Vísir - 21.01.1963, Blaðsíða 4

Vísir - 21.01.1963, Blaðsíða 4
4 Vl SIR . Mánudagur 21. janúar 1963. Áríðandi að skila Sigurbjörn Þorbjörns- son, ríkisskattstjóri, / ræðir um framtalið Nú líður senn að því að frest- ur til að skila skattaframtölum renni út, en þau eiga að hafa borizt skattstjórum fyrir 31. janúar. Blaðið hafði þess vegna tal af ríkisskattstjóranum, Sig- urbimi Þorbjömssyni, og bað hann um að veita aimenningi Ieiðbeiningar um hvernig telja skuli fram. Sagði Sigurbjörn fyrst: — Það er allra hluta vegna heppílegast fyrir fólk að nota þau eyðublöð, sem þvi eru send, árituð af skýrsluvélum ríkisins og Reykjav,kurborgar. — Þessi eyðublöð eru áprentuð fyrir alla framteljendur, hvar sem er á landinu. Auk nafns og ann- arra' upplýsinga um framtelj- anda, er nafn eiginkonu einnig ritað á framtalið og f Reykja- vík nöfn og fæðingardagar barna, innan 16 ára. — Það hefur líka mikið að segja að fólk hafi þessi árituðu eyðublöð með, þegar það kem- ur til að fá leiðbeiningar hjá skattstofunni. Það sparar báð- um aðilum vinnu að nota þau. — Það er mjög algengt að fólk týni þessum eyðublöðum og nái í önnur til skattstofunn- ar. Þegar það er gert, er nauð- synlegt að vanda mjög til þess að fylla út þær upplýsingar, sem eru á áritaða eyðublaðinu, þar sem það getur munað mjög miklu, ef eitthvað af þeim vant- ar. TAKA AFRIT. —• Ég vil sérstaklega hvetja menn til að taka afrit af fram- talinu. Bæði getur það verið þægilegt fyrir næsta árs fram- tal og svo er það mjög hentugt, ef skattstofan fer að spyrjast fyrir um eitthvað atriði, að hafa afrit við hendina. — Það eru mörg atriði, sem eru óbreytt frá ári til árs, svo sem fasteignamat, fyrning á hús eign, eigin húsaleigu o. s. frv. Þetta getur líka minnt á hluti, sem fólk leggur ekki sérlega á minnið, svo sem ef menn eiga eitt skuldabréf, sem annars kynni að gleymast. Til að allir geti tekið afrit, er prentaður nægur fjöldi eintaka af eyðu- blöðunum. Afritun framtals er t. d. föst venja hjá öllum endur- skoðendum, sem sjá um fram- töl, og öðrum sem fást við það. TILSÖGN VIÐ FRAMTAL. — Það er algengt að fólk þurfi á tilsögn að halda við framtal- ið. Hana getur það fengið hjá skattstjórum og umboðsmönn- um þeirra. Skattstjórinn í Reykjavík er til húsa í Alþýðu- húsinu. Úti á landi eru svo skattstjórar á Akranesi, ísafirði, Siglufirði, Akureyri, Egilsstöð- um, Hellu, Vestmannaeyjum og Hafnarfirði. Þeir hafa svo um- boðsmenn í hverjum hreppi, sem venjulega eru hreppstjór- arnir, og einnig eru sérstakir umboðsmenn í kaupstöðum, þar sem ekki eru skattstjórar. — Fyrir þá, sem augsýnilega þurfa á aðstoð að halda við að fylla út framtalið, veitir skatt- stofan þá aðstoð, en fyrst og fremst er ætlazt til að fólk geri þetta sjálft. — Fyrir þá framteljendur, sem eru launþegar og ekki í neinum atvinnurekstri, eru fram töl einföld. Þeir þurfa ekki ann- að en að telja nákvæmlega fram sín laun og þann frádrátt sem þeir hafa. GIZKA Á LAUN. — Það er mjög aigengt að fólk gizki á laun sín, í stað þess að leggja saman eigin kvittanir, eða fá upp nákvæma tölu hjá atvinnuveitanda. Það er mjög strangt tekið á því, þegar þess- ar tölur eru ekki nákvæmar. Undanfarin ár hafa verið viður- lög við þessu, sem nema 15 prósent hækkun. Það er ekki að hann sé frá 1962, en ekki frá 1963, sem verið er að senda út núna. GEFA UPP SPARIFÉ. — Það er algengur misskiln- ingur hjá fólki, að það vill ekki gefa upp á skattaskýrslu þær bankainnistæður, sem ekki eru skattskyldar, svo sem sparifé, sem ekki er skylda að telja fram. Það er miklu betra fyrir fólk að sýna þessa peninga frá ári til árs. Þeir eru hvort ;sem er í flestum tilfellum ekki skatt skyldir og betra að hafa sýnt þá á skýrslunni, þegar að því kem- ur að þörf sé á að nota þá. Þá er það ljóst hvaðan fólk hefur peninga til t. d. eignakaupa. — Þá er það nauðsynlegt að gera fulla grein fyrir tekjum og eignum barna innan 16 ára, ekki síður en sínum eigin. Við það þarf að geta þess hvort böm eru í skóla. 25 PRÓSENT HÆKKUN. — Það mikilvægasta, sem hægt er að ráðleggja fólki við framtal, er að lesa vel og vand- lega eyðublaðið og láta ekki smáa letrið fara framhjá sér. Ef fólk fyllir út eyðiblaðið af vand- virkni og samvizkusemi, losnar það við óþægindi og fyrirhöfn síðar og mikil vinna sparast á skattstofunni. — Það er sérstök ástæða til að leggja áherzlu á það, að skattaframtöl einstaklinga eiga að hafa borizt skattstofunni eigi síðar en 31. janúar. Þetta er mjög mikilvægt, þv£ að. ef þau berast of seint, eru viðurlög 25 prósent hækkun á eignum og tekjum. Það verður því ekki um of brýnt fyrir fólki að vera ekki of seint á ferð. Sigurbjörn Þorbjörnsson, ríkisskattstjóri Á RÉTTUM TlMA endanlega ákveðið enn, hver viðurlögin verða núna. — Allur fjöldi þeirra, sem telja fram, þurfa ekki um aðrar tekjur að hugsa en iaunatekjur. Það er nauðsynlegt að gera sér ljósa grein fyrir þvf hve miklar þær eru og hve mikið frá hverj- um vinnuveitanda, en segja ekki „frá ýmsum“, eins og er alltof algengt. — Þá þarf að telja nákvæm- lega fram öll hlunnindi og nauð- synlegt að hafa nákvæmar tölur um allar bætur, svo sem elli og örorkubætur, fjölskyldubætur o. s. frv. Einnig skyldu menn at- huga vel að telja fram með laun um slnum laun eiginkonu, og setja síðan 50 prósent þeirra í frádrátt. FASTEIGNAGJÖLD. — Þeir launþegar, sem eiga fasteignir og aðrar eignir, þurfa að vanda til þess að telja þær fram. Þess ber sérstaklega að gæta, að gera sér fulla grein fyrir fasteignamati eignarinnar. Ef ekkert er leigt út af húseign, er eigin húsaleiga átta og hálft prósent af fasteignamati hús- eignar og lóðar. — I sambandi við gjöld af húseign, sem koma til frádrátt- ar, eru menn bezt settir með að hafa fasteignagjaldaseðil frá bæjar- og sveitarfélagi. Þar hafa menn allar upplýsingar sem þeir þurfa á að halda, bæði fast- eignamat húseignar og lóðar, og þau gjöld, sem koma til frá- dráttar. Ef menn leita aðstoðar skattstofunnar við framtal, er nauðsynlegt að geta sýnt þenn- an seðil. Þess ber þó vel að gæta Blaðið mun á morgun birta ítarlegri leiðbein- ingar til framteljenda. Eru þær teknar saman a f skattstjóranum í Reykjavík, Halldóri Sig- fússyni. Stórfelld aukning n from- leiðslu freðsíldnr Eitt það athyglisverðásta í út- gerðarmálum íslendinga á síðari ár um er hin stórfellda aukning á fram leiðslu frystrar síldar. Sést þetta bezt á þvf, að árið 1960 var fram leiðsian 3700 tonn en mun hafa verið á s. 1. ári um 25 þúsund tonn og er þetta nærri áttföld aukning. Útflytjendur frystrar sfldar eru Sölumiðstöð Hraðfrystihúsanna og Samband íslenzkra Samvinnufé- laga. Árið 1960 var framleiðslan 3700 tonn og framleiddi SK af þvf u.ii 3100 tonn en SÍS um 600 tonn. Árið 1961 var heildarframieiðslan 18778 tonn og þar af fraraleiddi SH 16,891 tonn. Á s. 1. ári nam framleiðslan svo um 25000 tonnum. Um helmingn- um af þessari framleiðslu hefur þegar verið útskipað. Hin frysta stórsíld fer samkvæmt viðskiptasamningum til Vestur Þýzkalands, Tékkóslóvaklu, Pól- lands, Austur Þýzkalands og Rúm eníu. í fyrra var fryst sfld seld til Rússlands, en ekki hafa enn verið gerðir samningar við Rússa um kaup á henni.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.