Vísir - 08.02.1963, Blaðsíða 2

Vísir - 08.02.1963, Blaðsíða 2
2 V1SIR . Föstudagur 8. febrúar 1963. Þátttakendur á íslandsmóti frá Borgarnesi og úr Ölfusi Tvöföld umferð fekin upp ú íslundsmötinu í körf uknuttleik Tvöföld umferð mun halda inn- reið sína i meistaraflokksleiki karla í körfuknattleik sem hefst um næstu helgi. Fyrirkomulag þetta byrjaði fyrir áramótin í handknattleik og hefur gefizt vel, enda þótt mörg Ijón hafi í fyrstu virzt f veginum. Skarphéðinn og Skallagrímur. íslandsmótið að þessu sinni verð ur mjög fjölmennt og hefur ekki fyrr verið jafn fjölmennt. Liðin í keppninni verða a. m. k. 30 og keppendur á 4. hundrað taisins. Þrjú liðanna eru utanbæjarlið, Skarphéðinn úr Ölfusi, Skallagrím- ur úr Borgarnesi og auk þess fim- leikafélagið Björk f Hafnarfirði, sem tók þátt í mótinu í fyrra, en er annars ekki þekkt félag. Aðeins „áhorfendaleikir“. KKÍ hefur ákveðið að hafa til sýnis aðeins meistaraflokksleiki enda er annað ekki ráðlegt, enda þótt unglingaleikir geti oft verið jafnspennandi og vel leiknir. Er þetta einnig samkvæmt þvf sem handknattleiksmenn hafa gert nú f vetur í sambandi við sitt Islands- mót. Eins og fram kom hér á síðunni fyrir skömmu, er mikill hörgull á færum mönnum til að dæma körfu- knattleik hér á landi og var aug- lýst námskeið. Strax nú eftir svo skamman tíma er byrjað að út- skrifa dómara, sem hlýtur þó að vera nokkuð snöggsoðin fræðslu- starfsemi eins og gefur að skilja, enda lærast listir dómara ekki i nokkrum kennslustundum um helg ar. En hvað um það, þarna hlýtur að vera skref í áttina að því sem koma skal. Margir áhorfendur hafa kvartað yfir því að þeir skilji ekki reglur leiksins, sem eru að mörgu leyti ó- líkar reglum evrópskra knattleikja. Til að bæta úr þessu verður kom- ið fyrir i leikskránni þýðing úr sænskum bæklingi um körfuknatt- lei';, sem einmitt var ritaður með það fyrir augum að kynna leikinn sænskum áhorfendum í sambandi við POLAR CUP i haust. Keppnisskírteini. I vetur verður tekin upp sú nýj- ung að enginn getur orðið kepp- andi í körfuknattleik, nema hann sé handhafi keppnisskírteinis í körfuknattleik. Er fyrirmyndin komin frá alþjóðasamtökum körfu- knattleiksmanna, FIBA, sem gefur út slík skírteini til milliríkja- keppna, en fjöldi iandssambanda hafa tekið þetta upp með góðum árangri. Þjónar þetta þriþættum tilgangi. Það kostar peninga að eignast skírteinið og er þannig nokkur fjáröflun fyrir heldur fá- tækt samband, það hjálpar til í sambandi við lögboðna læknisskoð un íþróttamanna, og að lokum er betra að fylgjast með hversu margir virkir íþróttamenn eru í körfuknattleik. Er ekki ósennilegt að aðrar íþróttagreinar taki þetta siðar upp. Leikirnir á morgun eru: KR— Stúdentar og KFR—Ármann, báðir í ml. karla. Hefjast leikirnir kl. 8.15. / dag Islandsmótið í handknattleik. Tveir leikir i 1. deild: VÍKINGUR — FRAM KR — ÞRÓTTUR. Síðast þegar Víkingur og Fram léku vann Víkingur óvæntan sigur með 26:21 í fyrsta leik Islands- mótsins, en nú má gera ráð fyrir mikilli baráttu, ekki sízt þar eð þessi stig geta verið mjög þýð- ingarmikil fyrir hvorn aðilann sem er. Leikur Þróttar og KR ætti að geta orðið góður og leikur Þróttar | á dögunum gegn FH gefur góð 'vrirheit. Staðan í mótinu er þessi: L U J T M st. FH 6 5 0 1 167:119 10 Fram 5 4 0 1 148:116 8 Vík. 5 3 1 1 103:102 7 ÍR 6 2 1 3 166:168 5 KR 6 2 0 4 146:162 4 Þróttur 6 0 0 6 119:182 0 STÖKKINN í HJÓNABANDIÐ Maðurinn á myndinni er heimsmeistari í háskökki, Valerij Brumel, sem stokkið hefur 2,27 m. og hefur heitið að stökkva 2.30 metra. Stökk Brumels á þessari mynd er þó ekki síðra 2.27 m stökklnu þvi það er beint f hjónabandið með þessari myndarlegu fimleikadömu, Svetlönu Larlnowa. Á giftingardaginn sinn byrjaði Brumel vel og stökk innan húss f Lenengrad 2.20 mctra, sem gerir afrek Jóns Þ. Ólafssonar 3. bezta innanhússafrekið í vetur, en það afrek var áður næstbezt á eftlr afreki John Thomas. Brumel er tvítugur að aldri og er ncmandi við íþróttaháskólann í Moskvu. Myndir er tekin úr Ieik ÍSLANDS og SVlÞJÓÐAR í Polar Cup í haust. Skemmtið ykkur í Sjálfstæðis húsinu Matur framreiddur frá kl. 7. Borðpantanir \ síma 12339 frá kl. 4. Alliance Francaise Alliance Francaise heldur skemmtifund í Þjóðleikhúskjallaranum sunnud. 10. febrúar kl. 20.30. Sendiherra Frakka flytur ávarp. Rögnvaldur Sigurjónsson spilar verk eftir Chopin og Debussy. Útvarps- og sjóvarpsstjaman danska, Eugen Taj- mer skemmtir. Dansað til kl. 1. Veitingasalir opnir matargestum frá kl. 19.00. Stjórnin. Sölumaður Mjög arðvænlegt fyrirtæki óskar eftir sölu- manni, gæti orðið meðeigandi. Tilboð sendist afgreiðslu Vísis fyrir 12. þ. m., merkt „sölumaður“. Bílskúr Tveggja hæða rúmgóður bílskúr til leigu, mætti nota sem verzlunarpláss. — Upplýsing- ar í síma 24034 og 20465.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.