Vísir - 03.01.1963, Page 10
m
VÍSIR
Fimmtudagur 3. janúar 1963.
.... .......IHIFIMWW"
Að utan
Framhald at Dls 8
fer hún niður i 90 og enn hækk-
ar hún sig upp í 120 þó svolítil
sveigja sé á veginum.
Rödd Veru er róleg og ákveð-
in, alltaf söm og jöfn, aldrei
nein skabrigði í henni, hvorki
æsingur, ótti né reiði.
Blaðamaðurinn finnur, að öku
konan hlýðir félaga sínum svo
blint, að honum finnst það nálg-
ast það að vera óhugnanlegt.
— Hvað ef hún mismælir sig,
spyr hann. Ef hún segði óvart
beygja til hægri en átti að ver'a
beygja til vinstri. Myndi öku-
konan þá hlýða og aka út af
veginum?
— Það hefur aldrei komið til
þess er svarið. Slík mistök mega
ekki verða og þau hafa aldrei
orðið. Einu sinni kom þó dálítið
alvarlegt atvik fyrir í ökuferð-
inni í Argentínu. Vera hafði
merkt í blokkina, að skarpt horn
væri framundan, — beygja
skarpt til hægri eftir 100 metra,
sagði hún og Evy hlýddi, setti
í lægri gír og bjó sig undir að
beygja. — En allt í einu var
fólk framundan sem veifaði og
hrópaði. Bíllinn út af og munaði
minnstu að slys yrði. Þær stöll-
úrnar vöruðu sig ekki á því, að
síðan þær óku um veginn síð-
ast og skráð niður minnisatriðin
höfðu vegagerðarmenn komið óg
breytt veginum og við því varð
ekki séð.
— það getur vel verið að sum-
ir karlmennirnir séu leikn
ari ökumenn en við, — en það
sem við höfum fram yfir þá
flesta er hið algera gagnkvæma
traust sem ríkir á milli okkar.
Síðustu tvö árin er ekki vitað
tii að nein tveggja manna sveit
í kappakstri hafi haldið saman
allan tímann nema þær stöllurn
ar. Það vill oft koma upp ágrein
ingur milli tveggja manna, sem
standa í slíkri þolraun og því
fylgir tortryggni og öfund. Þetta
veldur því að ökumaður þreytist
fljótt. Hann þykist ekki geta
treyst til fulls leiðbeiningum
félaga síns, hann verður fyrst
að sjá sjálfur hvort vegurinn
beygir til hægri eins og sessu-
nautur hans hefur sagt honum.
Og þess eru dæmi að ökumaður
inn missi traust til félaga síns,
þegar hann segir allt í einu
— Æ, hvar var ég nú á blaðinu?
Milli þeirra stallsystranna Evy
og Veru ríkir hins vegar full-
komið traust. Þannig tekst þeim
í samstarfi að sigra karlmenn-
Sfjörnuspáin
rramnald af bls 4
ast fremur auðvelt að afla þér
heilsubótar ef þú þyrftir að leita
til læknis á annað borð. Þróun
mála á vinnustað ætti einnig að
vera með þeim hætti, að til bóta
horfði og þú gætir bætt aðstöðu
þína mikið þar og fest þig í sessi.
Þú kannt að lenda í einhverjum
erfiðleikum við vini þína og kunn
ingja á árinu, án þess þó að hafa
beinlínis gert ráð fyrir því fyrir
fram.
Bogamaðurinn, 23. nóv. til 21.
des.: Tímabilið eftir 4. apríl 1963
verður heillaríkast fyrir þig. Það
stafar meðal annars af því að þér
áskotnast þá meiri frítími til tóm-
stundaiðju og ástundunar þeirra
málefna, sem kunna að standa
næst hjarta þínu. Ástvinir þínir
eru þér einnig hjálplegir og því
væri hyggilega fyrir þig að gera
eins mikið og í þínu valdi stendur
til að framfylgja málefnum þeirra,
sérstaklega hvað börnum viðvík-
ur. Þú ættir ekki að leggja út í
neinar áhættur varðandi heimilið
og þær fasteignir, sem þú kannt
að eiga fyrir 4. apríl. Þér er nauð-
synlegt að koma hlutunum fyrir
á þann hátt að heimilislífið sé á
sem traustustum grundvelli. Þú
kannt að eiga í einhverjum erfið-
leikum við nágranna þína eða
ættingja sakir áhrifa Saturnusar.
Skyndilegar breytingar á vinnu-
stað gætu haft talsverð áhrif á
stöðu þína í þjóðfélagsstiganum.
Steingeitin, 22. de. til 20. jan.:
Þú gerðir vel í því að leita ráð-
legginga vina þinna, nágranna og
vándamanna, þegar þú kannt að
vera illa fyrir kallaður til að leysa
aðsteðjandi vandamál. Þér mun
reynast betur að taka hlutina með
heimspekilegri ró og leysa þá eft-
ir vel yfirveguð mál, heldur en
að ráðast strax til atlögu. Eftir
4. apríl 1963 þá breytist þetta og
Júpíter gengur þá inn í fjórða
hús sólkorts þíns. Undir þeim
áhrifum er heppilegast að leggja
höfuð áherzlu á að leysa þau verk
efni, sem þegar liggja fyrir, frem-
ur en að hefja ný viðfangsefni.
Einnig er mjög hagstætt að koma
málefnum heimilisins í varanlegt
fyrsta flokks horf. Einnig er tals-
vert hagstætt að selja undir þess-
um áhrifum. Yfirleitt má segja að
árið sé undir heppilegum áhrifum
hjá þér og þú gerðir vel í því að
nota fyrstu þrjá mánuðina til að
kynna þér betur starfsaðferðir
þær, er kunna að vera það nýj-
asta í starfsgrein þinni.
Vatnsberinn, 21. jan. til 19.
febr.: Fyrstu þrjá mánuði ársins
verður Júpíter í öðru húsi fjár-
málanna í sólkorti þínu og er því
heppilegt fyrir þig undir þeim
áhrifum að leitast við að auka
tekjustofn þinn og jafnvel að
kaupa nýjar fasteignir eða eitt-
hvað í innbúið. Það sem eftir er
af árinu væri vel notað til ým-
issar kynningarstarfsemi, þar sem
þú gætir aflað þér meiri þekk-
ingar á þeim viðfangsefnum, sem
þú daglega fæst við. Einnig
muntu hafa gott af nágrönnum
þínum og nánum ættingjum, því
þeir geta veitt þér haldgóð ráð
við þeim viðfangsefnum, sem
stundum kunna að reynast þér
ofviða. Saturn verður enn ( «ói-
merki þínu og stendur það þér
nokkuð fyrir þrifum og veldur
því meðal annars að ýms persónu-
leg vandamál þín ná ekki fram
að ganga, eða verða fyrir óeðli-
legum töfum.
Fiskamir, 20. febr. til 20. marz:
Þú ættir að eiga fremur auðvelt
með að framfylgja ýmsum per-
sónulegum áhugamálum þínum
fyrstu þrjá mánuði ársins meðan
Júpíter er enn í sólmerki þínu.
Undir þeim áhrifum geturðu einn-
ig styrkt þig persónulega í sessi
á vinnustað eða í vinahóp þínum
og þeim félagslegu samtökum,
sem þú kannt að vera meðlimur
í. Eftir 4. apríl gengur Júpíter inn
í annað hús fjármálanna í sólkorti
þínu og bendir það til þess að
málefni varðandi efnahaginn og
fjárhaginn eigi fyrir sér útþenslu-
tímabil, þar sem þú átt auðvelt
með að afla þér meiri tekna og
eigna. Þú kannt hins vegar að
eiga í nokkrum erfiðleikum við
nána félaga þína eða jafnvel
maka, án þess að hafa getað
rennt grun í það fyrir fram. Það
getur átt sér stað skyndilega og
mikið er undir því komið, að þú
bregðist vel og drengilega við á
stundu erfiðleikanna.
VÖRÐUR - HVÖT - HEIMDALLUR - ÓÐINN
ÁRAMÓTASPILAKVÖLD
Áramótaspilakvöld Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík
Sjálfstæðishúsinu og Hótel Bor^.
SKEMMTIATRIÐI:
Sjálfstæðishúsið
1. spiluð félagsvist
2. ávarp: Formaöur Sjálfstæðisflokksins
Bjarni Benediktsson, dómsmálaráðherra.
3. spilaverðlaun afhent >
4. dregið í happdrætti
5. spánska dansíríóið ,,Queta Barcelo“
dansar spánska dansa
6. dens
Húsið opnað kl. 20,00 lokað kl. 20,30.
verður í dag 3. janúar kl. 20,30 í
Hótel Boig
1. spiluð félagsvist
2. ávarp: Varaformaður Sjálfstæðisflokksins
Gunnar Thoroddsen, fjármálaráðherra
3. spilaverðlaun afhent
4. dregið í happdrætti
5. spánska danstríóið „Queta Barcelo“ dansar
spánska dansí.
6. dans
Húsið opnað kl. 20,00 lokáð kl. 20,30
Sætamiðar afhentir í Sjálfstæðishúsinu í venjulegum
skrifstofutíma.
Skemmtinefndin.
LANDSMALAFÉLAGiÐ VÖRÐUR
JÓLA TRÉSSKCMM TA NIR
Landsmáíafélagsins Varðar verða að Hótel Borg í dag 3. janúar og föstudaginn 4. janúar kl.
15.00 til kl. 19.00. Verð aðgöngumiða kr. 60.00.
Aðgöngumioar afhentir á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í Sjálfstæðishúsinu á venjulegum skrif-
stofutíma.
Landsmálafélagið VÖRÐUR.