Vísir - 04.01.1963, Síða 2
V1SIR . Föstudagur 4. jantmr
Þetta eru Valsstúlkurnar sem unnu I. delld&rkeppnina í fyrra.
Deiidaskipting veitir nýju
blóði 1 félagslíf Vaismanna
Aðalfundur knattspyrnufélagsins
Vals var haldinn fimmtudaginn 6.
des. s.l. í félagsheimilinu að Hlið-
arenda. Formaður félagsins, Sveinn
Zoéga, setti fundinn með stuttu á-
varpi, þar sem hann bauð félaga
og fulltrúa velkomna. Fundarstjóri
var kjörinn í einu hljóði Ægir
Ferdínandsson formaður knatt-
spyrnudeildar og fundarritari Matt-
hfas Hjartarson.
Að þvf búnu var gengið til dag-
skrár. Formaðurinn fylgdi skýrslu
stjórnarinnar úr hiaði, með ræðu
og skýrði nánar einstaka liði henn-
ar, en skýrslan var lögð fram fjöl-
rituð fyrir fundarmenn. Þá flutti
gjaldkeri, Páll Guðnason, yfirlit
um fjárhag félagsins og skýrði
einstaka liði reikninganna. Bar
skýrsla gjaldkera með sér að fjár-
hagurinn hjá Val, eins og öðrum
íþróttafélögum, er eitt erfiðasta
viðfangsefnið. Þá voru lesnir upp
og skýrðir reikningar nefnda, sem
fjármál hafa með höndum fyrir fé-
lagið. Margar þessara nefnda hafa
unnið mikið og gott starf fyrir fé-
lagið á árinu, svo sem íþróttahús-
nefnd, húsnefnd, vailarnefnd o. fl.
Unnið er að viðbótabyggingu
íþróttahússins og munu þar fást
ný búningsherbergi, áhaida-
geymsla og rúmgott stjórnarher-
bergi. Þá var hreinsað allt stór-
grýti umhverfis íþróttahúsið og
svæðið sléttað og tyrft, sömuleið-
is lóðin framan við húsið. Er
íþróttahús Vals eitt allra vandað-
asta og fullkomnasta íþróttahús
landsins. í sal þess voru á árinu
settar upp körfur fyrir körfuknatt-
Ieik og gólfið merkt með tilliti tii
þess leiks, sem á meiri fylgi að
fágna meðal ungra manna.
Svo sem vitað er var Val skipt
í deildir fyrir nokkru. Þannig eru
starfandi þrjár deildir í félaginu:
knattspyrnudeild undir forystu
Ægis Ferdínandssonar, handknatt-
leiksdeild undir forystu Þórarins
Eyþórssonar og loks skiðadeild
sem lýtur stjórn Sigmundar Tóm-
assonar. Hefir deildarskiptingin
„Höfuðverlsur" ensku knuttspyrnunnar:
Dómarinn Margaret Spinks
Mikil vandræði hafa nýlega
steðjað að í ensku knattspyrn-
unni og er þar hvorki um að
ræða mannhæðarháa snjóskafia
né mannskæða leðju á knatt-
spymuvöllunum, lieldur unga
stúlku, Margaret Spinks að
nafnl.
Ástæðan fyrir þvl að þessi
stúlka varð til vandræða var sú
að hún rakst á knattspyrnuregl
urnar, las þær og lærði. Ekki
lét hún staðar numið þar, held-
ur gekk undir skriflegt próf og
síðar verklegt og stóðst bæði
með mikilli prýði og útskrifaðist
með eitt bezta próf, sem veitt
hefur .erið undanfarin 25 ár.
Nú er það svo að hvergi í
heiminum hefur kvenfólk lagf
sig eftir að verða knattspyrnu-
dómarar, en hins /egar vildi
ungfrú Spinks gj..rnan notfæra
sér kunnáttuna og fá að dæma
knattspyrnuleik.
Umsókn hennar þar að lútandi
setti hið virðulega lcnattspyrnu-
samband á annan endann og
ekki gekk sem bezt að ákveða
hvort ungfrú Spinks fengi af-
hentan dómarabúning eða ekki.
Aðalástæðan fyrir þessu taldi
sambandið að væru erfiðleikarn
ir sem hlytu að skapast fyrir
ungfrúna þar sem dómarar nota
alltaf sömu búningshGrbergi og
leikmennirnir . . . . og þvi
yrði örugglega ekki breytt í
náinni framtíð!
..aawwjwiwiuu .íiiww—aan.jjiw. i'» i m.n'mwi’iw—bh—www -
gefist mjög vel og starfsemi deild-
i anna verið yfirleitt með ágætum.
I Aðalþjálfari hjá knattspyrnudeild
inni á árinu var Óli B. Jónsson.
( Vann hann mjög gott starf og skil-
aði aðalliði félagsins (meistara-
. flokki) í úrslit um fslandsmeistara-
| titilinn. AIls urðu átta flokkar
Vals sigurvegarar á árinu. 3. fl.
og 5. fl. á íslandsmóti. 1. fl. 3. fl.
A og 5 fl C í Reykjavíkurmóti. 1.
fl. í Miðsumarsmóti og 2. fl. B
; og 4. fl. A í Haustmóti.
Auk Óla B, Jónssonar voru þess-
ir menn þjálfarar á árinu: Geir
Guðmundsson var með 2. fl.,
Haukur Gíslason með 3. fl. Sig-
; urður Ólafsson 4. fl. (inniæfingar)
og 5. fl. Þórarinn Eyþórsson. Auk
þess vann Murdo hinn skozki að
þjálfun yngri flokkanna með aðal-
i þjálfurum þeirra.
Þá fór 2. fl. í knattspyrnuför til
Danmerkur i boði Lyngby-Bold-
, klúb, sem var s.l. ár í boði Vals.
í landsliði og úrslitaliðum átti
Valur allmarga leikmenn. Alls
sendi Valur á árinu 10 flokka til
i keppni í hinum ýmsu knattspyr.nu-
mótum sumarsins.
f handknattleikskeppnina sendi
Valur alls 7 flokka. Á árinu féll
meistaraflokkur karla niður I II.
deild eftir úrslitaleik við KR. Hins
vegar stóð meistaraflokkur kvenna
sig með ágætum og urðu fslands-
meistarar á árinu. Auk þess sigraði
flokkurinn í afmælismóti HKRR. í
íslandsmóti 3. fl. bar flokkur Vals
sigur úr býtum við KR eftir snarp-
an og tvísýnan Ieik. Þjálfarar hand
knattspyrnufiokanna voru: Ámi
Njálsson, kvennaflokkanna, meist-
ara og 2. flokks, Stefán Þorkels-
son og Þórarinn Eyþórsson 4. fl.
Pétur Antonsson 3. fl. Á árinu fór
Þórarinn Eyþórsson utan, til Dan-
merkur til að taka þátt í þjálfara-
námskeiði þar.
Kvennaflokkur frá deildinni tók
þátt í keppni í sambandi við þjóð-
hátíðina i Vestmannaeyjum. Lék
þar tvo leiki og tapaði hvorugum.
Margir skemmtifundir voru haldn-
ir á árinu.
Samkvæmt skýrslu skíðadeildar,
var skálinn mest notaður um pásk-
ana, svo sem verið hefir undanfar-
in ár. Efnt var til skíðamóts og
allmargra ferða þangað uppeftir.
Rædd var nokkur breyting á skál-
• anum og stækkun, ennfremur að
nota hann meira á sumrum en
gert hefir verið, m. a. að fara
þangað með yngri flokka félagsins
til helgardvalar og nota þá tímann
til æfinga og gönguferða um nær-
liggjandi fjöli;
Umræður urðu miklar um
skýrslu stjórnarinnar og félagsmál-
in almennt. Samþykktar voru
ýmsar tillögur, sem snertu starf-
semi félagsins inn á við og munu
þvl til eflingar og styrktar er
fram í sækir.
Á fundinum afhenti Árni Njáls-
son f. h. íslandsmeistara Vals í
handknattleik félaginu glæsilega
mynd af flokknum.
Aðalstjórn félagsins fyrir næsta
ár er þannig skipuð: Formaður
Páll Guðnason, meðstjórnendur:
Gunnar Vagnsson, Einar Bjöms-
son, Geir Guðmundsson og Ormar
Skeggjason. í varastjóm vom
kjörnir Haukur Gíslason og Sigur-
björn Valdimarsson.
Sveinn Zoega, sem verið hefir
formaður Vals nú um árabil und-
anfarið, óskaði eindregið eftir því
að verða leystur frá stjórnarstörf-
um að sinni. Voru Sveini þökkuð
margþætt störf fyrir félagið um
áratugi.
Fundurinn var fjölmennur og
ríkti þar mikill áhugi um félags-
starfið almennt og framgang mál-
efna Vals.
Snell hættir
Peter Snell, hlaupastjarna Ný-
sjálendinga og heimsmethafi í 800
metra, 880 yarda og einnar mílu
hlaupum hefur ákveðið að hætta
keppni. Ástæðan: Honum býðst nú
góð staða hjá tóbaksfyrirtæki og
segir: „Nú hef ég tækifæri til að
skapa mér og unnustu minni heim-
ili hér í Nýjasjálandi og það tæki-
færi læt ég ekki renna mér úr
greipum".
Skiðakeppnitímabilið í þýzku Ölpunum 1962—63 hófst eins og venju-
lega með svigkeppni við Garmisch-Partenkirchen. Þar er 1600 metra
löng braut með 35 hliðum og voru keppendur 70, þar á meðal allir
j belztu skíðamenn Þjóðverja. Sigurvegari í kvennaflokki varð Barbi
Hanneberger frá Miinchen (sjá myndina), sem vann bronsverðlaun á
| síðustu Vetrar-OL. Hún sigraði á 68,2 sek., en næst var Christl Staffei
frá Austurríki á 70,4 sekúndum. Afrek Barbiar má marka af því,
I að einungis þrír karlar náðu betri tíma en hún.
I