Vísir - 22.12.1962, Side 12
VISIR
Laugardagur 22. désémDéri962
Stórbrim
Útsynningsrok, hafrót og stór
brim og ekkert útlit fyrir, að
síldarbátar fari á sjó fyrir jól,
eins og nú horfir, sagði Sigurð-
ur Vigfússon fréttaritari Vísis í
morgun, er blaðið átti tal við
hann.
Menn eru hér á þönum, sagði
Sigurður ennfremur til að sjá
um, að ekkert verði að bátunum
af völdum veðurofsans. Hann
kvaðst hafa heyrt, að tveir bátar
hefðu andæft út af Jökli í morg
un, og gætu það verið bátar
sem lágu á Skarðsvík og ætluðu
>uður, en þótt ofhvasst til að
halda áfram.
Slys í Keflavík
Um klukkan fimm í gær varð
það slys í Keflavík að tólf ára
drengur Erlendur Jónsson, Vestur-
götu 7, hljóp fyrir bíl og Iærbrotn-
aði. Drengurinn var fluttur á sjúkra
húsið og er líðan hans eftir von-
um.
Slys þetta skeði neðarlega á
Tjarnargötunni. Bjargaði það því,
að ekki hlauzt af verra slys, að bíll
inn var á mjög lítilli ferð, en um
var að ræða sex manna fólksbíl.
Ekki var veruleg hálka, en snjó-
hroði á götunni.
Þannig lita rústimar af Norðfjörðshúsi í Keflavík út.
EITT ELZTA HÚS LANDSINS EYDI-
í rokinu sem gekk yfir nú i
vikunni gerðist það í Keflavík.
að eitt af elztu húsum bæjarins,
hið svokallaða Norðfjörðshús
hrundi algerlega saman eins og
spiiaborg og liggur nú i rústum.
Hús þetta á sér langa sögu.
Það stóð lengi við Hafnargötuna
og var notað sem fiskaðgerðar-
hús og síðan sem pakkhús. I
Skipstjórmn áæmdur í áag\
Rannsókn er nú lokið á ísafirði
£ máli skipstjórans á brezka tog-
aranum Boston Wellval, sem tek-
inn var að ólöglegum veiðum af
varðskipinu Þór, eina sjómílu fyrir
innan fiskveiðitakmörkin austan
við Horn, í fyrrakvöld. Var mál
höfðað í gær og verður dæmt í
máli hans I dag.
Skipstjórinn, Walter Oxer, taldi
sig hafa verið fyrir utan takmörk-
in. Við athugun kom í ljós, að
hann var bæði með skakkan átta-
vita og ratsjá. Kom annar brezk-
ur togari á vettvang og mældi upp
dufl það, er varðskipið setti út.
Komst hann að sömu niðurstöðu
og varðskipið.
1 Skipstjórinn á togaranum nam.
! þegar staðar, þegar varðskipið ':
i skipaði honum það. Hefur hann
verið hinn kurteisasti. Oxer er mið-
aldra maður og er þetta fyrsta
ferð hans a skipi þessu, sem er
nýtt, byggt í ár og 418 brúttólest-
ir að stærð.
sumar var húsið flutt frá Hafnar
götunni þar sem það var orðið
fyrir £ umferðinni og flutt vest
ur að áhaldahúsi bæjarins, þar
sem grunnur hafði verið steypt
ur undir það. Var húsið á þess-
um nýja grunni þegar það
hrundi nú.
Norðfjörðshús var ekki byggt
upphaflega í Keflavík, heldur í
verzlunarstaðnum í Básendum
og var þá eign Hansens kaup-
manns, komu bæði kaupmenn
og hús þetta við sögu í hinu
mikla óveðri og flóði þegar
verzlunarstaðurjnn í Básendum
eyddist 9. janúar 1799. Stóð hús
ið þær hamfarir þó af sér, en
Hansen kaupmaður flutti það til
Keflavíkur árið 1800.
Með rokinu í vikunni virðist
véðrahamurinn loksins hafa get
að grandað húsinu, sem slapp
syo naumlega við hamfarir nátt
úruaflanna fyrir 164 árum.
6DISTÍR0KI
Mislingar að ganga
Samkvæmt upplýsingum sem
blaðið hefur fengið hjá læknum í
Reykjavík og nágrenni, gengur nú,
mislingafaraldur. Ekki er hann
mjög útbreiddur, þar sem misling-
ar gengu bæði 1954 og 1958, þann-
ig að ekki er mikill grundvöllur
fyrir þá. Aðallega hefur misling-
anna orðið vart hjá börnum, en
ekki verið mjög alvarlegir.
Kvefpest hefur gengið að undan-
förnu og verið óvenju þrálát. In-
flúenzu hefur hins vegar ekki orð-
ið vart svo teljandi sé.
Auk þess eru að ganga í minni
mæli hettusótt, hlaupabóla, skar-
latssótt, rauðir hundar og fleira.
Hefur orðið vart flestra algengra
umferðarsjúkdóma, en enginn
þeirra er svo útbreiddur, að talizt
geti faraldur. Telja læknar að segja
megi að heilsufar sé almennt eðli-
legt, þar sem enginn þessara um-
ferðarsjúkdóma er útbreiddur.
Lauk doktorsprófií London
Nýlega hefur lokið doktorsprófi
í stjörnufræði við University of
London, Þorsteinn Sæmundsson
Hefur hann stundað þar nám und-
anfarin fjögur ár.
Þorsteinn lauk stúdentsprófi ár-
ið 1954 frá Menntaskólanum í
Reykjavík með ágætiseinkunn. —
Hélt hann síðan til náms við 'Uni-
versity of St. Andrews. Eftir fjög-
urra ára nám þar lauk hann prófi
í stjörnufræði með stærðfræði,
eðlisfræði og jarðfræCi sem auka-
fög. Nefnist það próf B. Sc. Hon-
ours. Hélt hann þaðan til náms í
London.
Þorsteinn kveðst hafa hug á því
að stunda hér rannsóknir á segul-
stormum og norðurljósum, sem
hann telur vera mjög nauðsynlegar
hér.
Þorsteinn er fæddur í Reykjavík,
árið 1935, sonur Sæmundar Stef-
: ánsson og Svanhildar Þorsteins-
i dóttur.
Langt komfö hitaveituíram-
kvæmúum í brem hverfum
Unnið er jafnt og þétt
við framkvæmdir vegna
hitaveitunnar, og á þriðju-
daginn var borholan vest-
an við Bílasmiðjuna við
Laugaveg tengd hitaveitu-
kerfi bæjarins.
Þegar Vísir innti Jóhannes Zoega,
forstjóra hitaveitunnar, eftir frétt-
um af þessu daginn eftir, skýrði
hann blaðinu svo frá, að úr hol-
unni fengjust um 30 lítrar á sek-
úndu, og væri vatnið enn að hitna.
Það var þá búið að ná 129 stiga
hita, þegar Vísir innti frétta af
þessu, en það tekur jafnvel nokkra
daga að ná hámarkshita, þar sem
það verður að hita bergið, sem það
fer um á leið sinni upp á yfir-
borðið. Hitinn í holum þeim, sem
tengdar hafa verið bæjarkerfinu að
undanförnu og eru á svæðinu fyrir
norðan Laugaveg og austan Nóa-
tún, er yfirleitt 136 stig, en í þeirri
holu, sem gefur heitast vatn, er
hitastigið hvorki meira né minna
en 140 stig.
Eftir nýár mun svo verða hafizt
handa um að tengja aðra borhol-
una við Lækjarhvamm (vestan við
aðsetur Kristjáns Kristjánssonar),
en ekki verður hægt að eiga við
hina fyrr en síðar á næsta ári, þar
Framh á bls. 5.