Vísir - 04.01.1963, Page 10

Vísir - 04.01.1963, Page 10
m VIS IR . Föstudagur 4. janúar 1963- ÁRAMÓT í HAFNARFIRÐI 1 fyrrad. var skýrt frá því í Vísi, að all óröasamt hefði verið i Hafnarfirði þar sem unglingar drógu triliubát upp á götuna fyrir framan Ráðhúsið. Þar með var þó ekki að öllu lýst því fagra gamlárskvöldi. sem flestir Hafnfirðingar upp- lifðu. Veðrið var undurfagurt kyrrt og bjart. Niðri við höfnina voru sum fiskiskipin upplýst og spegluðust Ijósin í tærum haf- fletinum. Um miðnætti, þegar nýtt ár hóf innreið sína var mikl um fjölda flugelda skotið á loft. Myndirnar tvær sem hér birt- ast voru teknar í Hafnarfirði ný ársnóttina. Önnur sýnir upplýst an fiskibát í höfninni. Hin sýnir flugeldamergðina yfir bænum. Fjöldi dauðadóma í Austur-Þýskalandi Samkvæmt þeim upplýsingum, sem vestur-þýzk stjómarvöld hafa viðað að sér, hafa kommúnistar í A.-Þýzkalandi dæmt tugi þús- unda manna í ýmiss konar refs- ingu á undanfömum ámm af póli- tískum ástæðum einum. Það var ráðueytisstjóri í ráðu- neyti samþýzkra málefna, Thedi-1 eck, sem gaf yfirlit um þetta í fyrirlestri, sem hann flutti í RIAS- útvarpsstöðina, sem er í hinum . ameríska hluta Berlínar. Hann skýrði frá þvi, að á árunum frá 1949 til októbermánaðar 1962, hefðu eftirfarandi dómar verið kveðnir upp: 146 dauðadómar, 411 dómar til lífstíðar fangelsis, og 22,810 dómar til mismunandi langrar frelsissviftingar. Allir hafa dómar þessir verið kveðnir upp af hreinum pólitískum ásteeðum, en alls ekki vegna brota á venjulegri refsilöggjöf. Thedieck gat þess, að erfitt' væri að afla upplýsinga um meðferð og úrslit slíkra mála í Austur-Þýzkalandi, og þess vegna mætti gera ráð fyrir, að dómamir væru í rauninni Konungdæmi Brezk blöð skrifa um það nýverið, að Franco muni senn ætla að endurreisa konungdæmið á Spáni og trúlega á þessu ári. Verði fyrsta skrefið, að því er hið áreiðanlega blað Observer, heldur fram, að Don Juan, sonur Alfons 13. konungs, er settur var af fyrir hartnær 30 árum, er lýð- veldið var stofnað, verði settur ríkisstjóri um þriggja ára skeið. Þegar það millibilsástand verði á enda, muni konungdæmið endur- reist endanlega og verði þá sonur Don Juans, Juan Carlos, sem ný- lega gekk að eiga Soffíu, dóttur Péturs Grikkjakonungs, verða fyrsti konungur Spánar, síðan á tímum borgarastyrjaldarinnar. Það hefur stutt mjög orðróm, sem gengið hefur um þessar breytingar, að Don Juan fór ný- I Iega til fundar við Franco og ræddust þeir við á laun í tvo daga. Franco mun hallast að þessari breytingu, þar sem enginn stjórn- málamaður er sagður starfandi á Spáni, sem fylgismenn Francos gætu sameinazt um eftir hans dag. enn fleiri. „En þær tölur, sem ég hef nefnt,“ sagði ráðuneytisstjór- inn að endingu, „eru alveg nógu skelfilegar til að færa mönnum sönnur á, hversu réttlaus almenn- ingur er á sovétsvæðinu.*” fmmwmm. . Þessa mynd birtir BT með bréfi lesandans. Það kallar myndina „Iíonungur loftsins“. Örninn á að tákna SAS, en fjærra honum svíf- ur lítil önd, sem á að vera merki Loftleiða. BALLETT- SKÓUNN Laugaveg 31 Kennsla hefst á ný mánudaginn 7. jan. Reykjavík: Barnaflokk- ar fyrir og eftir hádegi. Dag og kvöldflokkar fyrir konur. Hafnarfjörður: Kenndur verður ballet fyrir börn á vegum skólans í Sjálfstæðishúsinu í Hafnarfirði. Uppl. og innritun fyrir nýja nemendur i síma 24934 daglega kl. 3—6. Hin háu gjöld SAS eru fyrir embættismenn og forstjóra 'Bréf frá Eesandn í danska blaðinu BT Blöðin á Norðurlöndum eru alltaf við og við að minna á deilu SAS og Loftleiða. Algengt er að í blöð- unurn birtist bréf frá lesendum og er það athyglisvert, að langflest eða næstum öll þessi lesendabréf eru hlynnt Loftleiðum. Hið íslenzka flugfélag nýtur mikillar samúðar vegna bess „ð bað er minnimáttar og eiur.isr vegna þess að hinn sí- felldi íanrekstur SAf' fer í taug- arnar •' hinun. norrænu skattborg- urum. Fyrir nokkru birti danska blaðið BT m. a. bréf frá lesanda þar sem ræðir um það, að hinn voldugi framkvæmdastjóri IATA hafi sagt að Loftleiðir séu litið flugfélag lít- illar þjóðar og ætti að leyfast að flytja svo marga farþega sem það gerir. — Þarna höfum við það ennþá, segir bréfritarinn. Ef sá litli f þjóð- félaginu eða í þjóðarsamkundunni stendur sig vel og nær góðum árangri, þá á að talca í hann, slíkt skal ekki þola. Það virðast vera duglegir menn, sem reka Loftleiðir, segir bréfritari. Hvernig væri að ráða þá til SAS og sjá hvort reksturinn gengi ekki betur. Eðá hvað á þetta ævintýri peningasóunar að ganga Iengi? Loks segir bréfritari, að eina leið in fyrir SAS til að standa • sig í samkeppninni, sé að lækka far- miðaverðið, svo að allur almenning- ur geti ferðazt með flugvélum fé- lagsins. En nú sé þannig ástatt. að það séu eingöngu milljónamærinp ar, embættismenn eða forstjór; sem hafi efni á að ferðast með flu; vélum SAS. mausiíMmttmímilNr'mmmif-il

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.