Vísir - 21.01.1963, Blaðsíða 8

Vísir - 21.01.1963, Blaðsíða 8
8 VI S IR . Mánudagur 21. janúar 1963. VÍSIR Jtgefandi: Blaöaútgátan VlSIR. Ritstjórar: Hersteinn Pálsson, Gunnar G. Schram Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensea Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178. Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3. Áskriftargjald er 55 krónur á mánuði. I lausasölu 4 kr. eint. — Slmi 11660 (5 linur). Prentsmiðja Vfsis — Edda h.f. Evrópa, jboð er ég Sú ákvörðun Adenauers að halda til Parísar til þess að ræða við de Gaulle um Bretland og Efnahagsbanda- lagið sýnir hve alvarlegum augum Þjóðverjar og önn- ur bandalagsríki líta á hina einstrengingslegu afstöðu de Gaulle. Lengi hafði verið búizt við því að þegar að lokaviðræðunum milli Breta og EBE kæmi, myndu Frakkar reynast þungir í skauti. Fæsta mun hins vegar hafa grunað, að þeir skytu slagbrandinum jafn kirfi- -lega fyrir dyrnar og þeir hafa nú gert. Sú yfirlýsing að Bretar geti sótt um aukaaðild, ef þeir vilja ekki und- irrita Rómarsamninginn óbreyttan, virðist vera afdrátt arlaus yfirlýsing um að Frökkum er efst í huga að halda Bretum utan EBE enn um hríð. Tvær skýringar hafa verið gefnar á hinni eitilhörðu afstöðu de Gaulle. Önuur sú, að hann vilji raunveru- lega ekki þátttöku Breta. Ástæðan sem að baki því arsamningurinn útþynnist ef Bretar fái þátttöku. Bret- arsamningurinn útþynnist ef Bretar fái þátttöku Bret- ar hafa þegar lýst sig fúsa að ganga svo langt til sam- komulags, að um enga útþynningu er að ræða. Það, sem raunverulega er talið vaka fyrir de Gaulle er, að ef Bretar fá þátttöku, hlýtur veldi Frakka og áhrif innan bandalagsins að minnka. Og hér er átt við stjórnmálaáhrif þeirra. Stjórnmálaeining EBE landanna hefur jafnan verið eitt höfuðmarkmið Rómarsamningsins. Þar hefur de Gaulle litið á sjálfan sig sem foringja og Frakkland sem forysturíki. En metin á vogarskálinni myndu mjög breytast ef Bretar gengju í hópinn. Hin skýringin á afstöðu Frakka síðustu daga er sú, að raunverulega sé hér um bragð að ræða. Þetta sé úrslitatilraun til þess að fá Breta til þess að samþykkja Rómarsamninginn skilyrðislaust. En sú skýring virðist ekki á rökum reist, þótt margir hafi talið svo í upp- hafi. För Adenauers til Parísar afsannar eina uppáhalds- kenningu andstæðinga EBE í Evrópu, þá hina sömu og dr. Frisch hélt fram hér í Háskólanum í sumar, að Þjóðverjar ætli sér að brjótast til valda í Evrópu í skjóli aðstöðu sinnar innan EBE. Varla myndi þeim svo annt um að fá Breta í bandalagið, ef sú væri raunin á. Afstaða Islands Þessir atburðir síðustu daga hljóta að hafa áhrif á afstöðu okkar fslendinga. Við höfum viljað fylgja Norðurlandaþjóðunum til tengsla við EBE. Þær munu hins vegar draga umsókn- ir sínar til baka ef Bretland gerist ekki aðili að banda- laginu. Svo getur þv! farið, að enn dragist á langinn að niðurstaða fáist í þessum málum. Sýnir það að stefna íslenzku ríkisstjórnarinnar hef- ur frá upphafi verið rétt: að kveða ekki upp úr um hverjar leiðir væru heppilegastar til tengsla, fyrr en málin hefðu skýrzt. Vinsælustu dægurlugu- plöturnar í dag V Blaðamaður og ljósmyndari Vísis brugðu sér niður ' í Vesturver á dög unum og var meiningin að heimsækja hljóð- færaverzlun Sigríðar Helgadótt- ur. t>ar var fyrir bráðfalleg, ung stúlka að nafni Kristín Þor- steinsdóttir, og tók hún að sér að fræða okkur um tónlistar- smekk unga fólksins. Vinsæl- asti söngvarinn hjá unga fólk- inu er tvímælalaust Presley, og á eftir honum koma ýmsir, eins og t. d. Chubby Checker, Fats Domino, sem á sífelldum 'vin- sældum að fagna, og Cliff Ric- hards, sem vann hjörtu unga fólksins hérna, að minnsta kosti stúlknanna, með mynd sinni The young ones. Gítarleikarinn Duane Eddy er einnig stór stjarna. Margir eru þeir fleiri, sem eiga vinsældum að .fagna, en það er með þá flesta eins og lögin, sem þeir syngja, þeir birt- ast og hverfa svo fljótt að það er ekki nema fyrir sérstaka dans lagaunnendur að fylgjast með ferli þeirra allra. Það er erfitt að segja hver eru nýjustu og vinsælustu lögin, þannig að öll- um líki, og séu sammála. Oftast nær hrista einhverjir höfuðið og hugsa sem svo, þetta hefir ver- ið tekið saman á Elliheimilirtu. En.samkvæmt beiðnum þeim, er þriðjudagsþættinum bárust síðast, þá er -*•* ■■ nr. 1: Limbo rock, sungið af Chubby Checker nr. 5: Limbo dans, Checker. Því til samanburðar er svo vinsældalisti Bretanna, og þar er nr. 1 Dance on, /sem The nr. 2. Vinarkveðja, Haukur Shadows Ieika, 2 Return to send Morthens er, Presley, 3. The next time, nr. 3: Return to sender, Presley Cliff Richards, 4. Sun Arise, nr. 4: Blátt lítið blóm eitt er,1 Rolf Harris, og nr 5 er Cliff Morthens — og með Bachelor boy. Bb % Afgreiðslustúlka í Hljóðfæraverzlun Sigríðar Helgadóttur með nokkrar vinsæíar plötur. ^□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□(□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□' CLIFF RICHARDS — og félagar hans m Enski söngvarinn Cliff Ric- hards er mjög ofarlega í hópi skemmtikrafta erlendis. Það var lagið Livin Doll, sem hann söng í fyrstu kvikmynd sinni, „Seri- ous charge“, sem kom honum „á toppinn“, og vann honum jafnframt gullplötu, því að plata með laginu seldist í meira en milljón eintökum. Cliff er fædd- ur á Indlandi 14. okt. 1940 og fluttist til Englands 8 ára gam- all. Aðaláhugamál hans voru í fyrstu alls konar íþróttir, en fíjótlega fékk tónlistin yfirhönd- ina. Hann stofnaði sjálfur litla hljómsveit og kölluðu þeir sig The Drifters. Cliff varð fljótlega heimsfrægur, en lengi vel voru hljómsveitarmenn aðeins kallað- ir náungarnir, sem léku með Cliff Richards. Seinnipart sum- arsins 1960 sendu fjórmenning- arnir frá sér plötu með gítarlag- inu Apache, sem var í hvorki meira né minna en sex vikur efsta lag á vinsældalista Breta og Bandaríkjamanna. Síðan hafa þessir ungu menn stormað með hvert lagið af öðru og öll orðið feikilega vinsæl. Undir nafninu The Shadows hafa þeir ásamt Cliff Richard orðið ein vinsælasta „Beat“- hljómsveit heims, og farið 1 margar hljómleikaferðir, um Ev- rópu, Ástralíu, Nýja-Sjálands o. fl. Hvarvetna hefur þeim verið frábærlega vel tekið, og plötur þeirra selzt eins og heitar pyls- ur á knattspyrnukappleik. Alls hefur Cliff sungið inn á 7 long play plötur og leikið í 4 kvik- myndum, auk þess hefir hann sungið inn á aragrúa af 45 snún inga plötur og hlotið 9 silfur- plötur sem viðurkenningu. Fremri víglína The Shadows 'er óbreytt frá því sem var þegar þeir fyrst komu saman, „sólóið“ glymur frá Hank B. Marvin, og Bruce Welch þrumar „ryth- nann“. Þær breytingar hafa orð ð að Brian Bennett situr nú í trommustólnum og „Liquorice" Locking, er með bassagítarinn. En hljómur þeirra og taktur er enn sá sami, og þeir eiga áreið- anlega eftir að koma með fleiri plötur, sem vekja á sér athygii. Cliff Richards og félagar. *

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.