Vísir - 17.12.1962, Blaðsíða 8

Vísir - 17.12.1962, Blaðsíða 8
24 V1SIR . Mánudagur 17. desember 1962. Bók handa bókamönnum Ritgerðasafn eft- ir Grétar Fells Bókaútgáfan Skuggsjá hefur safni Grétars Fells, en fyrra bindi sent frá sér bókina Það er svo með sama nafni kom út hjá margt, annað bindi af ritgerða- „Ferðarolla Magnúsar Stephen sen“ er fimmta og síðasta bókin, sem Bókfellsútgáfan sendir á markað fyrir þessi jól, og er hún komin 1 bókaverzlanir. Segir þar frá utanför Magnúsar konferenzráðs á árunum 1825 — ’26, og segir hann þar skemmti- lega nákvæmlega og hispurslaust frá ferð sinni, bæði á leiðinni til Danmerkur og dvöl sinni þar. Ytra hitti hann margt stórmenna, eins og við var að búast, þar sem Hugprúð- ir menn Komin er út á Islenzku bók eftir núverandi forseta Banda- ríkja Norður-Ameríku, John F. Kennedy. Bókin nefnist á frum- málinu Profils in Courage og hef ur þýðandinn, Bárður Jakobsson, valið henni heitið Hugprúðir menn. Bókin hefur komið út í 3 útgáfum á ensku, síðast 1 fyrra, og hún hlaut Pulitzer-verðlaunin 1957. Teikningar með lesmáli eru eftir Emil Weiss. í þessari bók eru frásagnir af ýmsum þingmönnum sem komið hafa við sögu Bandaríkjanná og getið sér mikið orð. Bókin er 167 blaðsíður, prentuð- í Prentsmiðj- unni Ásrún. Útgefandi er Ásrún. • • Oddubók Jenna og Hreiðar Stefánsson á Akureyri eru meðal vinsælustu barnabókahöfunda hér á landi. Síst það bezt á viðtökum þeim, sem bækurnar þeirra hafa fengið, þvl að margar þeirra hafa verið uppseldar árum saman og er Bókaforlag Odds Bjömssonar far- i3 að senda þær út í annarri út- gáfu. Nú er komin 2. útgáfa af sögu, sem heitir Adda og litli bróðir, sem kom fyrst út 1947, og er þetta önnur Öddubókin, sem gefin er út í annað sinn. Hall dór Pétursson hefgr myndskreytt þessa bók, sem er 86 blaðsfður. hann hafði áratugum saman verið einn tignasti embættismaður landsins, og er erindi hans mik- ilvægt, því að aðalerindi hans var að fá Jónsbók gefna út. Svo og til að fá rit sitt „Commentatio" viðurkennt sem doktorsrit. Taldi hann, að málinu væri borgið, er hann sneri heim aftur — enda hafði hann þá sent inn handrit sitt, en þó fór svo, að Jónsbók var aldrei gefin út, og voru hon- um það mikil vonbrigði. Bók þessi er 208 síður með nafnaskrá o. fl., í frekar litlu broti, en í hvívetna gefin vel út, enda kappkostar Bókfellsútgáfan að frá henni fari ekki aðrar bæk- ur en þær, sem henni em til sóma. Framan við sjálfa Ferðarolluna er grein Þorkels Jóhannessonar prófessors, sem hann ritaði um Magnús Stephensen 1933, er hundrað ár voru liðin frá andláti hans, en 27. desember n. k. eru hins vegar liðin 200 ár frá fæð- ingu hans. Hér er á ferðinni bók, sem bókamenn mega ekki láta fara fram hjá sér. Mannfagnaður Grétar Fells. ísafoldarprentsmiðja hefur gef ið út bókina Mannfagnaður eftir Guðmund Finnbogason. Er þetta ný útgáfa og nokkuð aukin, en fyrri útgáfa bókarinnar kom út 1937 og hlaut þá frábærar mót- tökur. Eru í bókinni 55 ræður um hin margvíslegustu efni, bæði um menn og málefni, svo sem ræður um Stephan G. Stephans- son, Jónas Hallgrimsson, Matt- hías Jochumsson, Einar H. Kvaran, Hallgrím Pétursson, Einar Benediktsson, og fjöldi annarra ræðna. 1 formála fyrri útgáfu segir Guðmundur Finn- bogasor. svo m. a.: „Heyrt hef ég þeirri skoðun hreyft, að ræður nytu sín ekki á prenti, þær væru töluð orð og lifðu ekki fullu lífi nema um leið og þær liðu af vörum ræðu- manns. Mín skoðun er sú, að þær ræður, sem ekki þola prent- svertuna, séu ekki annað en hljómandi málmur og hvellandi bjalla". Bókin er 175 blaðsíður í all- stóru broti. Skuggsjá í fyrra. Þetta er safn ritgerða og erinda um margvísleg efni, — sálfræðileg, heimspekileg, dulfræðileg og fagurfræðileg Grétar Fells er þegar orðinn þjóð- kunnur maður fyrir erindi sln, er hann hefur svo sem kunnugt ei verið helzti forvigismaður Guð- spekifélagsins á íslandi. Hefui hann flutt erindi bæði á veguro Guðspekifélagsins og f útvarpið, auk fjölmargra tímaritsgreina, sem eftir hann liggja. Flestir þáttanna í bókinni eru hugleiðingar um lífið og tilver- una, og eru þær jafnan litaðai persónulegri skoðun og reynslu höfundarins og eiga brýnt erindi til þeirra manna, sem sinna and- legum málum. 1 formálsorðuro bókarinnar segir höfundur m. a þetta: „Höfundur þessara fyrir- lestra leyfir sér í allri auðmýkt að vænta þess, að eitthvað af efni þeirra megi seytla inn í sálir les- endanna og eiga sinn þátt í ein- hverjum góðum gróðri — þó að ekki væri öðrum en þeim, er kall- ast vakning til frjálsrar hugsunar forvitni um leyndardóma lífsins". Bókin er prentuð í Prentsmiðju Guðmundar Jóhannssonar, hefur að geyma 23 fyrirletra og er 296 bls. að stærð. Afmælisútgáfa Máls og menningar komin út Um þessar mundir eru Iiðin 25 ár frá því að bóknienntafélagið Mál og menning sendi frá sér fyrstu bókina, er var Vatuajökull eftir Niels Nielsen í þýðingu Pálma Hannessonar. En sem kunnugt 3i álcvcS íó'agið að efna til sérstakrar, va:.úcL'.-cr afmælis- útgáfu og eru bækumar, tólf að tölu, nú komnar á markaðinn. Eintakafjöldi að afmælisútgáf- unni var bundinn við 500 eintök. Þar af 100 áritaðar og tölusettar. Er eftirspurn eftir bókunum svo mikill að aðeins lítið er eftir af þeim tölusettu og árituðu, sem vom að sjálfsögðu nokkru dýrari. Ármann Kr. Einarsson. Ný drengjabók eftir Ár- mann Kr. Einarsson Allar eftir þjóðkunna ísienzka höfunda. Afmælisbækurnar tólf að tölu eru allar eftir þjóðkunna íslenzka höfunda og eru þær þessar: Vegurinn að brúnni, skáldsaga eftir Stefán Jónsson, Vort land er í dögun, úrdrættir úr ritgerð- um eftir Einar Olgeirsson. Út- gáfuna annaðist Björn Þorsteins- son. Ræður og riss, ritgerðir og ræður eftir Sverri Krictjánsccn. Andlit Asíu, ferðasaga eftir Rann veigu Tómasdóttur. Tvær kviður fornar, Völundarkviða og Atla- kviða, með inngangi og skýring- um eftir Jón Helgason. Grfskar þjóðsögur og ævintýri, tekið saman af Friðriki Þórðarsyni. Tuttugu erlend kvæði og einu betur, þýtt og stælt af Jóni Helga syni. Óijóð, ný ljóðabók eftir Jó- hannes úr Kötlum. Blakkar rúnir, smásögur eftir Halldór Stefáns- son. í Unuhúsi, minningar skrá- settar eftir Stefáni frá Hvítadal af Þorbergi Þórðarsyni. Skrifta- mál uppgjafa prests, fyrirlcstrai og ritgerðir eftir Gunnar Bene- diktsson. Prjónastofan Sólin, eft- ir Halldór Kiljan Laxness. Sérstök ástæða er að vekja á því athygli að allar em bæk- urnar f mjög vönduðu bandi og sérstakur pappír hefur verið notaður, einnig hefur verið Ieitað aðstoðar þekktustu listamanna við káputeikningar og að sjá uro útlit þeirra. 1 annarri útgáfu hjá Heimsgringlu. En þar sem eintakafjöldi ei mjög lítill hefur bókaútgáfan Heimskringla gefið allar þessai bækur út f annarri útgáfu og ei það án efa mörgum gleðiefni, þvi hér er um að ræða mjög fjöl- breytt verk eftir þjóðkunna ís- lenzka höfunda og kápur og út- lit svíkur engan. Ármann Kr. Einarsson rithöf- undur hefur sfðustu dagana sent 20. bók sfna á markaðinn og telst það til afreka af ekki eldri manni. Þessi sfðasta bók Ármanns er barnabók, heitir „Óli og Maggi“ og er einkum ætluð drengjum á aldrinum 8—12 ára. Bókaforlag Odds Björnssonar á Akureyri gefur hana út og hefur gert það vel og smekklega, m. a. skreytt hana fjölmörgum teikningum eftir Halldór Pétursson listmál- ara. í fyrra kom út drengjabók eftir Ármann, sem hann nefndi Óskasteininn hans Óla. Sú saga hlaut verðskuldaðar vinsæld ir og þessi nýja bók Ármanns fjallar um sömu söguhetju, Óla, enda þótt bókin sé að öðru leyti sjálfstæð heild og ekki f neinum beinum tengslum við hina fyrri sögu. Hér er Óli orðinn sendi- sveinn f bókaverzlun og kemst jafnframt í kunningsskap við annan dreng á svipuðu reki, en sá er kallaður Maggi. Maggi er hugvitssamur mjög, hefur ráð undir hverju rifi og býr til ýmiss konar undarleg tæki. í sambandi við þau lenda drengirnir báðir í mikilli og spennandi atburðarás, sem höfundurinn segir frá á mjög Iifandi og skemmtilegan hátt. Ármann Kr. Einarsson hefur með unglingabókum sínum getið sér góðan orðstír ekki aðeins hér heima heldur er og tekið að þýða bækur hans á erlendar tungur. og þar hafa bækur hans einnig náð mikilli útbreiðslu og vin- sældum. Eins og að framan getur er þetta 20. bók Ármanns. Þar af eru 3 skáldsögur, eitt smásagna- safn, en hitt allt barna- og ung- lingabækur. í fótspor meistarans Bókaútgáfan Ásrún hefur ný- Iega sent frá sér bókina I fótspor meistarans eftir H. V. Morton. Þetta er ferðasaga frá landinu helga. Gissur Ó. Erlingsson hefur þýtt bókina á íslenzku. Farið er um ísrael og Trans-Jórdaníu, einkum er vandlega lýst öllum sögustöðum, sem snerta líf Krists. í inngangi höfundar seg- ir: „Þessi bók er ferðasaga. Hún fiallar um ævintýri manns, sem fór til landsins helga til að sjá með eigin augum þá staði, sero . snerta ævi Jesú Krists, og leitað sér vitneskju um þann nýja fróð íeik, sem fræðimenn á svið> mannkynssögu og fornminjaranr sókna hafa grafið upp um sögu- svið guðspjallanna”. 1 bókinni eru allmargar mynd- ir, hún er 292 blaðsfður að stærð, prentuð í prentsmiðjunni Ásrún.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.