Vísir - 21.01.1963, Blaðsíða 16

Vísir - 21.01.1963, Blaðsíða 16
BBQ Skemmtanalíf unga fólksins Mánudagur 21. janúar 1963. Tvær myndanna sem fylgja greininni birtast hér. Texti þessarar er: Kan afdede læger helbrede syge folk? POUTIKEN RÆDIRANDA LÆKNINGAR Á ÍSLANDt ■. Præsterne er ikke snæversynede í gær birti Politiken stóra grein um þær deilur sem undan farið hafa átt sér stað hér á Iandi um andalækningar og framhaldslífið. Er greinin rit- uð af fregnritara Politiken á ís- landi, Ólafi Gunnarssyni og prýða hana þrjár skopmyndir, teiknaðar af aðalteiknara blaðs ins Bo Bojesen. í greininni segir að tilefni til umræðnanna hafi verið'það að nær helmingur sjúkrahúslækna Reykjavíkur hafi lagt niður störf 1. nóvember sl. Þá hafi ríkisútvarpið talið rétt að láta að sér kveða í málinu og efnt til útvarpsdagskrár þar sem sú spurning var rædd hvort anda- læknar gætu gert sjúklinga heilbrigða' með aðstoð miðla. Rekur höfundur síðan um- ræðurnar og jákvæð ummæli sr. Sveins Víkings um þetta atriði. En kunnasti krabbameinssér- fræðingur lslands, prófessor Dungal hafi verið á öðru máli. En sr. Sveinn hafi ekki staðið einn að því að halda frgm h}Hf andalæknanna I Iæknaskortin- um. Sr. Benjamfn Kristjánsson á Laugalandi hafi veitt honum atfylgi í blaðagreinum, en hann sé einn af fremstu mönnum fs- lenzkrar guðfraeði. Sfðasti kafli greinarinnar í hinu danska blaði ber fyrirsögn ina: „Spiritist paa prædikestol- en“. Þar segir orðrétt: „Helztu leiðtogar fslenzkrar kirkju hafa ekki verið sammála um stefnuna varðandi lækning- ar með hjálp spiritismans. Bisk upinn Iýsti þvf yfir á aðfanga- Framh. á 5. síðu. Samið um 5 %kauphækkun Ósamið við Dagsbrún á Akureyri Fyrir helgina samdist um það milli atvinnurekenda og flestra verkalýðsfélaga á Akureyri að greitt verði 5% álag á alla kaup taxta um óákveðinn tíma frá og með deginum í dag. Þetta er ekki fastur samningur og hafa ................................ . verkalýðsfélögin því lausa samn inga eftir sem áður. Sfðasti viðræðufundur Dags- brúnar og Vinnuveitendasam- bands íslands var haldinn hér í Reykjavík s. I. fimmtudag og varð ekki samkomuiag. Þar mun þó hafa verið rætt um eigi lakari kjarabætur en sam- komulag varð um á Akureyri, en ágreiningur verið um samn- ingstíma og önnur formsatriði. Ekki hefur enn verið boðað til nýs fundar með Dagsbrún UNGBARN A FLÆKINGI Um klukkan þrjú í fyrrinótt vaknaði kona ein, sem býr við Óðinsgötu, við bamsgrát, sem henni heyrðist berast utan af götu. Þegar hún leit út, sá hún, að það stóð heima — þar var smábarn, á að gizka tveggja ára, og kallaði það ákaft á móður sfna, en hún sást þar hvergi i nánd. Konan tók barnið inn til sín og Iét síðan lögregluna vita Liðu svo margar klukkustundir, að engin nióðir gaf sig fram, er kvartaði um barnsmissi, og mun barnaverndamefnd að Ifkindum taka þetta mál að sér. Menntamálaráðh. með afnámi skemmtanask. Eins og nýlega kom fram hér í blaðinu f viðtali við Þorvald Guðmundsson, hefur ekki orðið eins mikil aðsókn og menn von- uðu að skemmtunum þeim f Lido, sem einvörðungu eru ætl- aðar ungu fólki Taldi Þorvaldur miklu mundu skipta í þessu sam bandi, og jafnvel ríða baggamun inn, ef afnuminn yrði skemmt- anaskattur af þessum samkom- um unga fólksins. Með því yrði unnt að stórlækka verð aðgöngu miða, eins og lesa má nánar um í annarri frétt hér í blaðinu í dag. S.l. laugardag gerði Gylfi Þ. Gíslason menntamálaráðherra þetta mál að/umræðuefni í Al- þýðublaðinu og lagðist fyrir sitt leyti á sveif með þeirri hug- mynd að afnema skatt af þess- um skemmtunum, og leyfir blað Menntamálaráðh. hlynntur ... ið sér að endurprenta hér eftir- farandi úr grein ráðherrans: „Undanfarnar vikur hefur nokkuð verið rædd opinberlega mjög virðingarverð tilraun, sem gerð hefur verið til þess að halda opnum skemmtistað fyrir ungt fólk á aldrinum 16-21 árs, þar sem fyllstu reglusemi er gfctt í hvívetna. Er hér átt við hinn glæsilega veitingastað Lido, sem fyrir skömmu var breytt í þetta horf. Forráða- menn staðarins hafa óskað þess að skemmtanaskattur sé ekki innheimtur af aðgangseyri að skemmtistaðnum. í gildandi lög gjöf er því miður ekki heimild til þess að fella niður skemmt- anaskatt af slíkum danssam- komum, hvort sem þær eru haldnar fyrir ungt fólk eða full orðið. Hins vegar eru lögin um skemmtanaskatt einmitt nú í endurskoðun, og verður frum- varpið um breytingar á gild- andi lögum væntanlega lagt fyr ir Alþingi, er það kemur sam- an að nýju síðast í mánuðinum. Væri óskandi, að samkomulag yrði um það á Alþingi, að und- anþiggja heilbrigðar skemmtan ir, sem eingöngu eru ætlaðar ungu fólki, skemmtanaskatti“. BÆNASKJAL FRÁ UNGA FÓLKINU Síðastliðinn laugardag voru staddir í skemmtistaðnum Lido tveir ungir piltar, Guðmundur Sæmundsson og Guðmundur Pétursson, báðir úr Mennta- skólanum í Rvík, og höfðu þeir með sér lista, sem þeir báðu fólk að skrifa nöfn sín á. Yfir- skrift listans var þessi: „Við undirritaðir unglingar á aldrinum 16^-21 árs, förum þess á leit við ríkisstjórnina að hún afnemi allan skemmtana- skatt af skemmtistaðnum Lido og veiti staðnum ýmis önnur forréttindi, svo að okkur gefist kostur á að skemmta okkur á I. flokks vínlausum stað, en ekki á 2.-3. flokks stöðum eða vín- stöðum". Guðmundur Sæmundsson Frh á bls í> Myndin er af Guðmundi Sæmundssyni með 3 af 9 þéttskrifuðum listum. Fleiri munu eiga eftir að koma frá skólum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.