af aukaaðild. Framsóknarflokkurinn hefur tekið upp þá stefnu varðandi Efnahagsbanda- tagið, að telja aukaaðild átilokaða, en tolla- og við- I skiptasamning einu færu I Ieiðina. greiðslu á farangri farþega og vöruflutningum o.fl. Að lokum skýrði Bolli frá því að Loftleiðafulltrúarnir hafi með- an á ráðstefnunni stóð þegið boð SAS einn daginn, til að skoða bækistöðvar þessara helztu keppi- nauta þeirra á Kastrupflugvelli. Bolli sagði að þar hafi þeim gefizt kostur á að kynna sér ýmsa starf- semi þessa stóra flugfélags og m.a. gat hann sérstaklega um veitinga- sölu þá, sem selur veitingar í flug vélar frá fjölmörgum flugfélögum, sem viðkomu hafa á Kastrupflug- velli. Sagði hann að þar hafi margt merkilegt og nýstárlegt gefið að líta. Segja formælendur flokksins að aukaaðild fylgi ýmis óaðgengileg skilyrði og að aukaaðild þróist ætíð upp í fulla aðild að vissum tíma liðnum. Bjarni Benediktsson benti á á Alþingi s.l. föstudag, að aukaaðild og viðskiptasamningur væri nánast hið sama. Á þessu tvennu væri eng inn eðlismunur. Aukaaðild er af- skaplega teygjanleg, hún getur „eins og Eysteinn Jónsson hefur bent réttilega á“, verið allt úr 1% upp í 99%. Hann benti og á, að sú aukaað- ild, sem hlutlausu ríkin í Evrópu, Svíþjóð, Austurríki og Sviss, hefðu sótt um, mundi ekki breyta um eðli eða leiða til fullrar aðildar. Aukaaðild þyrfti því engan veginn að leiða til fullrar aðildar. Þegar framsóknarmenn tala um að aukaaðild sé útilokuð en við- skiptasamningur eina færa leiðin og Tryggingalög samræmd Tillaga til þingsályktunar hefur verið lögð fyrir Alþingi, sem veitir ríkisstjórninni heimild til að full- gilda fyrir islands hönd bráða- ; birgðasamning Evrópuríkja um fé- I lagsleg tryggingarlög varðandi elli, örorku, eftirlifendur, framfærslu og læknishjálp o. fl. Tillaga þessi er liður í þeirri ein- ingu sem hið svokallaða Evrópuráð beitir sér fy.rir meðal landa álfunn- ar. Tilgangurinn er sá að stuðla að framförum á sviði félagsmála, og einn þátturinn í því er sá að koma á þeirri reglu, að útlendingar njóti sama réttar á sviði félagsmála og eigin þegnar dvalarlandsins njóta. Markmiðið með þeim samning- um, sem nú liggja fyrir um trygg- ingarlögin, er að tryggja að sér- hver meðlimur Evrópuráðsins veiti þegnum annarra meðíima þess jafn rétti við sína eigin þegna, að því er tekur til réttinda á þeim svið- um, sem samningarnir taka til og enn fremur að þegnar Evrópurikj- anna njóti góðs af tilteknum rétt- indum samkvæmt gildandi samn- ingum milli ríkjanna. ---------- I SUS-rit um fundarsköp Nýlega er komið út handhægt, lítið rit um fundarsköp, skrifað af Braga Hannessyni, héraðsdómslög- manni og gefið út af Sambandi ungra Sjálfstæðismanna. Ritið er 37 blaðsíður og fjallar um helztu aðalatriði fundarskapa. I fprmála segir Þór Vilhjálmsson formhður SUS: „Ætlunin var að gefa stutt yfirlit um aðalreglurnar um almenn fundarsköp, en rekja þær þó nægilega ítarlega til að öllum helztu atriðunum væru gerð nokkur skil og bókin gæti orðið til hjálpar í þeim vandamálum, sem reynslan hefur sýnt að helzt komi upp á þessu sviði. Það er pnat okk- ar I stjórn Sambands ungra Sjálf- stæðismanna að höfundinum hafi tekizt að feta hinn rétta meðalveg í þessu efni og því höfum við ráð izt í að fá ritið prentað svo að það geti orðið sem flestum að gagni." hefja deilur þar um, þá eru þeir að deila um keisarans skegg. Ef ísland sækti um aukaaðild, þá veit enginn og allra sízt framsókn- armenn, að hvaða kjörum við verð- um að ganga, eða hvers konar samningum við náum. Þetta sýnir aðeins þá óábyrgu afstöðu, sem Framsóknarflokkurinn hefur tekið í þessu viðkvæma máli. Eftir að hafa þagað um málið í langan tíma byrja þeir á því að fordæma við- ræður ríkisstjórnarinnar við ráða- menn Efnahagsbandalagsins og lýsa síðan andstöðu sinni á leið, sem nánast getur verið sú sama og sú, sem þeir\lýsa stuðningi við. Af þessu er hins vegar Ijóst, að skoðanamunur stjórnarflokkanna og Framsóknarflokksins er ekki mikill og lofar það góðu um að samstaða geti náðst milli þessara flokka f hinu veigamikla máli, sem viðvíkur Efnahagsbandalaginu. Efnahaðsbandalagiðs VIÐSKIPTASAMNINGUR SAMA OG AUKAAÐILD

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.