Vísir - 02.01.1963, Blaðsíða 3
\
V í SIR . Miðvikudagur 2. janúar 1963.
GAMLA ÁRIÐ
KVATTMEDELDI
Gamla árið var kvatt með eld-
um og rakettum og hvers konar
blysum um gervallt land og
nýju ari, 1963, heilsað. Það
kom sér vel, að veðurblíða var
um allt land og nutu brennurn
ar sín þess vegna einkar vel.
1 höfuðborginni og nágranna
sveitum, Kópavogi og Hafnar-
firði voru haldnar yfir hundrað
brennur, margar þeirra mjög
miklar. Loguðu þær aðaliega á
timanum kl. 10-12 og safnað-
ist oft mikill mannfjöldi í kring
um þær. í hópnum var yfirleitt
fjöldi unglinga, sem komu að
brennunum til þess að skjóta
þar rakettum og víðast voru
unglingar líka að sprengja kín
verja.
Myndsjáin birtir í dag nokkr
ar myndir serp eiga að sýna
eldinn sem gamla árið var
kvatt með. Stóra myndin sýnir
eina mestu brennu í Reykjavík,
sem var við Ægisíðuna.
Hinar myndimar sýna ýmsar
tegundir af blysum. Á einni
þeirra er ártalið 1963\skrifað
með logandi blysletri. Á ann-
arri sjást rákir eftir hin svoköll
uðu stjörnublys og loks sést
mynd af yngsta meðlimi fjöl-
skyldunnar þar sem hann fær
að halda á blysi og þorir þó
varla.