Vísir - 23.01.1963, Qupperneq 16
Röðulsmenn
á bnfnvegi
18 skip i smíium fyrirls-
í morgun var birtur í London
hinn ársfjórðungslegi listi
Lloyds yfir skipabyggingar í
heiminum. Barst Vísl í hendur
eintak af listanum í morgun.
Þar kemur fram að íslending
ar eiga nú 18 skip í byggingu
erlendis. Flest eru þau byggð í
norskum skipasmíðastöðvum
eða alls 15 og er smálestatala
þeirra saintals 2.845. (tons
gross). Eitt skip. 499 Iestir að
stærð er í byggingu í Vestur
Þýzkalandi, eitt 155 lestir I
I-Iollandi og eitt, í Svíþjóð, 170
lestir að stærð. Samtals er smá
lestatala þeirra íslcnzku skipa
seni nú eru í smíðum crlcndis
3.669 tonn.
Alls eru nú 1423 skip í smið
um í veröldinni. í skýrslunni
kemur fram að skipasmíðar
hafa minnkað í heiminum síð-
asta ársfjórðung sem nemur
42 þúsund tonnum frá þriðja
ársfjórðungi 1962. Nú eru alls
i smiðum 181 oliuskip. Eru þau
smíðuð fyrir Bretland, Noreg,
Japan og Liberiu að meginhluta.
Ssx drukknir
Síðustu dagana hafa nokkur
brögð verið að því að Iögreglan
hefur haft hendur í hári ölvaðra
ökumanna.
Eins og áður hefur verið skýrt
frá í Vísi, voru miklu fleiri öku-
menn teknir drukknir við stýrið á
árinu sem leið heldur en nokkru
ári áður. Enn virðist þessi ósiður
vera í fullum gangi og um síðustu
helgi tók lögreglan 5 drukkna öku-
menn við akstur og þann sjötta
tók hún í gær.
Allir skipsmenn af Röðli sem
fengu eitrun á dögunum eru á
batavegi. nema einn þeirra. Brynj-
ar Valdimarsson, sem liggur í
sjúkrahúsinu í Vestmannaeyjum, er
þungt haldinn og rænulítill. Er
hann talinn í hættu þar sem ofan
á eitrunina hefur nú bætzt að
hann hefur veikzt af bronchitis.
Félagi hans, Reynir Jensson, sem
einnig er I sjúkrahúsi í Vestmanna
eyjum, fór á fætur í gær og er að
verða góður.
Þeir tólf Röðulsmenn, sem hafa
legið í Borgarsjúkrahúsinu í
Reykjavík, eru allir á batavegi.
Einn þeirra fór heim til sín í gær
og sumir hinna munu fara að
hverfa heim á næstunni.
íþróttamaður ársins
íþróttafréttaritarar dagblaðanna í Reykjavík völdu í gær íþrótta-
niann ársins og varð Guðmundur Gislason fyrir valinu, Þessa mynd
tók ljósmyndari Vísis í gær, þegar Atli Steinarsson formaður félags
iþróttafréttaritara afhenti Guðmundi verðlaunagripinn.
i—■—■—■ ...............
Tvö
umferðarslys
Tvö umferðarslys urðu í Reykja-
vík skömmu eftir hádegis í gær, en
ekki talin alvarlegs eðlis.
Um eittleytið í gærdag hljóp 5
ára gömul telpa út á Langholtsveg
móts við hús nr. 144 og lenti þar
utan í bifreið, sem ekið var eftir
götunni. Telpan meiddist eitthvað
á höfði og var flutt í slysavarð-
stofuna til aðgerðar
Nokkrum mfnútum síðar varð
bifreiðaárekstur á innanverðum
Laugavegi, móts við Ás. í árekstr-
'ínurn meiddist ökumaður annarrar
bifreiðarinnar, svo og 9 ára telpa,
sem var farþegi. Þau fóru bæði í
slysavarðstofuna, en meiðslin ekki
talin mikil.
Verður síldarvertíðin
endaslepp að sinni
í nótt veiddist eingöngu smúsíld í bræðslu
Það urðu mönnum um, svo allir bátar voru bræðslu, þar sem síldin
mikil vonbrigði að síldin á leið í land. Náíega áií- er ekki hæf til annars.
sem veiddist í nótt á ur afli þeirra mun fara í Frh & bis 5.
Það kom sjómönnum á óvart
að sú litla síld sem veiddist sl.
nótt var öll smásíld, sem er lít-
ilsvirði þar sem hún fer öll í
bræðslu. Óttast menn nú að úti
sé um stórsfldargönguna í vetur.
í samtali við Jakob Jakobsson
sem birtist hér á síðunni kemur
þó greinilega fram, að enn sé
ekki öll nótt úti. Einn af ókost-
um þeim sem fylgjir smásíldinni
cr að hún ánetjast og voru sjó
menn í morgun að vinna að því
að hrista hana úr nótinni. Þessa
mynd tók ljósmyndari Vísis í
morgun og sjást þar þrjár skips
hafnir að hrista síldina úr -net-
unum.
Kantinum og sunnar-
lega í Jökuldjúpi var
nær eingöngu smásíld.
Aflinn var lélegur og í
morgun hvessti á miðun
Ekki að marka ema uótt
Segir Jakob Jakobsson
Vísir hafði tal af Jakob Jakobs
syni leiðangursstjóra um borð
í Ægi rétt fyrir hádegi, og var
hann þá staddur á vestanverðu
Selvogsgrunni, en Ægir er f
hafrannsókna- og síldarleið-
angri, sem kunnugt er. Jakob
sagði að veiðiútlit væri ekki
gott í svipinn, ef dæma ætti
eftir því hve mikið magn var
af smásild í Jökuldjúpi í nótt,
en bætti við að ekki væri að
marka eina nótt, alltaf gæti
breytzt til batnaðar aftur, og í
nótt hefðu bátar frá Vestmanna
eyjum fengið stóra og fallega
síld rétt fyrir austan Eyjar. Við
megum ekki miða allt við Faxa
flóa þótt ýmsum hætti til þess,
sagði Jakob. Hann kvaðst mest
óttast um síldveiðarnar ef um-
hleypingatíð yrði á næstunni en
hafa trú á því að enn gæti orð-
ið góð veiði ef blíðviðrið héld-
ist.
Jakob sagði að þeir stunduðu
kerfisbundnafl rannsóknir á
seltu- og hitastigi sjávarins og
leituðu síldar um leið á Ægi.
Ekki hefðu þeir orðið varir síld
ar í Grindavíkursjó og myndu
nú færa sig austur eftir alla
leið til Vestmannaeyja. Hann
sagði að leitarskipið Guðmund
ur Péturs hefði leitað síldar í
vestanverðum Kolluál í nótt en
ekki getað lokið þeirri leit
vegna veðurs og væri því ekki
útséð um síld þar. Augljós væri
að stærsta síldin hefði ekki ver
ið með í því sem veiddist f
Jökuldjúpi í nótt og e.t.v. væri
hún gengin þaðan í bili, en ekki
væri Ioku skotið fyrir að hún
fengist þar síðar. Það er ekki
séð fyrir endann á þessu ennþá,
sagði Jakob Jakobsson að lok-
um, hvað sem kann að verða.
Miðvikudagur 23. janúar 1963.
t