Vísir - 04.01.1963, Page 9
V í SIR . Föstudagur 4. janúar 1963.
9
íslendingar hæddir fyrir anda-
dýrkun og hjátrú
Lðra Ágústsdóttir.
Blaðið Winnipeg Tribune
í Kanada birti 12. desem-
ber síðastliðinn stutta
grein eftir heimildum frá
New York Times Service,
þar sem vikið er að anda-
dýrkun og draugatrú ís-
lendinga. Þar sem grein
þessi er all athyglisverð
og sýnir þjóð okkar í
skoðanaspegli fjarlægra
þjóðar þykir okkur rétt
Marilyn Monroe.
að birta greinina orðrétt
í íslenzkri þýðingu, og fer
hún hér á eftir.
Reykjavík, íslandi. — ÞaB
grúfir myrkur yfir þessari eld-
fjallaeyju úm þessar mundir, og
draugar og andar eru mikið um-
ræðuefni manna á miili.
Um þriggja vikna skeið eða
lengur hafa andatrúarmenn og
andstæðingar þeirra haldið uppi
áköfum umræðum í blöðum og
útvarpl. Og nýjar bækur um
andatrú, sem gefnar eru út i
bókaflóðinu fyrir jólin, seljast
ört.
Andahyggjumenn, sem halda
þvi fram, að hægt sé að hafa
samband við, framliðna menn
fyrir milligöngu miðla, virðast
eiga sér marga fylgjendur um
gervallt landið. Ráðherra í núver-
andi ríkisstjóm hefur látið þau
orð falla, að enda þótt hann væri
ekki sjálfur beinn fylgjandi anda
hyggjunni, þá bæri hann virðingu
fyrir trú hinna mörgu íslendinga,
sem hefðu áhuga á þessari trúar-
hreyfingu.
Sigurður Nordal.
Á Marilyn Monroe erfitt með að
semja sig að framhaldslífi?
Klerkar
andatrúarmenn.
Að minnsta kosti 6 klerkar til-
heyrandi íslenzku lúthersku þjóð-
kirkjunni en meðlimir í félags-
skap andatrúarmanna. Þeirra á
meðal er séra Jón Auðuns dóm-
kirkjuprestur, hinn fjórði í röð-
inni að virðingarstöðu innan fs-
lenzku prestastéttarinnar. Sveinn
Víkingur, formaður Sálarrann-
Sveinn Víkingur.
sóknarfélagsins og fyrrverandi
biskupsritari, hefur sagt, að
margir aðrir prestar væm „anda-
hyggjumenn f hjarta sfnu“, en á-
litu rétt að láta ekki á því bera.
Hafa prestar, sem hingað hafa
komið í heimsókn, oft látið f
ljós undrun sfna á hinum miklu
áhrifum andatrúar innan kirkj-
unnar hér.
Sveinn Vikingur, sem nýlega
kom fram í útvarpsumræðum um
andatrú og andalækningar, er
höfundur nýútkominnar ævisögu
„Lám miðils“. konu sem búsett
er á Akureyri. Hefur bókin orðið
fyrir harðri gagnrýni fyrir, að
sleppt er að fjalla um skilorðs-
bundinn fangelsisdóm, sem Lára
hlaut árið 1941 fyrir svik og
pretti. Sagði Sveinn Víkingur f
viðtali, að enda þótt hún „hefði
ef tll vill haft 1 frammi svik á
Iíkamningafundum í eitt eða þrjú
ár, þyrfti það ekki að þýða, að
hún beitti alltaf svikum.“
Svikamiðlar.
En Jónas 'Þorbergsson fyrrver-
andi forstjóri Ríkisútvarpsins fs-
lenzka og höfundur ævisögu
Hafsteins Bjömssonar miðils í
Reykjavík, hefur haft þau um-
mæli um Lám, að hún væri
„svikari". Jónas Þorbergsson,
sem er aðdáandi Hafsteins miðils,
sagði í viðtali, að hann hefði ný-
lega gert sér kleift aeð tala við
Marilyn Monroe, sem lézt fyrir
skemmstu. Samkvæmt ummæl-
um Jónasar hefur Marilyn Mon-
roe átt erfitt með að semja sig
að lifnaðarháttunum „hinum
megin“.
Prófessor Sigurður Nordal,
sem er æðsti maður bókmennta-
deildar Háskóla Islands, hefur
látið f Ijós efa um, að andatrúar-
hreyfingin hefði mikil áhrif á
Jónas Þorbergsson.
þjóðina, en hann kvað trú á
álfa og drauga eða jarðbundna
anda mjög útbreidda. Prófessor
inn, sem safnar sögum um þess
konar fyrirbæri, sagðist vilja
undirstrika, að hann tryði á til-
veru drauga. „En mér þykir leitt
að segja,“ bætti hann við, „að
ég hef aldrei séð drauga.“ Maður
nokkur á Akureyri afsalaði sér
ökuskfrteini af þeim ástæðum að
eigin sögn, að draugar heimtuðu
að fá að vera með honum, i
hvert skipti sem hann Iegði af
stað i bíl sínum. Sem dæmi um
útbreiðslu hjátrúar sagði próf.
Nordal, að kaffihlé á fundi vís-
inda- og menntamanna, sem
Jón Auðuns.
haldinn var fyrir skemmstu, hefði
breytzt í umræður um drauga-
sögur.
Takmörkun barneigna í Kína
1 örvæntingarfullri tilraun til að
jafna niður ófullnægjandi og mlnnk
andi matarskammti ætlar kinverska
stjórnin nú að taka upp takmörk-
un barneigna, sem jafnan hefir ver-
ið talin hin mesta villukenning af
hálfu marxista.
Þetta neyðarúrræði er afturhvarf
til ársins 1957, þegar takmörkun
barneigna var tekin upp í stefnu
rfkisstjórnarinnar, þegar erfiðleik-
ar voru miklir á matvælaöflun, en
sfðan var hætt við hana hávaða-
laust ári sfðar, af því að þá átti að
taka „mikið stökk fram á við“ og
engri gætni sinnt í þeim efnum eða
öðrum.
Hin nýja barátta kommúnista-
stjórnarinnar, sem nefnd er „skipu-
lagning fjölskyldunnar" beinist
fyrst og fremst að því að sannfæra
ungt fólk um, að það eigi ekki að
ganga f hjónaband á unga aldri.
1 ávarpi Peking-stjórnarinnar um
þetta segir m. a., að enginn maður
ætti að verða faðir áður en hann
er 26 ára, og engin kona móðir
fyrir 23ja ára aldur, konur eigi að
hafa svo langt á milli barneigna,
að þær geti starfað vel á milli, og
aukin framleiðsla eigi að sitja fyr-
ir auknum barneignum.
Norðmenn munu aufca útgerð
í fréttabréfi til Vísis frá Noregi
segir m. a., að Norðmenn hafi veitt
meirí sfld við Island á s.l. sumri
en nokkru sinni fyrr.
Heildarafli norsku skipanna varð
hvorki meira né minna en rúm-
lega 1,5 milljón hektólítrar, og
verðmæti aflans upp úr sjó var 59
milljónir norskra króna eða um
355 milljónir fslenzkra króna. Með-
alafli skipanna var 12.600 hektó-
lítrar.
Þessi góði árangur er sagður
auka vissuna fyrir því, að Norð-
menn muni leggja vaxandi áherzlu
á síldveiðar við ísland á komandi
árum. Menn muni ekki aöeins
senda báta sína að sumarlagi og
leggja af mörkum mikið fé til að
afla nýjustu tækja, svo sem kraft-
blakkar, fiskssjáa og djúpnóta,
heldur muni verða gerð tilraun í
vetur eða næsta vetur til að ná
afla hér við land i svartasta skamm
deginu.
45 farast dag’ega í
umferðarsiysum
Hafsteinn Björnsson.
Samgöngumálaráðuneytið í Bonn
er að undirbúa mikla sókn til að
auka öryggi á þjóðvegum landsins.
Ekki mun heldur af veita, því
að samkvæmt skýrslum ráðuneyt-
isins bíða hvorki meira né minna
en 45 — 50 manns bana á degi
hverjum í umferðarslysum í Vestur
i'ýzkalandi. Um þúsund manns
slasast einnig meira og minna á
hverjum degi í sams konar slys-
um. í handlækningadeildum sjúkra
húsa landsins er fjórða hvert rúm
notað fyrir slasað fólk, sem lent
hefur í umferðarslysum. í aðeins
einu landi heims, Bandaríkjunum,
eru dauðaslys fleiri en í Þýzka-
landi, en sé tekið tillit til fólks-
fjölda og bílafjölda eru Þjóðverjar
langt á undan Bandaríkjunum í
þessu. Skýrslur sýna, að í 85 af
hverjum 100 tilfellum er það öku-
manni eða öðrum vegfarendum að
kenna, ef slys verða, sjaldnast bil-
un á bílum.