Vísir - 22.01.1963, Side 9

Vísir - 22.01.1963, Side 9
V í SIR . Þriðjudagur 22. janúar 1963. 9 innistæðna. sem þeir kunna að eiga umfram skuldir. Fasteigna- veðlán allt að kr. 200.000.00 tek- in til 10 ára eða lengri tlma og notuð hafa verið til að afla fast- eigna eða endurbæta þær, skerða þó ekki skattfrelsi sparifjár. Ekki er að lögum skylt að telja fram skattfrjálst sparifé, en mönnum er samt eindregið ráð- lagt að gera það, þar sem gera þarf grein fyrir því, ef það er notað síðar til kaupa á eign. Eignir og tekjur barna. -j- I 10. tölulið eignadálks eru taldar upp eignir barna, og í 11. tölulið tekjudáíks eru tald- ar upp tekjur barna. Er það svo að skilja, að tekjur og eignir barna beri alltaf að telja fram á framtali foreldris eða fram- færanda? — Tekjur barna, sem eru und- ir 16 ára aldri, skulu taldar fram á framtali framfæranda. Ef árs- tekjur barnsins eru hærri en kr. 10.000.00, er heimilt að ákveða því skatt sérstaklega, en þá ber framteljanda að óska þess sér- staklega og skulu þau tilmæli færð í G-lið á öftustu sfðu fram- talsins. Eignir. barna, sem eru undir 16 ára aldri, skal einnig færa á framtal framfæranda. Þó er heimilt að skattleggja eign barns ins sérstaklega, ef óskað er. Á það skal bent, að venjulega er hagkvæmara að skattleggja barn sérstaklega, ef tekjur þess fara yfir umræddar kr. 10.000.00 eða ef eignir eru verulegar. — í tekjudálknum er talið upp — Sá misskilningur virðist all ótbreiddur, að viss upphæð af tekjum giftra kvenna sé skatt- frjáls og ekki framtalsskyld, þannig að ef gift kona hefir t. d. undin 15 þösund krónur f tekjur þurfi ekki að geta um það á fram tali. Þetta er rangt. Allar tekjur giftra kvenna ber að telja fram eins og aðrar tekjur. En ef um er að ræða hreinar launatekjur vegna vinnu utan heimilis, þá skal .færa launin að fullu ti! tekna undir tekjulið 12 á fram- tali, en helminginn af þeirri upp- hæð til gjalda undir frádráttarlið 13 a. Séu launin greidd fyrir vinnu við atvinnurekstur, sem hjónin eiga, annað hvort eða bæði, eða ófjárráða böm þeirra, gilda um það sérstakar reglur, sem hlutaðeigendur þurfa að kynna sér sérstaklega. Gjöld dregin frá. Hvað er hægt að segja um hina ýmsu frádráttarliði fram- talsins? Hvaða skatta og önnur opinber gjöld má t. d. draga frá tekjum? — Eignarskattur og eignarút- svar dregst frá tekjum og er fært undir 3. og 4. tölulið í frádráttardálki framtalsins. Ennfremur kemur til frádrátt- ar söluskattur og aðstöðugjald hjá þeim, sem þau gjöld greiða. Tekjuskattur og tekjuútsvar er ekki frádráttarbært til tekju- skatts. Hins vegar er tekjuút- svar dregið frá tekjum við álagn- ingu tekjuútsvars, sé það greitt að fullu fyrir lok þess árs, þegar útsvarið var álagt. í.nwnNvÍ?: Halldór Sigfússon. ÚT FRAMTAIIÐ ÞITT? elli- og örorkulífeyrir, sjúkra- eða slysabætur og fjölskyldubæt- ur. Eru allar greiðslur úr almanna tryggingunum skattskyldar? — Bætur, sem greiddar eru í eitt skipti fyrir öll, þar með tal- inn fæðingarstyrkur, eru ekki skattskyldar. En elli- og örorku- lífeyrir, sjúkra- og slysabætur, fjölskyldubætur og mæðralaun er allt skattskylt og skal færa undir 8., 9. og 10. lið í tekjudálk framtalsins. Barnalífeyri skal hins vegar færa í þar til ætlaðan lið á fyrstu síðu framtalsins. Á árinu 1962 voru fjölskyldu- bætur fyrir hvert barn kr. 3.027,- 00. Fjölskyldubætur vegna barna, sem fæðast á árinu, eða ná 16 ára aldri á árinu, verður að reikna eftir mánaðargreiðslum, en þær voru sem hér 'segri: Tíma- bilið 1/1-31/5 kr. 246.56 og frá 1/6—31/12 kr. 256.43. — 12. tekjuliður á framtali heitir launatekjur konu. Eru þær ekki að einhverju leyti skatt- frjálsar? Álagðan tekjuskatt og tekju- útsvar skal færa á 2. slðu fram- talsins. Þeir, sem fasteignir eiga, mega ennfremur færa til gjalda greidd fasteignagjöld til borgar- sjóðs, þar með talið brunabótaið- 'gjald og lóðaleiga. Fasteigna- gjöld af sumarbústöðum og öðr- um slíkum eignum má þó ekki færa til gjalda. — Loks má nefna almanna- tryggingagjaldið. Það skal færa í 8. tölulið frádráttardálks. í Reykjavik nam þetta gjald á síðasta ári fyrir hjón 2.090.00, einhleypan karlmann kr. 1.900.- 00 og fyrir. einhleypa konu kr. 1.425.00. Sérreglur gilda um þá, er greiða í sérsjóði, sem viður- kenndir eru af Tryggingastofnun rikisins. Almannatryggingagjald þeirra var fyrlr hjón kr. 627.00, einhleypan karlmann kr. 570.00 og fyrir einhleypa konu kr. 428.- 00. Sjúkrasamlagsgjald kemur einnig til frádráttar, en það nam á s.l. ári kr. 1.296.00 fyrir hjón og kr 648.00 fyrir einhleypan. — Hvaða tryggingariðgjöld má draga frá? — 1 fyrsta lagi iðgjöld af líf- eyristryggingu, þ. e. framlög launþega til Iífeyrissjóðs, en flestir lífeyrissjóðsfélagar munu greiða 4% af föstum launum. Sérreglur gilda um ýmsa slika sjóði og yrði of langt mál að gera grein fyrir þeim. Þá má draga frá iðgjald af lifs- ábyrgð. Hámarksfrádráttur fyrir þá, er greiða i Iífeyrissjóð, er kr. 4.000.00, en fyrir aðra kr. 6.000- 00. Ýmis frádráttur. — Er ekki hluti af tekjum sjómanna skattfrjáls? — Þeir sjómenn, sem háðir eru greiðslu slysatryggingaið- gjalds sem fiskimenn, mega dragp frá tekjum sínum kr. 500.00 á mánuði fyrir hlífðarfatakostnaði. Auk þess fá þeir fiskimenn, sem skráðir eru eftir sömu reglu i 6 mánuði eða lengur kr. 3.000.00 á mánuði til frádráttar. Hluta- ráðnir menn njóta sama frádrátt- ar, þótt þeir séu ekki lögskráðir. Frádrátt þennan skal færa í 11. tölulið frádráttardálks, og til- greina jafnframt vikufjölda. Fiskimenn, sem greiða fæði sitt sjálfir, mega draga frá kr. 35.00 á dag á því tímabili, sem Hvað ef húsið eyðileggst? þeir eru lögskráðir. Þessi frá- dráttur færist í 10. tölulið frá- dráttai-dálks. Jafnframt skal til- greina dagafjölda. — Þá kemur 12. liður, skyldu- sparnaður. Hvað á að færa þar? — Þar skal færa þá fjárhæð, sem framteljandi á aldrinum 16 —25 ára hefir fengið greidda í sparimerkjum á árinu 1962 og innfærð er í sparimerkjabók. Til frádráttar leyfist ekkihærri upp- hæð en 6% af árslaununum. Sparimerki, sem endurgreiðast á sama ári og fyrir þeim er unnið vegna undanþágu frá sparnaðar- skyldu, færast ekki til frádráttar. — Hvað um greiðslu fyrir húshjálp, má draga hana frá tekjum? — Eins og búið var að segja fá einstæðir foreldrar eða aðrir einstaklingar, sem halda heimili vegna skylduómaga, sérstakan frádrátt, og einnig um það rætt, að ef gift kona vinnur utan heimilis, er helmingur af kaup- inu dreginn frá. Að öðru leyti er kostnaður við heimilisaðstoð ekki frádreginn. Tjón á eignum. — Ef maður verður fyrir 50.- 000.00 kr. tjóni á bíl sínum, fær hann þá viðgerðarkostnaðinn eða tjónið frádrégið? — Sé um að ræða bifreið, sem ekki er notuð við atvinnurekstur, er slfkt tjón ekki frádráttarbært, enda koma bætur, sem menn kunna að fá, ekki heldur til tekna. Hins vegar geta aðilar sótt til skattstjóra um sérstaka íviln- un á sköttum, ef óbætt tjón nem- ur miklu og efnahagur er slæm- ur. Sé bifreiðin atvinnutæki, getur farið eftir ýmsum atvikum, að hvaða leyti slíkt tjón telst rekstr- arkostnaður. — Ef húseign skemmist vegna tjóns, sem ekki er bætt af tyggingarfélagi, fæst þá tjónið frádregið? — Ef viðhaldskostnaður vegna skemmda nemur meiru en tjóna- bætur á framteljandi rétt á að fá hann frádreginn, enda séu færð" ar fullar sönnur að þessum kostn aði, og eins að því, að viðgerðar- kostnaðurinn allur stafi frá tjón- inu, og ekki sé jafnhliða um end- urbætur að ræða. — Um aðra frádráttarliði, sem til greina koma, og margir hverjir eru bundnir við sérstakar ástæð- ur, er rétt að menn kynni sér á- kvæði laga og reglugerðar. Má þar nefna ferðakostnað í lang- ferðum vegna atvinnu, gjafir til menningarmála og líknarstarf- semi, kostnð vegna öflunar bóka og tækja til vísindalegra og sér- fræðilegra starfa, námsfrádrátt, frádrátt vegna stofnunar heimilis o. fl. Frestir styttir. . — Við nefndum framtaks- frestinn í upphafi. Er það rétt að verið sé að stytta fresti frá því sem verið hefur, t. d. þá fresti, sem endurskoðendur háfa haft ti! að skila framtölum fyrirtækja? - Já, það er rétt, og um þetta var strax tilkynnt snemma í október. Þessi stytting getur bakað ýmsum erfiðleika, og hef- ur sumstaðar vakið nokkra ó- ánægju og ekki öllum ljóst, að hér er um nauðsyn að ræða. — Auðvitað er margt. rem getur tafið endanieg ril«: skil, mörg fyrirtæki auk þae* yf- irhlaðin störfum og endurskoð- endur ekki síður — en »íl \Ot- sögðu æskilegt, ??' bók’^ald sem allra flestra sé e.uii.rskoðað áSur en framtölin eru send skattsto'- unni. En tillitssemi skattstofui*i>- ar verður að þoka fyrir þc‘.'': nauðsyn, að skattskráin ki'/mi á réttum tíma samkvæmt lögum » — Hvenær á það að vara? — Skatt- og útsvarssiailn o&a gjaldheimtuskráin eins og húu au er kölluð á að koma í siðasta lugl 1 júni. Langur tími fer í að reikna út í skýrsluvélum hin ýmsu gjöld 1 skránni og prenta þau, svo skatt stofur verða að hafa lokið vlnnu við framtöl og álagningu að mestu fyrir aprillok. Fram eftir febrúar er verið að raða framtöl- um og ýmsum heimildum og koma þeim inn í framtölin. Fjöldi upplýsingamiða, er berast skatt- stofunni, um kaupgreiðslur og annað, munu nema hundruðum þsúunda. Skattstofan hefur um 2 y2 mánuð til þess að vinna að endurskoðun og rannsóknum á framtölum alls almennings, og þó einum mánuði minna að þvi er varðar allan atvinnurekstur ein- stak linga og félaga. Það er þvi auðsætt, að ekki má skerða þennan skamma tíma með frest- veitingum að neinu ráði. Einnig er þess að gæta, að skattstörfin eru að sumu leyti viðameiri nú en áður. — 1 hverju er það fólgið? — Sumir nýju frádráttarliðirn- ir eru nokkuð örðugir I fram- kvæmd. Auk þess gera skatta- lögin nýju auknar kröfur til skattstjórnarmanna um rökstuðn- ing fyrir úrskurðum, áætlunum og breytingum. Þá er aðstöðu- gjaldið, sem er skorðað við ná- kvæmar álagningarreglur, kom- ið 1 stað veltuútsvarsins, sem oft gat verið laust I reipunum. Skattastofur og framtalsnefndir hafa nú bundnari hendur en áð- Framh. á 5. síðu. Þegar barn vinnur sér inn peninga. w V

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.