Vísir - 02.01.1963, Page 16
*
VISIR
Miðvikudagur 2. janúar 1963.
Útlit fyrir
hagstæðar
sölur
Samkv. uppl. LÍÚ laust fyrir há-
degi í dag var útlit fyrir hagstæð-
ar sölur í dag hjá Þormóði goða,
Frey og Jóni Þorlákssyni, sem all-
ir selja þar ísaða síld. — Geir
seldi 121 tonn af ísfiski í gær í
Englandi fyrir 8075 pund.
Agnar Ingólfsson
BANASL YS Á
VOPNAFIRÐI
Það sviplega slys varð á Vopna-
firði 29. desember að Agnar Ing-
ólfsson, loftskeytamaður á flutn-
ingarskipinu Arnarfelli féll niður af
landgöngubrúnni milli skips og
bryggju og beið bana. Sjónarvott-
ar voru að slysinu og maðurinn
náðist upp úr sjónum að þremur
mínútum liðnum, en lífgunartil-
raunir báru engan árangur. Þeim
var þó haldið áfram í fimm klukku
stundir. Lík Agnars var flutt til
Reykjavíkur til réttarkrufningar.
Agnar Ingólfsson var 36 ára
gamall, asttaður frá Siglufirði.
Hann var einhleypur en lætur eft-
ir áig foreldra á Siglufirði. Faðir
hans er Ingólfur Kristjánsson toll-
vörður.
Fyrsta barn ársins
Eins og í fyrra hringd-
um við á hinar opinberu
fæðin^arstofnanir borg-
arinnar og Fæðingar-
deild Landsspítalans til
að forvitnast um fyrsta
barnið á árinu í þessum
frægu stofnunum.
í fyrra var fyrsta barnið á
Fæðingardeildinni en í þetta sinn
var það á Fæðingarheimilinu.
Hin hamingjusama móðir var
KamiIIa Sveinsdóttir, Öldugötu
44, Hafnarfirði, sem eignaðist
myndarlega dóttur þegar ein
klukkustund var af nýja árinu.
í morgun heimsóttum við
Kamillu á Fæðingarheimilið,
sem er við Eiríksgötu. Forstöðu
konan Hulda Jensdóttir færði
Kamillu dótturina sem var svo
svöng að hún sinnti varla Ijós-
myndaranum. Mæðgurnar voru
frískar og vel hvildar. Fæðingin
hafði farið fram á eðlilegum
tíma og gekk prýðilega.
— Ég var búin að liggja hér
á heimilinu í tvær klukkustund-
ir, sagði Kamilla, þegar ég eign
aðist barnið.
— Er ekki fæðingarheimili í
Hafnarfirði, sagði blaðamaður-
inn.
—- Jú, sagði Kamilla, og hló,
en ég vildi heldur vera hér.
— Hvað ertu gömul?
— Tuttugu ára.
— Fleiri börn?
— Nei, þetta er fyrsta tíárhíð.
— Hvað heitir faðirinn?
— Kristján Ólafsson.
— Hvað starfar hann?
— Leigubifreiðastjóri.
— Varstu búinn að ákveða
Frh á Dls o
Kamilla Jónsdóttir, með 17 marka dóttur sína, sem fæddist þegar
ein klukkustund var af nýja árinu. Þetta var fyrsta barn ársins-
ins á Fæðingarheimilinu við Eiríksgötu. Fyrsta barnið á Fæðingar-
deild Landsspítalans fæddist ekki fyrr en nokkrum klukkustund-
um síðar.
Góð síldveiði en fáir
bátar á sjó
Veðurskilyrði til síld-
veiða eru áfram hin ákjós-
Skrilslæti í Hafnarfirði
Trillubótur frumun við rúðhúsið
AUmikil skrílslæti urðu
á Strandgötunni í Hafn-
arfirði um áramótin og
er það eini staðurinn á
landinu sem slíkt virðist
enn gerast um áramótin.
Þyrfti lögregla staðarins
að gera einhverjar ráð-
stafanir til að slíkt endur
taki sig ekki.
Það er siður unglinga í Hafn-
arfirði um hver áramót, að
draga bát úr vör sem er fyrir
neðaii Nýju bílastöðina. Svo
gerðu þeir einnig núna, að hóp-
ur. um 30—40 unglinga og í
þeim hópi nokkrar stúlkur,
drógu allstóran tillubát upp á
Strandgötuna og reyndu að loka
umferð um þessa aðalgötu bæj-
arins með þvi að leggja bátnum
þvert yfir götuna./fyrir framan
ráðhúsið.
Að þessu sinni varð þessi
leikur unglinganna alvarlegri en
fyrr vegna þess að óhapp kom
fyrir. Fát kom á bílstjóra sem
var að aka eftir Strandgötunni
og brá í brún er hann sá bát á
þurru landi og ók hann á bátinn
og skemmdi hann. Er þetta at-
vik mjög óheppilegt, báturinn
var eign gamals sjómanns, sem
hefur orðið fyrir talsverðu tjóni.
Auk þessa fóru unglingarnir f
nálæg geymsluport, tóku þar
öskutunnur, veltu þeim fram á
götuna tæmdu þær og kveiktu i
því. Vegna þess var heldur ó-
hrjálegt umhorfs á strætinu.
anlegustu en fáir bátar
voru á sjó í nótt. Þeir bát-
ar, er á sjó voru, öfluðu
vel. Síldin fékkst aðallega
22—25 mílur vestur af
suðri frá Garðskaga. Tii
Reykjavíkur höfðu 11 bát-
ar með 10.150 tunnur til-
kynnt komu sína til
Reykjavíkur kl. 10.30 í
morgun. Löndun mun ekki
hafa byrjað fyrr en um
hádegisbilið.
Bátarnir, sem landa hér, fengu
alls sem hér segir: Halldór Jóns-
son 1250, Sæfari 700. Svanur 900,
Ólafur bekkur 400. Jón Jónsson
1100, Hannes lóðs 500, Jökull 500,
Helgi Flóventsson 1200, Sæúlfur
1000, Steinunn 1200, Stapafell
1400.
Síldin er mjög blönduð.
1 Margir síldveiðibátar fengu á-
: gætan afla í nótt, en þvi fór fjarri,
að allur flotinn væri á sjó. í
fyrsta lagi tókst ekki að losa alla
báta, t. d. hér í Reykjavík, er hætt
var vinnu við losun kl. 4 á gaml-
ársdag, og á Akranesi fóru engir
bátar á sjó í gær, þótt búið hefði
verið að losa þá alla, en þrærnar
eru fullar og eitthvað verður að
rýmast til áður en hægt er að
taka við meiru. Byrjað er að bræða
af krafti, eftir hléið um áramótin,
en milli hátíða var einnig brætt.
Kemur sér mjög illa, að ekki
var unnt að stækka síldarbræðsl-
una svo fljótt sem vonir stóðu til
í upphafi en ýmsar orsakir liggja
til þess, að stækkunin mun vart
verða lokið fyrr en upp úr miðjum
| janúar í fyrstá lagi. Upphaflega
yar meiningin, að hægt yrði að
Frh. á bls. 5
Þorsteinn Ólnfs-
son látinn
Þann 27. desember andaðist
Þorsteinn Ölafsson stórkaup-
maður og var banamein hans
heilablóðfall. Þorsteinn var að
eins 46 árá að aldri, kunnur
og vel látinn kaupsýslumaður
hér f borg.
Verður útför hans gerð frá
Neskirkju kl. 2 á morgun.
I