Vísir - 08.01.1963, Page 10
m
VÍSIR . Þriðjudagur 8. janúar 1963.
Furðuleg —
Framhald at bls. 6.
'fyrir þá sök að engin tilraun er
gerð til þess að gera list hans
ýtarleg skil. Það er einkar fróð-
legt í þessu sambandi að gera
samanburð á tveimur málverka-
bókum sem Ragnar Jónsson
hefur gefið út. Berum saman
bækurnar um Mugg og síðari
bókina um Ásgrím. Fyrrnefnda
bókin er rituð af Birni Th.
Björnssyni listfræðingi, frum-
smið þar sem fjallað er um
listamanninn á fræðilegan hátt
og er þess vegna merkt fram-
Iag til íslenzkrar Iistasögu, höf-
undi, listamanni og útgefanda til
mikils sóma. í hinni bókinni er
ekkert nýtt, lesmál bókarinnar
er einungis 2. útgáfa af bókinni
Myndir og minningar, og einu
breytingarnar eru smávægilegar
úrfellingar. Þeses vegna á hún
næsta lítið erindi við íslenzka
lesendur meðan frumútgáfa
þessa lesmáls er enn fáanleg
í bókaverzlunum fyrir sjöunda
hluta af verði seinni útgáfunnar.
QÚ góða kona Bjarnveig Bjarna-
dóttir segir að vísu: „Og að
því er lesmálið varðar, mundu
hinir vísu telja ómaksins vert,
að lesa snjallt verk og listrænt
oftar en einu sinni.“ Þessi yfir-
lýsing frænku Ásgríms og safn-
varðar er ámóta furðuleg og sú
sem fyrr er tekin upp í þessa
grein. Þetta kemur málinu nefni
íega ekki við. Hitt skiptir öllu
máli að maður sem kemur inn
í bókabúð sér þar stóra og glæsi
lega bók. Á bókarkápu stendur
ÁSGRÍMUR JÓNSSON og ekkert
annað og því má gera ráð fyrir
að hann búist við að hér sé á
ferðinni ný bók en ekki endur-
útgáfa bókar sem enn er fáan-
leg. Þess er ekki getið fyrr en
í formála að lesmál bókarinnar
hafi áður komið út. Vilja menn
kaupa bók á meira en 700 krónur
þó í hénni sé um 40 litmyndir.
ef sama bók er enn fáanleg fyrir
103 kr„ án litmynda? Er þetta
æskileg stefna í íslenzkri bóka-
útgáfu? Er ekki hætta á því að
þessa bók kaupi menn í þeirri
trú að þeir séu að kaupa nýja
bók og verði fyrir vonbrigðum
þegar þeir uppgötva hvernig í
öllu liggur? Er ekki siður að
hafa óbreyttan titil á bókum sem
gefnar eru út í 2. útgáfu enda
þótt í henni séu nýjar myndir?
Réttláta myndirnar einar útgáfu
þessarar bókar? Því verður hver
og einn að svara fyrir sig. Ég
fyrir mitt leyti svara þvi hik-
laust neitandi. Og af þessum
sökum vil ég halda því fram að
Bjarnveig Bjarnadóttir hafi í
engu hnekkt mínum fyrri skrif-
um um bókina. M$r finnst að
þessi útgáfa sé Iangt frá því að
vera samboðin jafnágætum
mönnum og Ásgrími Jónssyni og
Ragnari í Smára.
Njörður P. Njarðvík.
Erlander
Framhald af bls. 6.
svarar Erlander. Ég hef á engan
hátt orðið var við þau óþægindi,
sem nú er mikið talað um að sé
við það að búa í fjölbýlishúsi.
En við verðum að taka það með
í reikninginn, að við erum ekki
með börn. Ég gæti trúað að það
sé óþægilegt fyrir barnafjöl-
skyldur, vegna þess hve erfitt er
að fylgjast með börnum að leik
úti.
Það versta við íbúðina, bætir
forsætisráðherrann við, er að ég
get ekki verið lengur heima til
að horfa yfir borgina.
8 þús. kr. leiga.
Þótt íbúð Erlanders sé í fjöl-
býlishúsi er þó fjarri þvi að hún
sé ódýr að búa í. Húsaleigan
kostar þúsund krónu seðil á
hverjum mánuði, en hiti og raf-
magn er innifalið. Þetta virðist
há leiga á íslenzkan mælikvarða
eða um 8 þús. fsl. kr. á mánuði.
En þess ber að gæta að þetta
ér á bezta stað í bænum. í Sví-
þjóð er það miklu algengara en
hér á íslandi, að fólk með góðar
tekjur búi í leiguhúsnæði. I
þessu húsi búa t.d. eingöngu
fjölskyldur með mjög góðar
tekjur, aðallega forstjórar, skrif-
stofustjórar, læknar og verk-
fræðingar.
Tónlist —
Frh. af 7. síðu:
stórhug og þrótt, að hrinda af sér
ofurvaldi mangaranna. Reyndar
örlar á slíkum tilþrifum i starf-
semi manna eins og þeirra sem
skipa Modern Jazzkvartettinn og
fleiri, sem byggja afkomu sína að
talsverðu leyti á sjálfstæðum kon-
sertum í litlum og tiltölulega ó-
dýrum og yfirlætislausum sam-
komuhúsum. En tilraunir þeirra
eru enn þá aðeins veikur vísir.
Sé nú litið yfir hinn breiða bar-
áttuvöll, sýnist virðuleiki, ef ekki
kjör, jazzleikaranna hafa færzt
einu fótmáli neðar síðan þeir léku
i hóruhúsum New Orleans. Þá
léku þeir aðeins undirspil við ó-
lifnaðinn, en nú standa þeir einir
eftir í sviðsljósi hliðstæðra stofn-
ana.
Leifur Þórarinsson.
Bókband
Bókbandssveinn óskast nú þegar.
FÉLAGSBÓKBANDIÐ, Ingólfsstr. 9
Gott húsnæði
4—6 herbergja íbúð óskast til leigu, helzt í nýju húsi
í austurhluta bæjarins, um eða fyrir 14. maí n.k. -
Góð umgengni, eingöngu fullorðnir í heimili. Tilboð
merkt „Gott húsnæði nr. 00095“ leggist inn á afgreiðslu
blaðsins fyrir hádegi n.k. laugardag.
Vélstjóri
Vélstjóra vantar á gufuborinn. Uppl. í síma
17-400.
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Biðskýli
eða verzlun með kvöld-
leyfi óskast til kaups
eða leigu. Tilboð sendist
afgreiðslu Vísis v fyrir
fimmtudagskvöld merkt
Verzlun.
Útsaia
HATTAR
REGNHLÍFAR
HANZKAR
OG SLÆÐUR.
HATTABÚÐIN
HULD
Kirkjuhvoli.
Sendisveinn óskast
hálfan daginn
Dogblaðið Vísir
LAUGAVEG 178 - SÍMI 11660
Hóseti
m. b.
Háseta vantar á
Gullbjörgu K.O. 60.
Uppl. í Fiskmiðstöðinni.
Sími 17857.
Laugavegi 146 — Sími 11025 I
¥ÖRUBIFREIÐlR
Austin 1961 með diesel-vél, ek-
inn aðeins 30 þús. km.
Chevrolet 1959 og 1961.
Ford 1948 með Benz diesel-
vél og gírkassa.
Ford 1959, F-600.
Mercedes-Benz ’54, ’55, ‘57, ’61
og ‘62.
Volvo ‘53, 7 tonna, góður bíll.
Volvo ‘55 og ’61, ekinn 30 þús.
Margir þessara bila fást með
miklum og hagstæðum lánum.
Auk þess eigum við fjölda af
eldri vörubílum, oft með mjög
hagkvæmum greiðsluskilmál-
um. — Þetta er rétti tíminn
og tækifærið til að festa kaup
á góðum og nýlegum vörubíl.
Enn, sem ávallt áður eigum
við 4ra, 5 og 6 manna bifreiðar
í mjög fjölbreyttu úrvali.
Bezta og öruggasta þjónust-
an verður ætíð hjá RÖST.
Miðstöð vörubílaviðskiptanna
er hjá R Ö S T.
RÖST S.F.
Laugavegi 146 — Sími 1-1025
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í að leggja aðfærsluæð frá Eski-
torgi, um Öskjuhlíð, vestur með Hringbraut,
eftir Sturlugötu og Fjallhaga að fyrirhugaðri
dælustöð við Fornhaga.
Útboðsgögn eru afhent í skrifstofu vorri,
Tjarnargötu 12, III. hæð gegn 3.000,— króna
skilatryggingu.
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar
MALFUNDAFÉLAGIB ÓÐINN
KARLMANNA KULDASKÓR
Hinir margeftirspurðu
karlmanna-kuldaleðurskór
komu í morgun. Verð aðeins ki ?7;00.
Birgðir takmarkaðar.
Skóverzlun Péturs Anoréssonar
Laugavegi 17 . Framnesvegi 2
Framhalds aðalfundur
Framhalds aðalfundur félagsins verður haldinn í Val-
höll við Suðurgötu miðvikudaginn 9. janúar kl. 8,30
síðdegis.
DAGSKRÁ:
1. Lokið störfum aðalfundar.
2. Lagabreytingar.
3. Hættan af starfsemi kommúnista í verkalýðsfélög-
unum. Framsögumaður Pétur Sigurðsson alþingis-
maður.
Þess er fastlega vænzt, að félagsmenn fjölmenni á
fundinn.
STJÓRNIN.