Vísir - 03.01.1963, Page 7

Vísir - 03.01.1963, Page 7
V í SIR . Fimmtudagur 3. janúar 1963. 7 Dr. Richard Beck: Tekur sæti framarlega á skáldabekknum Fátt er ánægjuiegra, eða frem- ur vekjandi til frjórrar hugsunar, heldur en það, að fylgjast með ferli vaxandi manns, hvort heldur er í listum eða bókmenntum. Þetta hefir mér orðið ríkt í huga við lestur hinnar nýju ijóðabókar Þórodds Guðmundssonar, Söi- mánuður, sem út kom fyrir stuttu síðan á vegum Bókaútgáfu Menn ingarsjóðs. Þar er áreiðanlega vaxandi skáld að verki. Það leynir sér ekki, beri maður þessa bók saman við fyrri ijóðabækur hans, þar se..i mörg ágæt kvæði og vel ort var að vísu að finna, er báru því jafnframt vitni, að skáld inu voru, með hverri nýrri bók, að vaxa vængir um andríki og víðferðma hugsun, og tök hans á viðfangsefnum stöðugt að verða fastari og markvissari. Eigi að síður ber þessi nýja ijóðabók Þórodds áreiðanlega af hinum fyrri bæði um það, hve kvæðin eru yfirleitt jöfn að gæð- um og skáldskapargildi, en þar fara saman málsnilld og bragfimi, fágað ljóðform, ósjaldan frum- leiki í efnismeðferð, og alltaf fög- ur og göfug lífsskoðun. Öndvegi skipa í bókinni „Ávarp Fjallkonunnar 17. júní 1960“, fag- urt kvæði og hreimmikið, en þessi eru upphafserindin: Úr myrku djúpi rís ég heið og há með hvelfdan barm og eld í hjartans leyni, blik um brá og bjartan hvarm, hef svanarödd og sumaraugu blá, er sefa harm. í minni þöll er alltaf frið að fá og frelsis óð, er huldur landsins hörpustrengi slá við helga glóð. Og þeim, semhafa ætíð unga þrá, er ást mín góð. Á sömu strengi hjartaheitrar og djúpstæðrar ættjarðarástar álær skáldið í ágætiskvæðinu „Móðirin góða“, en þar renna aðdáuniií á ættjörðinni, glöggur skilningur á skuld vorri við hana, og eggjanin til frjósamra dáða, í einn farveg. Af skyldum toga spunnin eru náttúrulýsingarnar mörgu í bók- inni, sem eru hver annarri betri: —- „Straumflétta" (Við Goðafoss), formfagurt kvæði með seiðmagni undiröldu djúprar tilfinningar. „Blóðberg", hugnæmt í einfald- leika sínum og innileik, að ógleymdum sonnettunum um efni úr ríki náttúrunnar, er síðar verð ur getið. Segja má, að kvæðið „Ég heyrði hörpuslátt“ sé sprottið úr sama jarðvegi, heillandi ljóð, þar sem þýður en þó hljómmikill bragarhátturinn fellur ágætlega að unaðsfögru viðfangsefninu. Það kvæði er einnig ágæta vel unnið, heilsteypt í bezta lagi, og nýtur sín því aðeins til fullsj að lesið sé í samhengi, en þó freist- ast ég til að taka hér upp, sem dæmi um bragfimina, fagurt mál- far og andríki, eftirfarandi er- indi: Ég heyrði hörpuslátt. í heiðið fagurblátt steig hjartans dýri óður frá lofts og lagar hjörð og laufi skrýddri jörð til lífsins miklu móður, jafnt lofgjörð eiiífung sem andvörp tregaþung og von hins veika bróður. Það fer að vonum um jafn mikinn ættjarðarvin og þjóðræk- inn, eins og Þóroddur Guðmunds son er, að hann kann vel að meta vorn íslenzka bókmennta- og menningararf, og kemur það fagurlega fram í snjöllu og frum legu kvæði hans, „Svanir á Más- vatni", en þar hyllir hann, á tákn rænan hátt, íslenzk öndvegisskáld að fornu og nýju. Hann hittir einnig prýðilega í mark í kvæð- unum um tvö af höfuðskáldum vorrar samtíðar, þá Jakob Thor- arensen („íslenzkt skáld“) og Davíð Stefánsson („Fagraskógar- skáldið“). Erfiljóðin í þessari bók Þór- odds eru einnig fögur og merki- leg, bæði hið hreimþýða og fag- uryrta kvæði um Þorbjörgu Jó- hannesdóttur, og þá eigi síður efn ismikil og svipmikil kveðjan til Þorkels Jóhannessongr háskóla- rektors. Mun öllum, sem þekktu þann afbragðsmann, þykja loka- erindið sem talað út úr sínum huga: Drengileg og þrungin hjarta- hlýju er hún einnig samúðar- kveðjan fagra, sem skáldið sendi yfir hafið þeim, er þetta ritar, þegar sorgin þunga gisti sali hans. En stórbrotnust kvæðanna í þessari bók, enda lengst og yfir- gripsmest um efni, eru vitanlega kvæðaflokkarnir „Skálholtsljóð 1956“ og „Háskóli íslands 50 ára“. Bera þau því órækan vott, að mikil hugsun og vandvirkni um Ijóðform liggja að baki þeirra, enda lýsa þau ágætri yfirsýn yfir viðfangsefnin, og efnismeðferðin er sambærileg, því að báðir eru kvæðaflokkarnir tilbreytingaríkir um bragarháttu og með sterkum tilþrifum. Má það t. d. segja um kaflann „Þótt kirkjan brynni" í Skálholtsljóðunum. Hins vegar eru Maríuversin í þeim ljöða- flokki einkar þýð og hugþekk. Þróttmiklir að hugsun og mál- fari eru einnig margir kaflarnir f Háskólaljóðunum. Hvað minnis- stæðastur verður mér þó II. kafli, gullfalleg sonnetta um and....s ar- in íslenzkra heimila öldum sam- an og þá eída þekkingarþrár og sannleiksleitar, sem þar voru kynntir. Sterkur er andlegi og trúar- strengurinn í þessum kvæðum, í ljóðum eins og „Förumunkar", sem er óvenjulega samfellt kvæði og segir mikið í stuttu máli. í vísunum hjartnæmu „Ráð mitt allt þér fús ég fel“, sem vel mega sálmur kallast, og þá ekki sízt í „Kvæði um Krist“, sem túlkar á einfaldan en lotningarfuli an hátt kjarna kenningu Meistar- ans frá Nazaret. Sömu ættar er hið fagra kvæði „Reynitré", og iýsir lífsskoðun skáldsins sér ágætlega í lokaerindi þess: Þeir teinar sig löngum teygja hæst í tindrandi birtu og yl og hefja sig Drottins himni næst, sem harma og finna til. Með þrekraunum aðeins þroski fæst við þjáninga djúpan hyl. Önnur ágætiskvæði eru „Him- invangar“, þar sem djúpstæð feg urðarþrá skáldsins finnur sér framrás í ljóðrænun myndum og táknrænum. „Laugalönd“, ná- skylt að efni og anda, talað beint út úr hjarta skáldsins, og „Þú sagðist", yndislegt kvæði, auðsjá anlega ort til hinnar ágætu konu skáldsins, og mætti hver eigin- kona telja sig vel sæmda af slíkri ástarjátningu manns síns. Og þá kem ég að þeim ljóðun- um, sem mér þykir hvað vænzt um í þessu kvæðasafni Þórodds, en það eru sonnetturnar, sem all- ar eru prýðisvel gerðar, og er sá frægi og fagri bragarháttur þó ekki auðmeðfarinn, jafn hnitmið- aður og hann er. Glögg er sú mynd og hugstæð, sem brugðið er upp af Guðmundi Arasyni i sonnettunni um hann. Faguryrtar og skýrum dráttum dregnar eru lýsingarnar í sonnettunum „Aðal- bláber“ og „Va!humall“, en samt held ég að sonnettan „Auðnu- fugl“ sé fegurst af þeim Ijóðum skáldsins í þessari bók hans, þó að erfitt sé að gera upp á milli þeirra, svo vel eru þessar sonnett ur ortar að öllu leyti. En sonnett- an „Auðnufugl" er á þessa leið: Til nokkurra skrílsláta kom í miðbænum eftir miðnætti á nýárs- nótt og safnaðist'þá hópur ungl- inga umhverfis lögreglustöðina. Tildrögin að þessum látum mun hafa verið þau að lögreglan hand- tók pilta sem staðnir voru að því að brjóta rúðu í Austurstræti. — Safnaðist þá strákalýður umhverf- is lögreglumennina1, gerðu aðsúg að þeim og eltu þá að lögreglu- stöðinni. Safnaðist þá smám sam- an fleira fólk að lögreglustöðinni unz lögreglan gerði útrás m.a. með táragassprengjum og rak lýð-, | inn burtu. Eftir það var allt rólegt | og með kyrrum kjörum í miðbæn- um. Drykkjuskapur var talsverður eins og venja er um áramótin og fangageymslur lögreglunnar yfir- fullar. Auk þess ók lögreglan mörgum drukknum mönnum heim til þeirra. Lögreglan tók allmarga unglinga með óleyfilegar sprengjur og m.a. einn pilt með allmikið magn, eða 8 karton samtals. Á nokkrum stöðum, einkum í miðbænum voru rúður brotnar, þ. á.m. rúða í Dómkirkjunni. Mikið var um árekstra á gamlársdag, m. a. urðu 2 árekstrar á skömmum tíma eftir hádegið. I einum þeirra, Þóroddur Guðmundsson helgar þessi ljóð móður sinni, Guðrúnu L. Oddsdóttur. Það er henni mak- legur sómi, því að með þessu Ijóðasafi sínu hefur Þóroddur tek ið sæti framarlega á bekk ís- lenzkra samtiðar skálda. En Bóka útgáfa Menningarsjóðs á mikla þökk skilið fyrir að gefa út þessi fögru, prýðilega ortu og hugð- næmu ljóð, sem verma og hefja huga lesandans. sem varð á mótum Lönguhlíðar og Miklubrautar slösuðust þrír, þ.á.m. tvö börn og var það allt flutt í Slysavarðstofuna. Aðfaranótt sunnudagsins varð slys á Njarðargötu móts við Vetr argarðinn, en þar var bifreið ekið á þrjá vegfarendur. Tvær stúlkur meiddust, en piltur sem með þeim var slapp. Flest samkomuhús hæjarins voru þéttsetin og í sumum þeirra drukk ið næsta fast. Til einhverra átaka mun hafa komið í Iðnó og valdið þar tjóni á húsmunum. Á nýársdagsmorgun var piltur tekinn með hlaðinn riffil, og var þá búinn að hleypa af honum 2 skotum úti á götu í Kleppsholt- inu. Var búið að afvopna piltinn þegar lögreglan kom á vettvang og tók hann í vörzlu sína. Maður fannst liggjandi við Vetr argarðinn á gamlárskvöld. Taldi hann að á sig hafi verið ráðizt og barinn svo í kviðinn að hann gat ekki staðið á fætur. Hjá slökkviliðinu var næsta ann ríkt á gamlárskvöld og nýársnótt- ina, því það var kvatt 7 sinnum á vettvang, þar af 4 sinnum á tímabilinu kl.8-9 á gamlárskvöld en í öll skiptin af litlu til- efni. Eftir miðnættið var það þrí vegis kvatt út, í einu tilfellinu var um gabb að ræða, en í hin 2 skipt in um óverulegan eld. í gær var slökkviliðið tvívegis kvatt á vett vang, í annað skiptið vegna gabbs, en í hitt skiptið vegna elds í ösku tunnu. í slysavarðstofunni var geysi- mikið annríki og samtals var kom ið þangað með 140 manns til að- gerðar á gamlársdag og nýársnótt. Happdrætti Karlakórsins Dregið var í bílhappdrætti Karla- kórs Reykjavíkur á þriðja í jólum, en þar sem sölumenn höfðu þá ekki allir gert upp var númeno innsiglað og það ekki opnað fyrr en í gær. Þá kom upp númer 5248. Sá sem hefur miða með því númeri er þar með orðinn eigandi að nýrri Opel Record bifreið. Málfundafélagið Óðinn Skrifstofa félagsins mun í vetur verða opin á föstudagskvöldum frá kl. 8,30—10 síðdeg- is. Sími 17807. Á þeim tíma mun stjórn félagsins verða til viðtals við félagsmenn, og gjaldkeri taka við félagsgjöldum. Frá hálfnuðu starfi þú horfinn ert. En heilt var það samt og mikilsvert. Með sigrandi styrk við stig þitt hvert, þú stefndir á hæstu miðin. Þér geðjaðist ekki hugarhik, en höndlaðir gæfunnar augnablik, unz sannleikans hörgar og Breiðablik þín biðu með lokkandi hliðin. — Á þinni langsóttu lærdómsbraut við landvinning hvern, sem þér féll í skaut, þitt hugrekki óx við hverja þraut. Nú harma þig allir liðinn. I bjarkar krónu blóðrautt lítið höfuð þitt birtist mér á sólmánaðar kveldi tvið hvíta glóð frá aftansólar eldi með augu líkt og perlur geislum stöfuð. Á hlýjum stað þú áttir egg þín falin sem annazt var af lífs þíns kæru brúði. v Hin fleygu ljóð í grænu skógarskrúði af skáldsins kærleik voru fædd og alin. Öll söngvaþrá er sólarljósi skyld. Til sigurs gaztu eldvagn hjartans knúið. Þín ást var bundin auðnu þinnar dís. Sem daggir vorsins ljóð þín ljúf og mild mig laugað gátu, hryggð í fögnuð snúið. Hjá þér var alltaf bót við böli vís. 140 fíuttír / slysavarðstofuna

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.